Bæjarins besta


Bæjarins besta - 13.09.2000, Blaðsíða 12

Bæjarins besta - 13.09.2000, Blaðsíða 12
Tveir karlmenn handteknir Med flkniefni i fórum sínum Aðfaranótt Iaugardags handtók lögreglan á Isafirði tvo karlmenn, annan á þrí- tugsaldri og hinn á fertugs- aldri, vegna gruns urn að þeir væru með fíkniefni í fórum sínum. Mennirnir, sem báðir eru búsettir í Isafjarðarbæ, voru að koma akandi frá Reykja- vík og voru þeir stöðvaðir í Arnarfirði. Leit var gerð í bifreiðinni auk þess sem framkvæmdar voru húsleit- ir á heimilum þeirra. Þar fundust bæði fíkniefni og áhöld tengd slíkri neyslu eða tæp 8 grömrn af ætluðu am- fetamíni og u.þ.b. 3 grömm af kannabisefnum. Mennirnir gistu fanga- geymslur lögreglunnar meðan á rannsókn málsins stóð. Málið verður sent lög- reglustjóra til meðferðar innan tíðar. Við aðgerðirnar naut lögreglan á Isafirði að- stoðarsérþjálfaðs fíkniefna- leitarhunds lögreglunnar í Bolungarvík. Breytingar á félagsformi og eignarhaldi OV í athugun Orkubúí Vestflarða breytt í hlutafélag? Eigendur Orkubús Vest- fjarða taka síðar í haust af- stöðu til hugmynda um breyt- ingar á félagsformi og eignar- haldi á fyrirtækinu. Víst má telja að lagt verði fram til sam- þykktar eða synjunar, hvort OV verði breytt úr sameignar- félagi í hlutafélag, óháð því hvort einstök sveitarfélög vilja áfram eiga sinn hlut í fyrirtækinu eða selja hann. Þá gæti hvert sveitarfélag fyrir sig ráðstafað sínum hlut að vild en svo er ekki nú. Ríkissjóður á nú 40% í OV en sveitarfélög á Vestfjörðum 60%. Viðræðunefndir beggja aðila vinna að undirbúningi málsins og lýkur honum í þessum mánuði eins og nú horfir. Jafnframt vinna nefndirnar að því að búa til „verðmiða“ á fyrirtækið, ef til þess kæmi að rrkissjóður vildi kaupa allan eignarhlut sveitarfélaganna, eins og hugmyndir hafa verið um á liðnum árum, eða hlut einstakra sveitarfélaga ef fyr- irtækið yrði gert að hlutafé- lagi. Synjun frá einu sveitar- félagi er nægileg til að ekki verði af breytingu OV íhluta- félag. Hins vegar má telja fremur ósennilegt að einhver sveitarstjórn setji stólinn fyrir dyrnar, ef vilji til hlutafélags- væðingar reynist almennur. Frá fundi Félags lögfrœðinga á Vestfjörðum. Erlingur Sigtryggsson héraðsdómari og lögmennirnir Arnar G. Hinriksson, Björn Jóhannesson og Tryggvi Guðmundsson. Vestfírskir lögfræðingar skora á dómsmálaráðherra Héraðsdómur Vestfjarða fái viðuiiandi húsnæði - ákærðir, vitni og skikkjuverur voma á stigapallinum á dómþingum Flugvöllur Kalla þurfti til lögreglu Manni á miðjum aldri var neitað um flugfar frá Isafirði á sunnudag vegna ölvunar. Maðurinn hafði kornið með flugi frá Reykjavík fyrr um daginn og var að mati flugfreyju heldur ódæll. Þótti því óvarlegt að hleypa mann- inum um borð í vélina aftur, þar sem hann hafði augljóslega hvergi slegið afdrykkjunni umdaginn. Maðurinn tók synjun- inni illa og fór í leyfis- leysi inn á skrifstofu flug- félagsins og jós fúkyrð- um yfir áhafnarmeðlimi sem þar voru staddir. Fór svo að kalla þurfti til lög- reglu, þar eð maðurinn sinnti illa tilmælum starfsmanna félagsins. Að sögn Finnboga Sveinbjörnssonar, starfs- rnanns FI, koma atvik af þessu tagi upp einstaka sinnum. „Það gerist ekki oft að kalla þurfi til lög- reglu. Þess þurfti þó í þetta skipti, því starfsfólk fékk ekki vinnufrið fyrir manninum“, sagði Finn- bogi. Engin kæra verður lögð fram vegna þessa máls. Húsnæði HéraðsdómsVest- fjarðaíStjórnsýsluhúsnæðinu á ísafirði telst bæði óhentugt og allsendis ófullnægjandi fyrirþá starfsemi sem þar skal fara fram. Félag lögfræðinga á Vestfjörðum hefur þess vegna sent dómsmálaráðherra eftirfarandi áskorun: „Fundur í Félagi lögfræð- inga á Vestfjörðum, haldinn á Isafirði föstudaginn 8. sept- ember 2000, skorar á dóms- málaráðherra að beita sér nú þegar fyrir þ ví að Héraðsdómi Vestfjarða verði fundið hús- næði er fullnægir og hæfir starfsemi dómsins." Askorun lögfræðinganna virðist eðlileg. Húsakynni Héraðsdóms Vestfjarða eru svo lítil og þröng, að óviðun- andi og jafnvel fáránlegt getur talist. Engin aðstaða er þar fyrir málsaðila og má heita hlálegt að sjá sakborninga, vitni og skikkjuklæddar per- sónur voma í traffíkinni á stigapalli út af plássleysi inn- an dyra meðan á réttarhöldum stendur. Hér sannast sá gamli brand- ari, að húsnæði sé of þröngt til að hægt sé að skipta um skoðun. Vegna þrengslanna hjáHéraðsdómi faraskoðana- skipti málsaðila iðulega fram í heyranda hljóði á stigapall- inum framan við dyrnar. Á sömu hæð eru m.a. skrif- stofur Sýslumannsins á Isa- ftrði og jafnan er mikil umferð fólks um húsið í hinar fjöl- mörgu stofnanir sem þar eru. Ekki þykir heldur trúverðugt í augum almennings, eftir að skilið hefur verið milli ákæru- valds og dómsvalds, að dóm- urinn skuli vera í holu við hliðina á glæsilegum skrif- stofum sýslumannsembættis- ins. Borgarferðir Haustferðir Kynnið ykkur vetrarferðirnar Vesturferðir |jÖ^ Aöalsirœli 7 Sími 456 5111 www. vesíurferdir. is vesturferdirfCiyeslurferdir.is Virka daga kl. 09 - 21 Laugardaga kl. 10 - 18 Sunnudaga kl. 12 - 18 SPRENGITILBOÐ Pantað - sótt: 16" með 2 áleggstegundum kr. 1.000,- Pantað - sent: 16" með 2 áleggstegundum, . ___ og 2i. coke kr i.49o,- Simi: 456 5525 Vertu stilltur Útvarp Apótek FM 101,0 w Opið daglega 14-18

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.