Bæjarins besta - 08.12.1999, Blaðsíða 2
pjPlaiinij
Útgefandl: Ábyrgðarmenn:
H-prent ehf. Sigurjón J. Sigurðsson
Sólgötu 9, 400 ísaflörður Halldór Sveinbjörnsson
■s 456 4560 Ritstjóri:
0456 4564 Sigurjón J. Sigurðsson
Netfang prentsmiðju: Blaðamaðnr:
hprent@snerpa.is Hfynur Þór Magnússon
Stafræn útgáfa: Netfang ritstjórnar:
http://www.snerpa.is/bb bb@snerpa.is
Bæjarins besta er í samtökum bæjar- og héraðs-
fréttablaða. Eftlrprentim, hjjóðritun, notkun jjósmynda
og annars efnis er óheimil nema heimilda sé getið.
Flökurleiki
Hafi örlað á glætu er benti til að umræðan um lands-
byggðavandann svokallaða yrði eilítið vitrænni og menn
færu smátt og smátt að átta sig á því að fólksstreymið til
þéttbýliskjarnans viðFaxaflóaervandamál þjóðarheildar-
innar, er hætt við að sá neisti slökkni.
Þessa ályktun má draga af viðbrögðum stjórnarfor-
manns Byggðastofnunar. Egils Jónssonar, fyrrv. alþingis-
manns, í grein í Mbl. í nýliðinni viku, sem hann nefnir
„Fjallið tók jóðsótt og það fæddist lítil mús“, en þar segir
hann í upphafi: „Sáttmáli núverandi ríkisstjórnar talar
skýru máli um til hvaða horfs eigi að færa skipulag
byggðamála. Þar segir: „Fyrsta verkefnið á þessu sviði er
að færa Byggðastofnun undir Iðnaðarráðuneytið og sam-
eina atvinnuþróunarstarfsemi á þess vegum." Hér er
talað tæpitungulaust," segir Egill, ,,um þann ásetning að
færa atvinnuþróunarstarfsemina úti á landi undir Iðn-
tæknistofnun íslandsog treysta þannig hlut stofnanaveld-
isins í Reykjavík.“ [Lbr.BB]
Þótt margt og misjafnt megi eflaust segja um störf
Byggðastofnunar á liðnum árum er því ekki að leyna að
rnargir óttast þá fyrirætlan stjórnvalda „að færa stjórn
byggðamála og stefnumótun undir pólitískt forræði iðnað-
arráðherra" eins og Egill Jónsson orðar það.
Agli Jónssyni er óglatt við tilhugsunina urn örlög
Byggðastofnunar í höndum iðnaðarráðherra [og skal
heilsufar hans almennt ekki metið út frá því]. Og honum
verður tíðrætt um ráðherravandamál Framsóknarflokks-
ins, sem ráðgert hafði verið að leysa innan Byggðastofnun-
ar [og allir vita nú hvernig fór um þann útreiðartúr]:
„Innanflokksmálefni Framsóknarflokksins eru gjörsam-
lega óháð byggðamálum. Þau mál verður flokkurinn að
leysa af eigin rammleik, til þess hefur hann góða reynslu
(!!?) og umfram allt verða málefni dreifðra byggða á
Islandi að vera í friði fyrir innbyrðis vanda Framsóknar-
flokksins." Þeir þekkjast vel yfír girðinguna, þingmennir-
nir.
Nú loks telja stjórnvöld sér fært að auglýsa stöðu þriðja
bankastjóra Seðlabankans, enda búið að koma þessu
vandræðabarni Framsóknarflokksins til þessa, í friðar-
höfn; stöðu, sem virðist hafa þann tilgang helstan að
viðhaldapólitískujafnvægi milli núverandi stjórnarflokka.
Það eitt er vitað um framgang málsins, að bankastjórinn
verður úr „réttum flokki" eins og bankamálaráðherra
mun hafa komist svo hnyttilega að orði.
Fleirum er bumbult en stjórnarformanni Byggðastofn-
unar. Pólitísk hrossakaup leysa ekki vanda landsbyggðar-
innar nú frekar en fyrri daginn. Og að fjölga bankastjórum
Seðlabankans í pólitískum hagsmunatilgangi einum sam-
an er sóun á fjármunum og ekkert annað.
s.h.
