Bæjarins besta


Bæjarins besta - 13.09.2000, Side 8

Bæjarins besta - 13.09.2000, Side 8
Opiðbréf til sveitarstjórnarmanna á Vestfjörðum Skoðið hug ykkar varð- andi Orkubú Vestfjarða Heiðruðu sveitarstjórnar- menn á Vestfjörðum. Fyrir rúmum 20 árum var það mikið kappsmál hjá þáverandi sveit- arstjórnarmönnum og öðrum Vestfirðingum, að fá í eigin hendur forræði yfír orkumál- um fjórðungsins, og upp úr því var Orkubú Vestfjarða stofnað. Þó að síðan þá hafí margt verið ámælisvert í stjórn fyrirtækisins og oft hafi gnauðað um það og starfs- menn þess, bæði í eiginlegum og óeiginlegum skilningi, þá held ég að í heildina séð hafi stofnun fyrirtækisins og for- ræði okkar Vestfirðinga á þessum málaflokki verið okk- ur til góðs. Því fmnst mér, bæði sem gömlum starfsmanni og íbúa hér á Vestfjörðum, alveg grát- legt ef þið ætlið nú á þessum umbrotatímum í orkumálum landsins að fara að selja hlut okkar Vestfirðinga í fyrirtæk- inu. Er svo sorfið að sveitar- félögunum í peningamálum, að eina leiðin er að selja Orku- búið? Eru það félagslegar íbúðir sem eru að sliga sveitar- félögin? Ef svo er, þá er það skammgóður vermir að selja Orkubúið.Til hverseraðeign- ast íbúðir sem enginn vill búa í, í stað þess að eiga fyrirtæki sem með með styrkri stjórn og bættum rekstri mun í fram- tíðinni skila eigendum sínum arði? Og gerir það nú, því að gjaldskrá Orkubúsins er ein- hverjum prósentum lægri en Rarik og það er hagur eigend- anna, þ.e. okkar. Nú heyrist meðal manna að breyta eigi félaginu í hlutafé- lag, síðan muni ríkið kaupa hlut sveitarfélaganna smátt og smátt eftir því sem þau vantar peninga og að síðustu muni ríkið steypa Orkubúinu og Rarik saman, í anda samein- ingar og hagræðingar. Ef mál þróast á þennan hátt, þá mun- um við tapa úr fjórðungnum a.m.k. fjórtán störfum. Þar á ég við nánast öll störf sem nú í dag eru unnin á Stakkanesinu á Isafirði. Tæknideild og fjár- máladeild verður lokað og það þýðir ekkert að láta sig drey ma um eitthvað annað. Ef gefin verða loforð um einhverja vinnu í stað þeirra mun það aðeins verða um stundarsakir. Seinna meir mun sökum óhagræðis ekki vera talið hagkvæmt að vinna störfin hér fyrir vestan, heldur í hinum væntanlegu höfuðstöðvum Rarik á Akureyri. Því bið ég ykkur: Skoðið ykkar hug, athugið hvort ekki er hægt að nota fyrirtækið og styrk þess til að efla atvinnulíf í fjórðungnum. Af hverju er t.d. ekki ráðist af alvöru í Glámuvirkjunina? Fyrirtækið yrði að sjálfsögðu skuldsett í ei nh vern tíma en þetta skapaði vinnu á meðan á framkvæmd- um stæði og skilaði stóraukn- um tekjum á eftir. Við yrðum sjálfum okkur nægir með raf- magn og næðum að selja orku úr þessari auðlind okkar. Að síðustu óska ég Orku- búinu alls hins besta í framtíð- inni og vona að það eigi glæsta framtíð fyrir sér - í höndum okkar Vestfirðinga. - Henrý Bœringsson, fyrr- verandi starfsmaður OV og einn afþeim sem langar til að búa áfram á Vestfjörðum. HAUSTLAUKARNIR SRU KOMNIft! ^íottcn dCómdUMZOdin ocz áenf Fyrirþá sem vilja dekra svolftið við sina bað- og nuddoliur Blómahornið Herbs Hafnargata 46-415 Bolungaróík Sími 456 7021 Opið á virkum dögum frá kl. 13-18 og á laugardögum frá kl. 13-16 Golfmót Finnur og Kristínn sigruðu Kristinn Þ. Kristjánsson og Finnur Magnússon sigruðu á Gná-Pizza'67 mótinu í golfi sem laukásunnudag. Kristinn sigraði án forgjafar og Finnur með forgjöf. Með forgjöf fór Finnur hol- urnar 36 á 132 höggum, annar varð Sveinbjörn Ragnarsson á 141 höggi og þriðji varð Kristinn Þ. Kristjánsson á 142 höggum. An forgjafar fór Kristinn holurnará 155 högg- um, annar varð Magnús Gísla- son á 167 og þriðji varð Birkir Sverrisson á 174 höggum. ?' ÍSAFJARÐARBÆR HLUTASTARF VIÐ DÆGRADVÖL Óskum eftir að ráða starfsmann í hlutastarf við Dægradvöl þ.e. lengda viðveru fyrir nemendur í 1. og 2.bekk og athvarf fyrir nemendur utan Isa- fjarðar. Um er að ræða 40% starf frá kl. 10:00 til 15:00dagleganemaföstu- dagatilkl. 14:00. Æskilegterað um- sækjendurhafi uppeldismenntuneða farsælareynsluafvinnumeðbömum. Nánari upplýsingar veitir skólastjóri Grunnskólans á Isafirði í síma 456 3044. Skólastjóri. Heilbrigðisstdfnunin r IsAFJARÐARB Æ Augnlæknir á ísafirði Augnlæknirverðurstarfandi á Heilsugæslu- stöðinni á ísafirði vikuna 18.