Bæjarins besta


Bæjarins besta - 27.09.2000, Síða 2

Bæjarins besta - 27.09.2000, Síða 2
Fjórðungsþing Vönduð dag- skrá helguð samgöngum Milli 50 og 60 manns sóttu 45. Fjórðungsþing Vestfirð- inga, sem haldið var í Súðavík um síðustu helgi. Þar af voru gestir í meirihluta. Segja má að fremur einmanalegt hefði verið á þinginu ef boðsgestir- nir hefðu ekki verið heldur eingöngu vestfirskir sveitar- stjórnarmenn. Dagskrá Fjórðungsþings var að þessu sinni helguð sam- göngumálum og bar vitni miklum metnaði. Framsögu- erindi voru fjölbreytt og yftr- leitt mjög áhugaverð og vel undirbúin, ekki síst inngangs- erindi samgönguráðherra, Sturlu Böðvarssonar, og er- indi Björns Davíðssonar hjá Snerpu á Isafirði um framtíð fjarskipta á Vestfjörðum. Aðstaða til þinghalds af þessu tagi er með ágætum í Súðavík. ísaljörður Sólveig Eggerz sýnir á sjúkrahúsinu Sýning á verkum Sólveigar Eggerz Pétursdóttur verður opnuð á Fjórðungssjúkrahús- inu á ísafirði á laugardag. Þar verða um 30 verk listakonunn- ar, bæði málverk og málaður rekaviður. Sólveig er komin talsvert á áttræðisaldur en læt- ur engan bilbug á sér finna í listinni. Asamt Sæmundi Valdimarssyni er hún frum- kvöðull í notkun rekaviðar til listsköpunar. Hún hefur haldið fjölmargar sýningar á verkum sínum, allt frá því að hún sýndi fyrst í Bogasal Þjóðminja- safnsins árið 1960. Verkin verða á göngum innan við anddyri sjúkrahúss- ins og stendur sýningin fram í miðjan október. Nýtt íbúðarhverfí „inni í fírði“ Framkvæm geta hafist í Hægt verður að hefja fram- kvæmdir á nýju byggingar- svæði inni í firði á Isafirði í vor. Þeir sem áhuga hafa á því að reisa sér einbýlishús eða raðhús á þessum stað geta sótt um lóðir hjá ísafjarðarbæ. Ekki hafa verið neinar íbúðar- húsabyggingar á nýju svæði á ísafirði í mörg ár eða frá því að hús voru byggð í Selja- landshverfi. Hér er um að ræða svæðið ina Ljónið. Elísabet Gunr dóttir arkitekt hefur skipulagsuppdrætti af 1 nýja hverfi. Einungis er að fá staðfestingu embí Skipulagsstjóra en ekk kunnugt um neina mein á því. „Núna getum við sag við höfum nóg af byggingar- lóðum", segir Halldór Hall- dórsson bæjarstjóri. „Við höf- Uppdráttur af hinu nýja íbúðarhverfi innan við Ljónið. um fengið nokkuð af fyrir- safna saman umsóknum enda bærinn fer í miklar fram- spurnum en nú viljum við er það nauðsynlegt áður en kvæmdir á svæðinu." Afmælishátíð á laugardaginn Hátíð í tilefni 30 ára af- mælis Menntaskólans á Isa- firði verður í íþróttahúsinu á Torfnesi á laugardag, 30. sept- ember, og hefst kl. 16. Hátíð- ina setur formaður skóla- nefndar, Ólafur Helgi Kjart- ansson, en síðan flytur Björn Bjarnason menntamálaráð- herra ávarp. Einar Jónatans- son í Bolungarvík, sem var í fyrsta nemendahópi skólans, flytur kveðju frá Hollvættum skólans. Ávarp núverandi nemenda flytur Pálína Jóhannsdóttir og Björn Teitsson skólameistari flytur stutt ágrip af sögu skól- ans.VigdísJakobsdóttir(nem- andi 1986-90) stjórnar leik- þætti nemenda og MÍ-kvart- ettinn (1984-86) syngur. Mar- grét Gunnarsdóttir úr fyrsta nemendahópnum leikur ein- leik á píanó og Jón Geir og Tumi Þór Jóhannssy nir (1992- 96) leika á trommur. Alhjúpað verður merki skólans, sem Högni Sigurþórsson hefur hannað. Að dagskránni lokinni verða léttar veitingar í boði, m.a. framreiddar af nemend- um á matartæknibraut. Allir eru velkomniráafmælishátíð- ina. Afmæli Menntaskólans á ísafirði verða gerð sérstök skil í Bæjarins besta í næstu viku. Fólk veit lítiðumFV Um 88% þeirra sem svör- uðu netspurningu BB í síð- ustu viku segjast vita Iítið eða ekkert um Fjórðungs- samband Vestfirðinga og starf þess (sjábls. 10). Þetta kemur e.t.v. ekki mjög á óvart enda hefur hið mikla starf þess um áratugi að miklu leyti verið unnið á bak við tjöldin. ÁsgeirÞór Jónsson, fram- kvæmdastjóri FV, segir að væntanlega verði reynt að bregðast við þessu. Hins vegar bíði hinnar nýkjömu stjórnar að ákveða það. Hann bendir reyndar á, að kannaniraf þessu tagi stand- ist naumast vísindakröfur. Það er rétt enda er ekki lagt upp með slíkt. Hins vegar gefa niðurstöður úr þessum könnunum vissulega ein- hverjar vísbendingar. Bókasafnið á ísafírði Breyttur tuni Vetraropnunartími bóka- safnsins hefur tekur gildi. Tíminn hefur verið færður framogverðurkl. 