Bæjarins besta


Bæjarins besta - 13.09.2000, Síða 10

Bæjarins besta - 13.09.2000, Síða 10
Hnífsdælingar! Núerkom- Ið að okkar árlegu Hnifs- dalsgleði. Mætum öll í Hlégarð í Mosfellsúæ 23. september. Til sölu er Volvo turbo árg. 82.Uppl. ísíma699 0541. í kjölfartiltektar erýmls hljómflutnlngsbúnaður og borðtennisborð til sölu í félagsmiðstöðinni á ísa- firði. Búnaðurinn er í mis- jöfnuástandi. Upplýsingar í síma 456 3808. Óska eftir ísskáp, ódýrt eða gefins. Uppl. í símum 456 3747 og 895 9241. Óska eftir2-3jaherb. íbúð í Bolungarvík. Má vera Htið hús. Einnig er óskað eftir húsgögnum, eldhúsborði, stólum, sófasetti, þvottavél og hjónarúmi lýrir lítinn pening eða gefins. Upplýs- ingar í síma 456 7161 og 866 6496. Til sölu eða leigu erSkóla- stígur 19, neðri hæð í Bol- ungarvík. Upplýsingar í síma 462 7499. Til sölu er BMW 320iárg. 1989. Upplýsingar í síma 862 1854. Til sölu er nýleg Belitronic tölvufæravinda, lítið not- uð. Verðtilhoð. Uppl. í síma 456 3517 og 862 6064. Uppskeruliátíð Boltafé- lags ísaflarðar verður hald- innlaugardaginn 16.sept. kl. 14 í Félagsheimilinu í Hnífsdal. Veittar verða viðurkenningar til krakka og knattspyrnukona og knattspyrnumaður BI 2000 valin. Kýnnt verður æfingartafla vetrarins. Til leigu er 2ja herb. íhúð á ísafirði. Uppl. í símum 456 4212 og 893 1769. Hestur til sölu, sex vetra gæðingsefni, Faðir: Hrafh 802 fráHoltsmúla. Móðir: Snælda 87.2.58-001. MF: Ófeigur 882frá Flugumýri. Uppl. í símum 456 8254 og 895 4115. Til sölu er þvottavél og hjónarúm. Uppl. í síma 456 3541. Blak! Konur, nú er hlakið að heflast í íþróttáhúsinu að Torfnesi. Allar konur, jafnt ungar sem eldri eru hvattar til að koma ogprófa á þriðjudögum kl. 21:00 - 22:20 og á fimmtudögum kl. 19:40-21:20. Uppl. í símum 456 4647, 456 4332, 456 4546 og 456 4428. Skellur. Óska eftir ódýrumvinnu- bíl. Uppl. ísíma 456 4664. Stór og góðkoja með skrif- horði undir selst íyrir lít- inn pening. Upplýsingar í síma 456 4484. Sjálfstæð stelpa óskast til að gæta 4ra ára stráks þriðja hvern sunnudag og einstakakvöld. Upplýsing- ar í síma 456 7401. Til sölu er notaðurísskáp- ur í góðu ásigkomulagi. Verðkr. 5.000. Upplýsing- ar í síma 456 4132. Til leigu er 3jaherb. íbúð að Austurvegi 12. Laus strax. Uppl. í síma 456 4181 og 456 3343. Til sölu er lítið Pretonhjól- hýsi með fortjaldi. Uppl. í síma 456 4059. Vantarísskáp, eldhúsborð og stóla. Upplýsingar í síma 421 2467. Til sölu erFreestyle-hjól. Verð kr. 25 þús. (Kostaði 70 þús.). Upplýsingar í síma 869 5053. Til sölu er ITissan Micra \árg. 94. Uppl. 892 7135. J Aldraðlr og líkanisþjálfun - öldrun er breytilegt ferli Að eldast er nokkuð sem á eftir að liggja fyrir okkur öll- um. Öldruðum fjölgar og há- öldruðum mest og meðalævi- líkur hafa aukist það sem af er öldinni. Öldrun er óhjá- kvæmileg, óafturkræf en mjög breytileg og getur líkamlegt og andlegt ástand tveggja ein- staklinga á sama aldri verið mjög ólíkt. Margs konar sjúk- dómar, erfðir og