Bæjarins besta


Bæjarins besta - 12.01.2000, Side 2

Bæjarins besta - 12.01.2000, Side 2
Flugleiðin milli Bíldudals og ísaflarðar Útgefandi: H-prent ehf. Sólgötu 9, 400 ísafjörður, sími 456 4560, fax 456 4564 Netfang prentsmiðju: hprent@bb.is Ritstjóri: Sigurjón J. Sigurðsson, sími 892 5362, netfang: bb@bb.is Blaðamaður: Hlynur Þór Magnússon, sími 862 1874, netfang: blm@bb.is Ljósmyndari: Halldór Sveinbjörnsson, sími 894 6125, netfang: halldor@bb.is Stafræn útgáfa: www.bb.is Eftirprentun, hljóðritun, notkun ljósmynda og annars efnis er óheimil nema heimilda sé getið- Hriktir í kyótakerfinu Dómur Héraðsdóms Vestfjarða í svonefndu Vatneyrar- máli féll líkt og öflug sprengja í byrjun síðasta árs þeirrar aldar, sem fært hefur fslendingum mestar framfarir og hag- sæld frá upphafi. Má með sanni segja að ekki hafi verið seinna vænna að hrikti almennilega í stoðum kvótakerfisins, sem mikill meirihluti þjóðarinnar er andvígur. Alþingi bar ekki gæfu til að taka með viðunandi hætti á fiskveiðistjórn- uninni eftir dóm Hæstaréttar í Valdimarsmálinu og lét sér nægja að plástra kerfið. A viðvaranir um frekari málarekstur var ekki hlustað. Niðurstaða Héraðsdóms Vestfjarða varðandi 7. gr. laga um fiskveiðistjórnun grundvallast á sömu forsendu og dómur Hæstaréttar um 5. gr. sömu laga, sem Valdimarsmálið snerist um. Um þann sáraeinfalda kjarna málsins, að ekki er verjandi með nokkrum hætti að ,,lögð [sé] fyrirfarandi tálmun við því, að drjúgur hluti landsmanna geti að öðrum skilyrðum uppfylltum, notið sama atvinnuréttar í sjávar- útvegi eða sambærilegrar hlutdeildar í þeirri sameign, sem nytjastofnar á íslands miðum eru. og þeir tiltölulega fáu einstaklingar eða lögaðilar, sem höfðu yfir að ráða skipum við veiðar í upphafi umræddra takmarkana á fiskveiðum," eins og segir í niðurstöðu Héraðsdómsins, sem vitnað er til í nánari umfjöllun blaðsins um Vatneyrarmálið. „Hvers vegna skyldu þeir, sem voru í fiskveiðum á tíma kvótasetningarinnar, eiga atvinnuréttindi og eignarrétt umfram aðra þegna þjóðfélagsins aldarfjórðungi síðar? Er ekki atvinnufrelsi einn af hornsteinum sjálfstæðisstefnunn- ar? A þá sá sem fyrr kemur meiri rétt en sá sem síðar fæðist?“ spyr leiðarahöfundur Voga, blaðs sjálfstæðismanna í Kópa-vogi, við áramót. Stórkarlalegar, misvísandi yfirlýsingar í kjölfar dóms Héraðsdóms Vestfjarða breyta engu um gildi dómsins og dæma sig sjálfar. Hæstiréttur á síðasta orðið. Því miður bendir allt til að stjórnvöld ætli að sitja aðgerðarlaus hjá þar til sú niðurstaða fæst. Það væru stór mistök. „Obreytt fisk- veiðistjórnarkerfi hefur runnið sitt skeið á enda. Það er að verða yfirgnæfandi hagsmunamál fyrir sjávarútveginn sjálf- an að leysa þær hörðu deilur, sem staðið hafa um fiskveiði- stjórnarkerfið í meira en áratug.“ Lokaorð leiðara Mbl. um Vatneyrarmálið. Það er sameiginlegt hagsmunamál allrar þjóðarinnar að helstu mein kvótakerfisins lendi undir hnífnum. Þá fyrst getum við vænst sátta. -s. h. OÐÐ VIKUNNAD Dornier Islandsflug mun næstu mánuði nota Dornier-flugvélar á leiðinni milli ísafjarðar og Bíldudals. Claudius Dornier var þýskur flugvélahönnuður, f. 1884. Arið 1911 smíðaði hann fyrstu flugvélina sem var öll úr málmi. I báðum heimsstyrjöldum notuðu Þjóðverjar vélar úr smiðju Dorniers. Eftir seinna stríðið var flugvélasmíði bönnuð í Þýskalandi og rak Dornier verksmiðju á Spáni til 1955 þegar hann mátti aftur fara að smíða vélar í heimalandi sínu. r Islandsflug flýgur þrisvar í viku Ríkiskaup f.h. samgöngu- ráðuneytisins hafa samið við Islandsflug urn að félagið ann- ist áætlunarflug milli Isafjarð- ar og Bíldudals næstu mánuði, eða frá 18. janúar til 7. maí í vor. Flug þetta var boðið út og sendu þrjú félög inn tilboð, sem opnuð voru í byrjun árs- ins. Samkvæmt samningnum verður flogið milli þessara staða þrisvar í viku, á þriðju- dögum, miðvikudögum og fímmtudögum kl. 10.30 frá Bíldudal og kl. 11.00 frá ísa- firði. Bókanir eru hjá umboði íslandsflugs á Bíldudal. Til