ORÐ VIRUNNAÐ
Falsvinur
Fcilsvinir nefnast þau orð, sem eru svipuð orðum á öðrum tung-
um en hafa ólíka merkingu. Dæmi sem snerta íslensku: Danska
orðið pande í merkingunni enni, þýska orðið Kind (barn), ítalska
orðið caldo (heitur) og enska orðið another í merkingunni enn
einn. I textaþýðingum í sjónvarpi eranotherjafmn þýtt semannar,
einnig þegar slfkt er víðs fjarri lagi, sbr. another thunder í merk-
ingunni enn ein þruman (þegar margar eru komnar á undan).
Þekkt er þýðing dönskunema á málsgreininni Hun blev rpd i
hovedet og var lige ved at grœde: Hún fékk rör í höfuðið og varð
að liggja þangað til það greri.
Boð íslandsbanka til allra landsmanna um ókeypis áskrift að Netinu
Baukinn mun tapa við-
skiptavinnni og veltu
- og gaman að vera orðinn þjáningarbróðir Landssímans, segir Björn Davíðsson hjá Snerpu
„Þetta kemur alls ekki til
með að kippa stoðunum und-
an rekstrinum hjá okkur, jafn-
vel þó að allt gangi frarn sem
íslandsbanki og Islandssími
hafa lýst yfir í þessunt efnum.
En vissulega er þetta slæmt
fyrir okkur og hlýtur að hafa
áhrif á þjónustustigið um alit
land", segir Björn Davíðsson
hjá tölvuþjónustunni Snerpu
á ísaftrði í samtali við blaðið.
íslandsbanki og Islandssími
hafa gert samning þess efnis
að bankinn býður öllum lands-
mönnum ókeypis tengingu
við Netið en Islandssími mun
sjá urn rekstur kerfisins. I
framhaldi af fréttum af þeim
samningi tilkynntu Lands-
banki íslands og Landssíminn
að fyrirtækin hygðust hefja
samstarf um rekstur netþjón-
ustu með nýju sniði, m.a. urn
notkun GSM-síma í banka-
viðskiptum. Hins vegar hefur
ekki komið fram að í því sam-
starfi verði þjónustan ókeypis.
„Ef við horfum á þetta frá
sjónarmiði hins almenna not-
anda frekar en frá okkar sjón-
armiði, þá er spurningin
hvernig hans hag sé borgið í
framtíðinni. Islandsbanki
virðist vera að bjóða þjónustu
sem hann segist gefa núna en
um framtíðina er ekkert
tryggt. Bankinn getur þess
vegna tekið það upp hjá sér
eftir einhvern tíma að segja:
Þetta er nú búið að vera ágætt
en héðan í frá kostar áskriftin
svo og svo mikið. Mér sýnist
að ekkert banni þessum aðil-
um að hegða sér með þessum
hætti en hins vegar gæti það
verið spurning um siðferði í
viðskiptum.
Mér virðist að Islandsbanki
sé potturinn og pannan í þessu
en Íslandssími fyrst og fremst
í aukahlutverki sem fram-
kvæmdaraðili. Ég velti því
fyrir mér hvort Islandsbanki
hafi hugsað það til enda hvort
þetta borgar sig fyrir hann, en
ValurValsson bankastjóri hélt
því frarn í viðtali, að bankinn
væri að þessu til að græða á
því. El' það yfirlýsta takmark
næst að fá 40 þúsund áskrif-
endur með þessum hætti, þá
er þar með verið að glata að
minnsta kosti 50 milljón króna
mánaðarveltu út úr bankan-
um.
Reikna má með að hver við-
skiptavinur greiði a.m.k. kr.
1.400 í áskrift á mánuði og
níu af hverjum tíu netþjón-
ustufyrirtækjum eru í við-
skiptum við Islandsbanka.
Þannig mun bankinn tapa um
90% af 56 milljón króna veltu
á mánuði, þ.e. ef „vel“ gengur
og. En ef illa gengur og þessi
tilraun mistekst, þá tapar
bankinn líka þessari veltu, því
að netþjónustufyrirtækin
segja sig auðvitað úr viðskipt-
um við bankann.