umhverfis- þættir sem viðkomandi kemst í snertingu við á lífsleiðinni móta einstaklinginn. Er hægt að auka styrk og þol? Vöðvarýrnun fylgir hækk- andi aldri en hún er mismikil á milli einstaklinga og milli vöðvahópa. Fita og bandvefur aukast á kostnað vöðvanna og við vöðvarýrnunina verður kraftminnkun í vöðvanum. En aldraðir geta aukið vöðvastyrk sinn á sama hátt og þeir sem yngri eru og vöðvar þeirra bregðast við styrktarþjálfun á sama hátt með því að stækka. Þeir vöðvar sem sérlega mikil- vægt er að þjálfa eru stóru vöðvarnir í rassinum og lær- unum. Þessir vöðvar hafa mik- il áhrif á líkamsstöðu okkar og hjálpa til við að halda okkur uppréttum. Ef þeir slappast sígum við saman og verðum hokin. Þetta eru vöðvar sem við notum þegar við göngum upp og niður stiga og setjumst og stöndum upp úr stól. ímyndið ykkur hvað þessar athafnir yrðu erfiðar ef þessir vöðvar slöppuðust. Ef styrkurinn minnkaði um 50% væri það eins og að standa upp á öðrum fæti - og reynið nú. Þessa vöðva er hægt að þjálfa með því að standa upp úr stól nokkrum sinnum og nota stiga í staðinn fyrir lyftur. Aldraðir bregðast ekki bara vel við styrktarþjálfun heldur Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og langalangömmu Kristjönu Guðrúnar Jónsdóttur frá Botni í Súgandafirði Sérstakar þakkir til starfsfólks öldrunardeildar á Fjórðungssjúkrahúsinu á ísafirði Reynhildur Friðbertsdóttir Birkir Friðbertsson Guðrún F. Björnsdóttir Kristjana Friðbertsdóttir Hafsteinn Sigmundsson Kristín Friðbertsdóttir Baldur Árnason Ásta Björk Friðbertsdóttir Kjartan Þór Kjartansson barnabörn, tengdabörn og barnabarnabörn. 'Ttýýtfsi ýiéttin eUupCeyti www.bb.ls bregðast þeir líka vel við þol- þjálfun. Hún hefur góð áhrif á áhættuþætti hjarta- og æða- sjúkdóma en þeir eru algengir meðal aldraðra og þar er hreyf- ingarleysi stór þáttur. Að halda í getu til athafna daglegs lífs Hreyfingarleysi er þáttur sem hefur mikil neikvæð áhrif á starfræna færni aldraðra. Rannsóknir hafa sýnt að þeir sem halda áfram að hreyfa sig á efri árum eru líklegri til að halda í færni til athafna dag- legs lífs og innskrifast síður á hjúkrunarheimili og sjúkra- hús. Þeir halda þannig í sjálf- stæði sitt og lífsgæði. Þeir sem taka þátt í tóm- stundastarfi á yngri árum eru líklegri til að vera líkamlega virkir á eldri árum og leggja gott mat á heilsu sína. Það þykir benda til þess, að þeir sem venjast því að taka þátt í íþróttastarfi á yngri árum séu líklegri til að halda því áfram til fullorðinsára, þvíþeirþekki áhrifin sem íþróttir hafi á lík- ama og sál og kunni að meta þau. Því er mikilvægt að minna fólk á það strax í æsku, að finna sér tómstundir í ein- h vers konar hreyfingu, þ ví það getur haft áhrif á líkamlegt atgervi og lífsgæði á efri árum. Gaman saman Hvort sem útbúin er þjálf- unaráætlun fyrir ungling eða aldraðan þarf alltaf að hafa í Horfur á fimmtudag: Hæg breytileg átt og víða léttskýjað. Hiti 8-13 stig. Horfur á föstudag: Suðlæg átt og