Bæjarins besta - 08.12.1999, Qupperneq 16
JÓLAGJÖFINA
F/ERÐU HJÁ OKKUR!
VMgitiMtÉiBp&írt
AÐALSTRÆTI 27 SÍMI 456 3602
Fjölmenni var á torgsölu Styrktarsjóðs Tónlistarskóla Isafjarðar sem lialdin var á Iaugardag.
Mannfagnaður á Silfurtorgi
Kveikt á jólatrénu
frá Hróarskeldu
- lítill fyrirvari og ónóg kynning en gestir á
torgsölunni björguðu því sem bjargað varð
ísafjörður
Reiknistof-
an skiptir
um eigendur
Nýir aðilar hafa tekið
við rekstri Reiknistofu
Vestfjarða ehf. á ísafirði,
þeirGuðmundurE. Kjart-
ansson, Jón Þ. Einarsson
og Bjarki Bjamason. Þeir
eru allir löggiltir endur-
skoðendur og reka fyrir-
tækið Löggiltir endur-
skoðendur Vestfjörðum
ehf., sem er með stöðvar
bæði í Bolungarvík og á
ísafirði.
Reiknistofan mun
áfram bjóða upp á tölvu-
vinnslu fjárhagsbókhalds
og undirbókhalds, svo
sem launaútreikning og
sölu- og viðskiptamanna-
bókhald. Einnigerætlun-
in að útvíkka starfsemina
frekar og bjóða tengingar
milli staða, þannig að
rekstraraðilar geti tengt
sig í gegnum gagnalínur
inn á tölvu Reiknistofn-
unar og unnið bókhald
sitt í fjarvinnslu. Þannig
mun Reiknistofan sjá um
uppfærslur og viðhald
hugbúnaðar og vélbúnað-
ar, auk þess að sjá um
öryggisafritun.
Að sögn hinna nýju
eigenda er verið að skoða
möguleika á því að fara
út í fjarvinnslu sérhæfðra
verkefna fyrir stofnanir
og fyrirtæki á landsvísu.
Umsjónarmaður Reikni-
stofunnar er Sigurjón K.
Sigurjónsson.
Vestfirðir
Snjóþyngsli
Mikil snjókoma var á
norðanverðumVestfjörð-
um síðari hluta síðustu
viku. Átta hús við Dísar-
land og Traðarland í Bol-
ungarvík voru rýmd
vegna snjóflóðahættu en
fólkið fékk að snúa heim
á laugardag.
Mörg snjóflóð féllu á
veginn milli Súðavíkur
og Isafjarðar en hins veg-
ar ekki á leiðina milli fsa-
fjarðar og Bolungarvíkur
svo orð sé á gerandi.
Fylkir Ágústsson, ræðis-
maður Dana á ísaftrði, kveikti
ljósin á jólatrénu frá Hróars-
keldu, vinabæ ísafjarðar í
Danmörku, síðdegis á laugar-
dag. Tréð stendur á Silfurtorgi
eins og í fyrra, en áður var
þessi árvissa jólagjöf frá vin-
um okkar í Danmörku jafnan
á Austurvelli.
Sunnukórinn og barnakór
sungu við jólatréð, Halldór
Halldórsson bæjarstjóri flutti
ávarp, jólasveinar voru á
kreiki og í lokin sungu við-
staddir saman Heims um ból.
Allmargir voru á Silfurtorgi
við þessa athöfn enda hófst
þar nokkru fyrr hin árlega torg-
sala Styrktarsjóðs Tónlistar-
skóla ísafjarðar, þar sem
boðið var upp á kakó, lummur
og laufabrauð og sitthvað
fleira.
Ýmsurn þótti fyrirvari at-
hafnarinnar við jólatréð nokk-
uð stuttur. Þegar blaðið leit-
aði á þriðjudag í síðustu viku
eftir upplýsingum á bæjar-
skrifstofu Isafjarðar og hjá
ræðismanni Dana um það
hvenær þessi athöfn yrði, lá
ekkert fyrir um það. Þau svör
fengust ein, að afar ósenni-
legt mætti telja, úr því að ekk-
ert hefði enn heyrst af þessu,
að athöfnin yrði fyrr en um
næstu helgi, þ.e. 11. eða 12.
desember. Hins vegar væri
þetta í höndum skóla- og
menningarfulltrúabæjarinsen
á bæjarskrifstofunni var sagt
að hann væri ekki við.
Samkvæmt heimildum
blaðsins barst ræðismanni til-
kynning um athöfnina með
minna en sólarhrings fyrirvara
og fyrirvari kóranna sem feng-
nir voru til að syngja vareinn-
ig öllu knappari en æskilegt
og eðlilegt getur talist. Einnig
verður að teljast heppilegt, ef
þess er á annað borð óskað að
almenningur sé viðstaddur at-
hafnir af þessu tagi, að fjöl-
miðlar fái að vita um þær og
geti sagt frá því hvenær þær
verði.
Fremur napurt var á Silfurtorgi á laugardag og um tíma
snjóaði all hressilega. Sigríður Ragnarsdóttir skólastjóri
Tónlistarskóla Isafjarðar (th) lét kuldann ekki hafa áhrif á
sig við sölustörfin.
Barnakór söng við athöfnina á Silfurtorgi ásamt félögum í
Sunnukórnum undir stjórn Margrétar Geirsdóttur.
frMOOO,'
m
Samvinnuferðir
Landsýn
Söluskrifstofa • Hafnarstræti 7
isafirði • Simi 456 5390
/// SAMKAUP
OPIÐ:
Virka daga
kl. 09 - 21
Laugardaga
kl. 10 - 18
Sunnudaga
kl. 12 - 18
U&/£ow/t(/
AUSTURVEGI 2 • SÍMI 456 5460
Vió
erum
ykkar
fólk
Dagíegar ferðir
til og frá Reykjavík
www.samskip.is
Sindragötu 11,400 ísafjörður,
sími 456 4000, fax 456 4009