Island er einfaldlega of lítill
markaður til þess að menn
selji hver öðrum auglýsingar
til þess að greiða hver öðrum
fyrir notkun á þjónustu, sem
klárt mál er að þarf að greiða
háar fjárhæðir fyrir. En ljósi
punkturinn í þessu máli er sá,
að það er gaman að vera loks-
ins orðinn þjáningarbróðir
Landssímans!“, sagði Björn.
Hlutafé Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. aukið um allt að 50 milljónir
Kaupir kvóta af Bása-
felli fyrir 600 milljónir
- grundvöllur byggðar að fyrirtækin skili arði, segir Einar Valur Kristjánsson framkvæmdastjóri
Hraðfrystihúsið - Gunnvör
hf. (HG) í Hnífsdal hefur gert
samning við Básafell hf. um
kaup á aflaheimildum fyrir
600 milljónir króna. I samtali
við blaðið sagðist Einar Valur
Kristjánsson, framkvæmda-
stjóri HG, reikna með því að
yfirfærsla kvótans frá Bása-
felli ætti sér stað í þessum
mánuði.TiI þess að fjármagna
kaupin að hluta hefur verið
ákveðið nýta heimild til að
auka hlutafé HG urn allt að
50 milljónir króna að nafn-
virði, en fyrir aukningu er
hlutafé HG rétt tæpar 600
milljónir króna að nafnvirði.
{ hinu nýja hlutafjárútboði
er eingöngu um að ræða sölu
til forkaupsréttarhafa á geng-
inu 6,25 þannig að söluverðið
á 50 milljón króna hlut er sam-
tals 312,5 milljónir króna. Nú-
verandi hluthafar eiga for-
kaupsrétt í hlutfalli við hluta-
fjáreign sína fram til 22. des-
emberen getajafnframt fram-
selt hann að hluta eða öllu
leyti.
Hraðfrystihúsið - Gunnvör
hf. varð til í haust við samein-
ingu Hraðfrystihússins hf.
Hnffsdal og Gunnvarar hf. á
ísafírði. Fyrir u.þ.b. rnánuði
var samþykkt að Mjölvinnsl-
an hf., íshúsfélag Isfírðinga
hf„ Harðfískstöðin hf„ Tog
hf. og Fiskiðjan ehf„ öll í
meirihlutaeigu HG, yrðu sam-
einuð HG. í fyrstu reiknings-
skilum hins nýja fyrirtækis
sem birt voru í síðasta mánuði,
þar sem saman er tekin af-
koma allra framangreindra fé-
laga nerna Mjölvinnslunnar
hf„ kernur fram að hagnaður
samstæðunnar var 157 millj-
ónir króna fyrstu átta mánuði
þessa árs.
Þegar EinarValur Kristjáns-
son framkvæmdastjóri var
spurður um ástæður góðrar
afkomu, þegar rekstur sumra
hliðstæðra fyrirtækja gengur
illa, svaraði hann: „Ef við ætl-
um að lifa, þá verðum við að
græða. Það leggur enginn pen-
inga í fyrirtæki sem er að tapa.
Hlutaféð í fyrirtækinu er spari-
fé fólks og við verðum að
ávaxta þetta fé betur en fólkið
getur annars staðar. Það er
einfaldlega grundvöllur
byggðar hér að fy rirtæki n skili
arði“, sagði Einar Valur.
Börn á aldrinum þriggja til átta ára höfðu margt til að una sér við á skemmtistund í
Edinborgarhúsinu á ísafirði sl. laugardag, meðan foreldrarnir voru að útrétta í bœnum.
Jólalög voru sungin, jólasaga lesin, jólamyndir teiknaðar og sittlivað fleira gert til gam-
ans. Dagskrá þessi verður á ný í Edinborgarhúsinu nœsta laugardag, 11. desember, frá
kl. 15 til kl. 16.30 og skal tekiðfram, að það kostar ekkert að eiga þessa skemmtistund
í glöðum hópi.
Er föndrari í fjölskyldunní?
Erum með gjafakort og ýmislegt
fleira til jólagjafa.
Komdu og skoóaðu í kistuna!
Föndurkistan, Fagraholti 1
2
MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER 1999