rigning um landið vestanvert en skýjað með köflum austantil. Fremur milt í veðri. huga, að þjálfunin sé skemmtileg og mynda góðan félagsskap til að tryggja að fólk haldi áfram að koma. Það þarf að aðstoða fólk að finna út hvaða þjálfun hentar best út frá áhugamálum þess og einnigefeinhverjirundirliggj- andi sjúkdómar eru til staðar, eins og t.d. slitgigt eða hjarta- sjúkdómar. Ymis konar að- ferðir er hægt að nota til að þjálfa sig, svo sem sund, sund- leikfimi, æfingar í sal undir stjóm þjálfara, æfingar í tækj- um, á hjóli og ýmsar tóm- stundaíþrótdr: Gönguferðir, hjólreiðar, gönguskíði, bad- minton, línudans, golf, boccia og margt fleira. Sjúkraþjálfarar hafa stjórn- að leikfimi á Hlíf undanfarin ár tvisvar í viku yfir veturinn. Þar eru gerðar æfingar í sal, farið í boltaleiki og boccia. Þátttakan hefur ávallt verið góð og leikfimin er öllum eldri borgurum opin. Líkamsþjálfun í einhverju formi hefur margvísleg áhrif til góðs, ekki bara til að auka styrk og þol. Líkamsþjálfun getur aukið beinþéttni hjá konum sem eru með bein- þynningu. Aukinn styrkur og liðleiki ásamt auknu jafnvægi og samhæfingu geta dregið úr hættu á byltum. Viðhorf til þjálfunar Viðhorf aldraðra til líkams- þjálfunar hefur mikið að segja um það, hvort þeir eru viljugir til að taka þátt í henni. Afi heldur sig of gamlan til að „standa í einhverju sprikli" og heldur að leikfimi sé eitt- hvað fyrir unga fólkið. Einnig geta viðhorf ættingja haft þar eitthvað að segja. Þeir sem eru neikvæðir vilja hafa lang- ömmu heima í ruggustólnum með prjónana og óttast að hún detti og lærbrotni ef hún hættir sér út að ganga. Ættingjarnir átta sig þá ekki á því, að með því að fara út að ganga getur amma styrkt bein og vöðva og dregið þannig úr hættunni á að detta. En hinir jákvæðu heim- sækja ömmu og bjóða henni með sér í göngutúr. Líklegt er þó að þetta sé að breytast, því að þeir sem eru núna að kom- ast á miðjan aldur hafa margir hverjir tileinkað sér boðskap heilsueflingar og tekið upp heilbrigða lífshætti sem þeir halda í til efri áranna. Þær venjur sem fólk kemur sér upp á yngri árum fylgja því oftast fram á efri árin. Þeir sem byrja að hreyfa sig á yngri árum halda því oftast áfram til full- orðinsára og halda sér þannig í betra formi en þeir sem byrja ekki að hreyfa sig fyrr en á fullorðinsárum eða byrja jafnvel aldrei á því. Fjölmarg- ar rannsóknir sýna, að aldraðir bregðast eins vel við þjálfun og þeir sem yngri eru og því ætti ekki að líta á öldrun sem óbreytanlegan feril niður á við. Munið! Við eigum skrokk og það er aldrei of seint að byrja að hlú að honum. Veórið nœstu daga Á laugardag: Breytileg átt, vætusamt og lítið eitt kólnandi veður. Á sunnudag: Breytileg átt, vætusamt og lítið eitt kólnandi veður. Á mánudag: Breytileg átt, vætusamt og lítið eitt kólnandi veður. Veðurspá gerð af Veðurstofu íslands 11. september kl. 08:30. 10 MIÐVIKUDAGUR 13. SEPTEMBER 2000

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.