-22. september nk. Tímapantanir eru í síma 450 4500 alla virka daga frá kl. 08:00 til 16:00. Afinælisþakkir Hjartanlegar þakkirfæri ég öllum þeim fjöl- mörgu sem glöddu mig með heimsóknum, blómum, gjöfum ogskeytum á 80 ára afmæl- isdaginn minn 1. september og gerðu mér daginn ógleymanlegan. Guð blessi ykkur öll. Ingólfur Þorleifsson, Bolungarvík. Geri&t áslerifendur í símn 456 4566 Er ísafjarðarbær að einangrast? Vart fer framhjá nokkrum manni, sem á annað borð fylgist með, að Vest- áður mun auðveldari en innan Vestfjarðakjördæmis 1959. Ekkerl heyrist um Netspurningin fjarðakjördæmi í núverandi mynd líður senn undir lok. Vestfirðir hafa verið eitt fimm alþingismanna kjördæmi síðan 1959 eða í rúm fjörutíu ár. Nú hafa Vesturlands-, Vestfjarðakjördæmi og Norðurland vestra verið sameinuð í Norðvesturkjördæmi, sem þannig tekur við af þremur landsbyggðarkjördæm- um. Ein undantekning er þar á, sem er sú, að Siglufjörður mun hverfa til Norðausturskjördæmis. Síst skal þessi skipan löstuð hér. Einmitt á þessum vettvangi, í þessum dálki, var hugmyndin um þessa skipan sett fram í fyrsta sinn fyrir nokkrum árum. En þá fylgdi því sú hugmynd og ætlan að unnið yrði markvisst að því að tryggja stöðu Vestfjarða ^ innan hins nýja kjördæmis.Alþingismenn Sjálfstæðisflokks í nýjakjördæminu eru þegar byrjaðir að ræða sín mál ásamt forystumönnum hinna hverfandi kjördæmisráða. Það vekur athygli að í stað fimmtán alþingismanna nú verða þeir aðeins tíu eftir næstu kosningar, sem verða ekki síðar en árið 2003. Núverandi þingmenn munu því ekki komast allir að á nýjan leik, sem fulltrúar núverandi kjósenda. Hvernig þau mál leysast mun tíminn leiða í ljós. Hvernig munu sveitarfélög bregðast við breyttu umhverfi? Alþingismenn, sem gæta hagsmuna þeirra, verða færri. Að sögn Einars K. Guðfinnssonar alþingismanns mun nefnd hafa skilað þeirri tillögu, að þeir fái hver um sig aðstoðarmann heima f kjördæmi. Ferðalög munu aukast, en verða samt sem ðtakkur skrifar viðbrögð sveitarstjórnanna. Þó hefur verið rætt nokkuð um samstarf sveitar- félaga. Ekkert hefur þó sést eða heyrst opinberlega um tillögur eða hugmyndir. Eitt hefur þó vakið athygli. Það er sú breyting, sem varð þegar Skólaskri fstofa Vestfjarða var lögð niður og Skóla- og fjölskylduskrifstofa ísafjarðarbæjar sett á fót, en hún var formlega opnuð 25. ágúst síðast liðinn. Sú ósk er sett hér fram að hin nýja skrifstofa megi þjóna íbúum og skólum ísafjarðarbæjar vel á næstu áratugum og árum. Enn er ekki komið í ljós hvort aðrir hyggjast leita þjónustu hennar. Forverinn þjónaði öllum Vestfirðingum. Obbinn af sveitarfélögum sem áður notuðu þjónustu Skóla- skrifstofu Vestfjarða hefur snúið sér annað. Vonandi snúa þau aftur. I nýju, stærra og fjölmennara kjördæmi skiptir staða ísafjarðarbæjar og ísafjarðar miklu. Afar mikilvægt hefði verið að geta boðið enn fleiri sveitarfélögum og skólum þjónustu, færa út kvíarnar frekar en taka ákvarðanir, sem virðast færa íbúa norðanverðra Vestfjarða út á kant einangrunar. ísa- fjarðarbær er vissulega með fjölmennustu sveitarfélögum innan hins nýja kjördæmis. En brýnt er að sækja fram á sviði þjónustu og viðskipta með minnkandi umsvifum í sjávarútvegi. Viðbragða Fjórðungssambands Vestfirð- inga er nú beðið. Spurt var: Ertu búdn að kynna þér nýju kjör- dæmaskip- anina? Alls svöruðti 212. Já sögðu 47 eða 22,17% Nei sögðu 165 eða 77,83% Netspumingin er birt viku- lega á bb.is og þar geta lesendur látið skoöun sína I ijós. Aðeins er tekið við einu svari frá hverri tölvu. Niðurstöðurnar eru síðan birtar hér. Stakkur hefur ritað vikulega pistla íBœjarins besta í mörg ár. Skoðanir hans á mönnum og málefnum hafa oft verið umdeildar og vakið umrœður. Þœr þurfa alls ekki að fara saman við skoðanir útgefenda blaðsins. Þrátt fyrir það bera ábyrgðarmenn blaðsins ábyrgð á skrifum Stakks á meðan hann notar dulnefni sitt. 8 MIÐVIKUDAGUR 13. SEPTEMBER 2000

x

Bæjarins besta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.