þessa flugs mun íslands- flug nota vél af gerðinni Dorn- ier 228, sem er þýsk tveggja hreyfla skrúfuþota og tekur 19 farþega. Félagið á þrjár vélar af þessari gerð en þær eru háþekjur og henta vel fyrir stuttar flugbrautir og fjarða- landslag Lægsta tilboðið var frá ís- landsflugi, kr. 1.430.000. Mý- flug hf. bauð kr. 1.920.000 og Flugfélagið Jórvík hf. kr. 2.550 þúsund. Fyrir hverja aukalendingu á Patreksfjarð- arflugvelli þegar ófært er TILBOÐ í AKSTUR í afj arðarbær auglýsir eftir tilboðum í fólksflutninga á skíðasvæðin á í safirði. Allar frekari upplýsingar um ferða- fjölda, tímaáætlanir og æskilegan bún- að og stærð bifreiða liggja frammi á skrifstofu ísafjarðarbæjar í Stjórn- sýsluhúsinuáísafirði. Tilboðin verða opnuð fimmtudaginn 20. janúar 2000 kl. 11:00 í fundarsal bæjarstjórnar. Rétturer áskilinntil að taka hvaða tilboði sem er eða hafna Iöllum. ísafirði, 12. janúar 2000. Bæjarstjórinn í Isafjarðarbæ. landleiðina milli Bíldudals og Patreksfjarðar bauð íslands- flug kr. 10 þúsund en hin fé- lögin kr. 15 þúsund hvort. Frávikstilboð barst frá Flug- félaginu Jórvík, þar sem mið- að var við Patreksfjarðarflug- völl í stað Bíldudalsflugvallar og hljóðaði það upp á kr. 1.780 þúsund. Landsmót UMFÍ 2004 Tvær umsóknir frá Vestfjördum Héraðssamband Bolung- arvíkur og Héraðssamband Vestur-ísfirðinga eru meðal þeirra sem sækja um að halda 24. Landsmót UMFÍ árið 2004, en umsóknar- frestur er nýliðinn. Ekki munu allar umsóknir enn hafa borist skrifstofu UMFÍ en samkvæmt heimildum blaðsins munu Keflvíkingar og Skagfirðingar einnig sækjast eftir að halda mótið. Umsóknir verða lagðar fram á stjórnarfundi UMFI síðustu helgina í þessum mánuði og verða í framhaldi af því kannaðar aðstæður til mótshalds á hverjum stað og annað sem máli þykir skipta. Landsmót UMFI hefur aldrei verið haldið á Vestfjörðum. Ekki virðist óeðlilegt eða óskynsamlegt við fyrstu sýn, að Vestur- ísfirðingar og Bolvíkingar sameinist um að halda myndarlegt landsmót á norðanverðum Vestfjörðum. Körfuboltinn Þrír heimaleikir Tíðarfarið hefur sett strik í leikjatöflu KFÍ og hefur leikj- um félagsins verið frestað hvað eftir annað, nú síðast vegna óveðurs sunnanlands. Heintaleikurinn við KR í Epsondeildinni sem frestað var hefur verið ákveðinn nk. sunnudag kl. 20. Kvennaliðið tekur hins vegar á móti ÍS- stúlkum á föstudag kl. 20 og laugardag kl. 13.30. Allir þessir leikir skipta miklu fyrir KFÍ-liðin enda hefur einkum gangurinn hjákarlaliðinu ekki verið sem skyldi í vetur. Blaðið leitaði eftir fyrstu yiðbrögðum n kvótamáli í atneyrar BA, sem kveðini Pétur Bjarnason, varaþing- maður Frjálslynda flokksins Alþíngí verður að bregðast við „Mér finnst þessi dómur mjög gleðilegur, fyrst og fremst vegna þess að hann undirstrikar nauðsyn þess að tekið verði á kvótakerf- inu. Eg lít svo á að Alþingi kornist ekki hjá því að bregðast við þeim skilaboð- um sem komu frá Hæsta- rétti fyrir meira en ári. Enda þótt dómurinn hafi í því til- viki einskorðað sig við 5. grein laganna um stjórn ftsk- veiða, þá er hér urn bæði 5. og 7. grein að ræða“, sagði Pétur Bjarnason. „Jafnframt vil ég gjarna koma því á framfæri, að mað- ur getur ekki annað en verið hneykslaður yftr þeim hroka sem lýsir sér í ummælum bæði sjávarútvegsráðherra og for- sætisráðherra um þessi mál.“ Ingimar Halldórsson, formaður Útvegsmannafélags Vestflarða Ástæða til að hafa áhyggjur „Ef þessi niðurstaða verð- ur staðfest fyrir Hæstarétti, þá er allt í uppnámi, bæði kvótakerfið og stöðugleik- inn í þjóðfélaginu", sagði Ingimar Halldórsson. -Telurðu að útvegsmenn hafi almenntáhyggjurafþví að þessi niðurstaða verði staðfest þar? „Já, og það er full ástæða til að hafa áhyggjur af því.“ - Hvað gera menn ef málalokin verða þessi? „Það er ekki gott að segja lngimar Halldórsson. á þessari stundu. Fyrst er að sjá hvernig ríkisvaldið muni bregðast við.“ 2 MIÐVIKUDAGUR 12. JANÚAR 2000

x

Bæjarins besta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.