Bæjarins besta - 08.12.1999, Síða 7
Halldór Halldórsson bæjarstjóri ísaflarðarbæjar skrifar
Skipulagsmál í Engidal
Bæjarstjórn ísafjarðarbæjar
hefur samþykkt deiliskipulag
fyrir Engidal í Skutulsfirði.
Skipulagið gerir ráð fyrir þvf
að svæðið við sorpeyðingar-
stöðina Funa verði endur-
skipulagt, settar verði upp
jarðvegsmanir til að loka af
útsýni inn á brotajárnshauga
o.fl. Þá er gert ráð fyrir hest-
húsabyggð innan við Funa
nokkurn veginn á árbökkun-
um. Þarna er reiknað með að
hrossaeigendur geti byggtupp
aðstöðu, hesthús, æfinga- og
keppnisvöll og hugmyndir
hafa komið fram um reiðhöll
sem gæti nýst sem fjölnotahús
fyrir fleira en hestamennsku,
t.d. fótbolta á vetr-um.
Framundan er vinna við að
ákveða hversu rnikið af hest-
um og öðrum skepnum á að
leyfa í Engidalnum því þar
verður að setja ákveðin tak-
mörk varðandi frístundabú-
skap og slíkt skepnuhald.
Mun niðurstaða þeirrar vinnu
vonandi liggja fyrir í vetur.
Skíðasvæðið, fram-
kvæmdir, skíðaskáli
Eftir að snjóflóð féll á lyftur
á Seljalandsdal s.l. vetur var
settur af stað vinnuhópur á
vegum ísafjarðarbæjar sem
korna skal með tillögur um
framtíðarskíðasvæði. I lok
ágústáþriðjafundi þessahóps
var bókað að ekki væri ásætt-
anlegur valkostur að byggja
upp á Seljalandsdal. Þessa
skoðun hópsins hefur bæjar-
ráð tekið undir ásamt bæjar-
stjórn. Þá hefurViðlagatrygg-
ing Islands, sem tryggir skíða-
lyftur bæjarins, svarað ítrek-
uðu erindi bæjarins um hvort
skíðalyftan verði tryggð áfram
á sama stað, með þeim hætti
að vísað er til 16. gr. laga um
Viðlagatryggingu Islands. I
þeirri grein er kveðið á um
heimild Viðlagatryggingar til
að lækka bætur eða synja al-
veg bótakröfu. Á þessum for-
sendunt öllum hefur ísafjarð-
arbær farið fram á að tjón á
lyftu á Seljalandsdal verði
bætt sem altjón. Lyftan á
Seljalandsdal er tryggð fyrir
33 milljónir og ber bærinn
25% sjálfsábyrgð.
Endanleg tjónaupphæð
verður eyrnamerkt frarn-
kvæmdum á skíðasvæði bæj-
arins og farið verður í fram-
kvæmdir þegar vinnuhópur
urn framtíðarskíðasvæði skil-
ar tillögum sínum og bæjar-
stjórn hefur blessað tillögurn-
ar og ákveðið framkvæmdir
og framkvæmdatíma.
Hcilldór Halldórsson.
Nú er glæsilegur skíðaskáli
í Tungudal orðinn rúmlega
fokheldur. Að því verki stend-
ur Foreldrafélag skíðabarna,
aðrir sjálfboðaliðar og ísa-
fjarðarbær sem leggur fram
17.750.000 til verksins. Bær-
inn greiðir þessa upphæð fyrir
neðri hæð hússins sem er
áhaldageymsla fyrir skíða-
svæðið og mun hýsa troðara
og önnur tæki. Gríðarleg
vinna hefur verið lögð í skál-
ann og mikið í sjálfboðavinnu
sem lýsir stórhug og krafti
þeirra sem að þessu standa.
Isafjörðurhefur verið sann-
kallaður skíðabær, héðan hafa
margir afreksmenn komið og
koma enn. Núverandi og fyr-
irhugaðar framkvæmdir rnunu
áreiðanlega halda nafni Isa-
fjarðarbæjar áfram á lofti sem
skíðabæjar því aðstaða til
skíðaiðkana ntun vonandi
batna við þær framkvæmdir
sem farið verður í, hverjar sem
þær verða endanlega.
