Bæjarins besta - 27.09.2000, Side 5
útlanda. Ef flutt er á bílum
til Reykjavíkur fer varan þar
í skip og til útlanda. Reykja-
víkurhöfn fær því þau hafn-
ar- og vörugjöld sem Isa-
fjarðarhöfn fengi annars.
Vegna þessa er ég þess
fullviss, að ákvörðun Sam-
skipa um að flytja allar
vörur um Reykjavíkurhöfn
sé ísafírði síst til framdrátt-
ar. Þvert á móti verði hún til
þess að draga úr tekjurn
þeirra mannvirkja sem eru á
höfninni á Isafirði. Þar að
auki stuðla landflutningar að
því að meira er flutt út af
ferskum fiski, sem svo aftur
dregur úr atvinnu á svæðinu,
því að aflinn fer hálfunninn í
burtu.“
Jagúarinn
Athygli vakti þegar
Tryggvi fékk til bæjarins
forláta Jagúar-bifreið frá
árinu 1976. „Ég hef alltaf
verið með bíladellu og
keypti bílinn þess vegna.
Hann hefur reyndar verið
inni í skúr mest allan tímann
því að það er ekkert grín að
fá varahluti í þessa bíla. Það
þarf að senda hiutina út til
Bretlands og láta endur-
byggja þá.“
En á næsta ári verður
Jagúarinn 25 ára og telst þá
vera orðinn fornbíll og
verður vonandi aftur á göt-
um Isafjarðar næsta sumar.
Á mótorbát til
Skandinavíu
Nú er Tryggvi búinn að
selja Eimskipum afgreiðslu
sína og er að flytja til
Reykjavíkur. Hann segist
ekki vera sestur í helgan
stein en óákveðið sé með
framhaldið. Eitt er þó ljóst:
„Ég fer ekki að vinna sams-
konar störf í bráð. Ég er
búinn að vera að þessu allt
of lengi og held að það sé
kominn tími til að skipta um
starf og umhverfi.
Ég ætla að byrja á því að
taka mér gott frí. Ég hef
alltaf haft mikinn áhuga á
siglingum. Þannig átti ég
ásamt fimm öðrum skútu í
Miðjarðarhafi í tólf ár. Ég á
öflugan 34ra feta mótorbát
og ætlunin er að sigla hon-
um við Skandinavíu næsta
sumar. Svo er aldrei að vita
hvað maður gerir í framtíð-
inni.“
Fjarkennslubunaður í Menntaskólamim á ísafírði
Fræðslumiðstöð Vest-
fjarða kaupir búnaðinn
„loksins nú“ sér fyrir endann á málinu
Nú liggur fyrir uppkast að
samkomulagi um kaup á fjar-
fundabúnaði þeim, sem settur
var upp í Menntaskólanum á
Isafirði fyrir tveimur árum. Þá
var gerður „skammtímasamn-
ingur“ um að Fjórðungssam-
band Vestfirðinga hefði milli-
göngu um útvegun búnaðarins
vegna fjarkennslu sem þá var
að fara af stað í skólanum.
I þessu skyni tók sambandið
bankalán fyrir öllu kaupverð-
inu, eða upp á þrjár milljónir
króna. Síðan var ætlunin að
menntakerfið gengi inn í
kaupin með einhverjum hætti
og leysti Fjórðungssambandið
undan láninu „innan mjög
skamms tíma“ en af því varð
ekki.
Fráþessu vandræðamáli var
greint hér í blaðinu í byrjun
þessa mánaðar. Fram kom í
skýrslu stjórnar á Fjórðungs-
þingi um helgina, að „loksins
nú sér fyrir endann“ á þessu
máli með því að Fræðslumið-
stöð Vestfjarða hefur boðist
til að kaupa búnaðinn.
Islandsmeistarar í karla- og kvennaflokki í sjóstangaveiði,
Sigríður Kjartansdóttir og Pétur Sigurðsson.
íslandsmótið í sjóstangaveiði
ísfirðtngar eignast
Islandsmeistara
Signður Kjartansdóttir varð
fyrst félaga í Sjóstangaveiði-
félagi Isfirðinga til að verða
Islandsmeistari í kvenna-
flokki í sjóstangaveiði og þar
með fyrsti Vestfirðingur sem
sæmdarheitið hefur hlotið.
Sigríður hlaut alls 765 stig,
og veiddi alls 2.036 fiska sem
vógu 3.298 kg. Hún tók þátt í
öllumkeppnismótumsumars-
ins sem haldin voru víðsvegar
um landið.
Keppendur í þessum mót-
um voru hátt í fj ögur hundruð.
Þess má gera að Sigríður varð
næst aflahæsti veiðimaðurinn
á árinu og þá eru karlkyns
veiðimenn taldir með. Arið í
ár var annað árið sem Sigríður
keppir sem fullgildur kepp-
andi í sjóstangaveiði.
Húsafríðunar-
nefnd ríkisins
Húsafriðunatsjóður
Húsafríðunarnefnd ríkisins auglýsireftirum-
sóknum til Húsafriðunarsjóðs, sbr. ákvæði í
47. gr. þjóðminjalaga þarsem segir: ,,Hiut-
verk Húsafriðunarsjóðs er að veita styrki til
viðhalds og endurbóta á friðuðum húsum og
mannvirkjum. Heimilt erað veita styrki til við-
halds annarra húsa en friðaðra, sem að
dómi Húsafriðunarnefndar hafa menningar-
sögulegt eða listrænt gildi. “
Veittireru styrkir til að greiða hluta kostnaðar
vegna:
1. Undirbúnings framkvæmda, áætlana-
gerðar og tæknilegrar ráðgjafar.