14-20 alla virka daga en kl. 15-17 á laugardögum. Með lengri opnunartíma er t.d. verið að koma til móts við aukna símenntun almennings og fjarnám á háskólastigi. Bókasafnið býður líka upp á afþreyingu og nú er til allgott safn hljóðbóka til út- Iáns fyrir almenning. Sögu- stundir hefjast í október og verða kl. 15 á miðvikudög- um. Annasöm helgi Atvinnuvegasýningin, hin þriðja á ísafirði sem haldin hefur verið til að vekja at- hygli ástöðu iðnaðarogatvinnu á Vestfjörðum, aðþessu sinni undirkjörorðinu „Sól nýrra daga“, tókst með miklum ágætum. Líkt og fyrri sýningar bar hún órækt vitni um að vestur á fjörðum er ekki bara margt að ske heldur einnig ýmislegt merkilegt. Sýning af þessu tagi er hvatning til okkar um að láta ekki deigan síga heldur halda ótrauð áfram í þeirri varnarbaráttu sem landsbyggðin stendur í. Sýningin var fjölsótt og má að skaðlausu túlka það sem áhuga almennings og samstöðu um það sem hér er að gerast. Hið sama var ekki uppi á teningnum hjá Fjórðungssambandi Vestfirðinga, sem þingaði í Súðavík um helgina. Þingið var illa sótt. Það hlýtur að teljast alvarlegt mál þegar bæjarfulltrúar, sem tekið hafa að sér störf í þágu sveitarfélaga og íbúa þeirra, mega ekki vera að því að taka þátt í störfum Fjórðungssambandsins. Þannig sáu fjórir bæjarfulltrúar K-listans, minnihlutans í bæjarstjórn ísafjarðarbæjar, sér ekki fært að sækja þingið sökum annara starfa og kvittuðu fyrir með snubbóttri yfirlýsingu þar sem þeir fólu formanni bæjarráðs að fara með atkvæði þeirra á þinginu, „með ósk um að málefnaflutningur þingsins verði Vestfirðingum til framdráttar um ókomna framtíð“. Samgöngur voru meðal þeirra mála sem ráð var fyrir gert að yrðu í fyrirrúmi á þinginu. Ekki er ólíklegt að þingstaður hafi einhverju ráðið um áskorun þingsins til samgönguráðherra um öryggi á þjóðveginn inilli ísafjarðar og Súðavíkur. í ályktun þingsins um þetta segir m.a.: „í slíkri athugun verði leitast við að nálgast sem best kostnað við nauðsynleg öryggismannvirki svo sem vegskála, gerð vegskápa, varnir til að hindra grjóthrun, lýsingu á veginum og aðrar lagfæringar, sem þarf til að tryggja öryggi og samgöngur á leiðinni. Þá verði einnig gerð athugun á möguleikum þess að bora jarðgöng á þessari leið og kostnaður við þessar aðgerðir borinn saman. (Leturbr.BB). Samþykkt af þessu tagi er dæmigerð fyrir stjórnmálamenn. Eftir orðalengingar, sem innst er ætlast til að ekki séu teknar alvarlega, er loks komist að kjarna málsins. Þurfum við alltaf að vera að finna upp hjólið? Vegskálar, vegskápar, girðingar! Nægir ekki reynslan af Bolungarvíkurveginum? Og hví biðja menn bara um saman- burð á stofnkostnaði? Hvað með viðhald og rekstur? Hvers vegna einbeitum við okkur ekki að besta kostinum í stað þess að benda út og suður á lausnir, sem við sjálf treystum ekki lengur og vitum að eru ekki varan- legar? s.h. Frá útgefendum: Umboðs- aðilar BB Eftirtaldir einstaklingar sjá um sölu og dreifingu á BB á þétt- býlisstöðum utan ísafjarðar: Bolungarvík: Nikólfna Þor- valdsdóttir, Hjallastræti 38, sími 456 7441. Súðavík: Sindri V. Gunnarsson, Holtagötu 11, sími 456 4982. Suöureyri: Deborah Anne Ólafsson, Aðal- götu 20, sími 891 7738. Flat- eyri: Gunnhildur Brynjólfsdótt- ir, Brimnesvegi 12a, sími 456 7752. Þingeyri: Valdís Bára Kristjánsdóttir, Hlíðargötu 43, sími 456 8263. Útgefandi: H-prent ehf. Sólgötu 9, 400 ísafjörður, sími 456 4560, fax 456 4564 • Netfang prentsmiðju: hprent@bb.is • Ritstjóri: Sigurjón J. Sigurðsson, sími 892 5362, netfang: bb@bb.is • Blaðamenn:Hlynur Þór Magnússon, sími 456 7322, netfang: blm@bb.is og Hólfdón Bjarki Hólfdönsson, sími 863 7655, netfang: halfdan@bb.is • Ljósmyndari: Halldór Sveinbjörnsson, sími 894 6125, netfang: halldor@bb.is • Stafrœn útgáfa: www.bb.is • Lausasöluverð er kr. 200 eintakið m. vsk. • Áskriftarverð er kr. 170 eintakið m. vsk. • Veittur er afslöttur til elli- og örorkulífeyrisþega. Einnig sé greitt með greiðslukorti • Eftirprentun, hljóðritun, notkun Ijósmynda og annars efnis er óheimil nema heimildar sé getið. 2 MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2000

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.