Álagningarprósenta í
útsvari, tekjustofnar
sveitarfélaga
Á því ári sem nú er að líða
hefur álagningarprósenta í út-
svari til ísafjarðarbæjar verið
11.94% sem er ekki full álagn-
ing skv. lögum. Sveitarfélög-
um er heimilt að leggja á
12,04% útsvar og nýta flest
sveitarfélög sér þetta. I
Reykjavík er útsvarið 11,99%
sem er aðeins hærra en hjá
Isafjarðarbæ í ár.
í viðræðum sveitarfélag-
anna við ríkið um leiðréttingu
á tekjustofnum sveitarfélaga
er sveitarfélögunum ítrekað
bent á að þau nýti ekki að
fullu heimilaða tekjustofna.
Hefur fasteignaskattur verið
notaður sem dæmi eins og
greinarhöfundur hefur sagt frá
áður. Enn frekar hefur verið
bent á útsvarið og sveitarfé-
lögurn bent á að nýta það áður
en beðið sé um meiri tekjur.
Á bæjarstjórnarfundi 18.
nóvember s.l. var samþykkt
Skíðasvœðið í Tungudal.
að hækka álagningarprósentu
í útsvari í 12.04%. Er þetta
gert með viðræður við ríkis-
valdið í huga á næstu mánuð-
um um ýrnis hagsmunamál
sveitarfélagsins. í þeim við-
ræðum sem munu varða fé-
lagslega íbúðakerfið, tekju-
stofna, skuldajöfnunarfram-
lag vegna sameiningar 1996
o.fl. er nauðsynlegt að geta
bent á fullnýttan tekjustofn í
útsvari. Tekjuaukning Isa-
fjarðarbæjar vegna þessarar
breytingar er áætluð fimm
milljónir. Hækkun á greiðsl-
um hjá hinum almenna gjald-
anda miðað við eina og hálfa
milljón í laun á ári er kr. 1.500
á ári. Séu launin þrjár millj-
ónir á ári þýðir það hækkun á
útsvari um 3.000 kr. á ári og
svo framvegis. Hver hálf
ntilljón þýðir hækkun á út-
svari urn 500 kr. á ári.
Ætlunin var að fjalla um
stjórnsýslu Isafjarðarbæjar í
þessari grein en það verður
að bíða næstu greinar. Þá
verður fjallað um fleiri mál
sem unnið er að hjá bænunt
og bæjarbúar þurfa að vita
um. Fólkierbentáheimasíðu
bæiarins www.isafiordur.is en
þar eru fundargerðir færðar
reglulega inn og þar er hægt
að fylgjast með bæjarstjórnar-
fundum í beinni útsendingu
ef farið er inn á liðinn fundir á
heimasíðunni, útsendingin er
eins og í útvarpi nema sent er
í gegnum Internetið. Bæjar-
stjómarfundirerureglulegakl.
17:00 fyrsta og þriðja fimmtu-
dag í hverjum mánuði nema
nú í desember verða þeir ann-
an og þriðja fimmtudag mán-
aðarins. Innáheimasíðunaer
nú byrjað að setja greinar frá
bæjarstjóra og farið verður að
kalla eftir greinum bæjarfull-
trúa einnig. Þá verður sá
möguleiki að senda greinar
til Isafjarðarbæjar og fá þær
birtar á heimasíðunni. Þetta
er rétt að byrja hjá okkur sem
tilraun og vonandi verður því
vel tekið.
Halldór Halldórsson,
bœjarstjóri.
íslandspóstur hf
Aðalstræti 18 - 400 ísafirði
Opnunartími á pósthúsinu
Mánudaginn 20. desember verður opið frá kl. 09:00 - 18:00
Þriðjudaginn 21. desember verður opið frá kl. 09:00 - 18:00
Miðvikudaginn 22. desember verður opið frá kl. 09:00 - 18:00
Fimmtudaginn 23. desember verður opið frá kl. 09:00 - 18:00
Föstudaginn 24. desember verður opið frá kl. 09:00 - 12:00
Athugið! Engin helgaropnun í desember.
Stöðvarstjóri.
MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER 1999
7