2. Framkvæmda til viðhalds og endurbóta.
3. Byggingarsögulegra rannsókna og útgáfu
þeirra.
4. Húsakannanna.
Að gefnu tilefni er hlutaðeigendum bent á
að leita eftiráliti Húsafriðunarnefndar ríkisins
og sækja um styrk áður en framkvæmdir
hefjast.
Umsóknirskulu berast eigi síðaren 1. des-
ember2000 til Húsafriðunarnefndarríkisins,
Lyngási 7, 210 Garðabæ, á umsóknareyðu-
blöðum sem þar fást. Eyðublöðin verða
póstlögð til þeirra sem þess óska.
Frekari upplýsingar eru veittar í síma 530
2260 miiii kl. 10:30 og 12:00 virka daga.
Húsafriðunarnefnd ríkisins.
Söngfólk!
Leit stendur yfir að söngfólki í allar raddir
til að syngja við messur og aðrar athafnir í
ísafjarðarkirkju. Athygli ervakin á þvíað ungt
fólk (unglingar og eldri) eru sérstaklega vel-
komnir að kynna sér starfsemina og jafnvel
sníða sína eigin stundatöflu.
Söngstarfið þarf ekki að vera meira bindandi
en viðkomandi hefur vilja til. Söngæfingar
fara fram í ísafjarðarkirkju (gengið inn Sól-
götumegin) á fimmtudagskvöldum kl. 20.
Allar nánari upplýsingar gefur kórstjóri,
Hulda Bragadóttir í símum 456 3135 eða
456 3560.
Fundnir skíðaklossar auglýstir í BB
í góðu standi
• • •• r
efiir sjo ar
Halldór Antonsson húsasmíðameistari á fsafirði er
vel settur með skófatnað urn þessar mundir. Að minnsta
kosti hvað skíðaklossa varðar. Enn eru þó væntanlega
langur tími þangað til skíðafæri verður gott á
útivistarsvæðum ísfirðinga.
I smáauglýsingum Bæjarins besta í síðustu viku var tilkynnt
að skíðaklossar hefðu fundist við snjósleðaleiðina upp á
Þverfjall. Tegund: Salomon í Kastle-poka. Halldór kannaðist við
málið, því að hann týndi klossunum á þessu svæði fyrir sjö árum.
Þetta reyndust vera klossarnir hans - í prýðilegu ásigkomulagi.
Pokinn var hins vegar orðinn lasinn eftir þessa löngu útivist.
Fundarstaðurinn er afar veðrasamur og Þverfjall er þekkt fyrir illviðri
og harðviðri á vetrum.
Hinir skilvísu finnendur voru starfsmenn í línuflokki Orkubús
Vestfjarða, en þeir eiga margar ferðir um hálendi Vestfjarða, jafnt
sumar sem vetur. Ekki hvarflaði annað að þeim en þessir prýðilegu
klossar hefðu týnst þarna í vor.
Halldór Antonsson með annan klossann.
Körfuknattleikur
Þrír útlend-
ingar leika
með KFÍ
Stjórn KFÍ hefr gengið frá
samningi við írska miðherj-
ann Steve Ryan um að leika
með liðinu á komandi keppn-
istímabili.
Þar með eru útlendingarnir
orðnir þrír í liði KFÍ en fyrir
skömmu var gengið frá ráðn-
ingu Bandaríkjamannsins
Dwayne Fontana og í æfinga-
ferð liðsins til Danmörku fyrir
stuttu bættist Júgóslavinn
Branislav Dragoljovic í hóp-
inn.
íkvöld, frákl. 18:20verður
opið hús hjá KFÍ í íþrótta-
húsinu áTorfnesi þar sem starf
félagsins verður kynnt.
ísafjarðarbær
Skortur á
dagmæðrum
Öll pláss á leikskólum ísa-
fjarðarbæjar eru fullnýtt. Auk
þess er mikið um fyrirspurnir
um dagmæður.
Engar starfandi dagmæður
með leyfi eru á skrá hjá Skóla-
og fjölskylduskrifstofu Isa-
fjarðarbæjar.
ísaQarðarbær
Bæjarfulltrú-
ar áfram níu
Við síðari umræðu um nýja
bæjarmálasamþykkt ísafjarð-
arbæjar í síðustu viku drógu
bæjarfulltrúamir Þorsteinn Jó-
hannesson og Sigurður R. Ól-
afsson til baka tillögu sína
um fækkun í bæjarstjórn Isa-
fjarðarbæjar úr níu bæjarfull-
trúum í sjö. Tillöguna lögðu
þeir fram við fyrri umræðu
þremur.
Ný bæjarmálasamþykkt
Isafjarðarbæjar var samþykkt
að lokinni síðari umræðu með
níu samhljóða atkvæðum.
Engar brey tingar urðu á henni
frá fyrri umræðu.
ísafjarðarbær
Hrefnan reri
annan hvern
dag að jafnaði
Á nýliðnu fiskveiðiári var
33.797 tonnum af afla úr
5.813 róðrum landað í höfnum
Isafjarðarbæjar. Flesta róðra
eða 173 átti Hrefnan á Suður-
eyri. Það merkir að báturinn
hafi róið nærfellt annan hvern
dag að jafnaði. Jafnframt voru
langflestar landanir á Suður-
eyri eða 2.292. Á Flateyri voru
þær 1.382, áísafirði 1.287 og
á Þingeyri 852.
Mestum afla var landað á
Isafirði eða 19.412 tonnum.
Á Suðureyri var landað 5.453
tonnum, á Flateyri 5.282 tonn-
um og á Þingeyri 3.650 tonn-
um.
MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2000
5