Bæjarins besta


Bæjarins besta - 27.09.2000, Side 6

Bæjarins besta - 27.09.2000, Side 6
Noregsferð starfsmanna á Heilbrigðisstofnuninni ísafjarðarbæ „14 damer og to mannfoIku í heimsókn á Túnsbergi Sextán starfsmenn Heilbrigðisstofn- s unarinnar Isafjarðarbæ - fjórtán kon- ur og tveir karlar - lögðu þann 7. september sl. upp í fræðslu- og kynn- s isferð til vinabæjar Isafjarðar, Töns- berg í Noregi, eins og greint var frá hér í blaðinu.. Ferðasaga fjórtán- menninganna fer hér á eftir. s som han - feg tror jeg har nok fil á rig- - Vi lager en liten marKermg oo kroner- ge opp en fuiit utstytt forret- i forretnítigene i dag, sier Stur- s fuiltkjer- ning síik den var i 50-árene, sier iaMysen. seet og an- hverdag og cal de blant kehuset, og se. lESCHti to mannfotk mderdcnne enpábeseki %forástude- uiefc’-ogðm- ** ivirksomhet. Þessi mynd af hópnum - „14 damer og to mannfolk“ - birtist með frétt í dagblaðinu Tons- bergs Blad. Fréttin hefst með þessum orðum: Fjorten damer som alle heter noe som slutt- er pá dottir sammen med to mannfolk sem heter noe som slutter pá son er pá besok i Tons- berg. Da skjonner inan at det er islendinger som har vendt tilbake til sine forfœdres hjern- Flogið var með Atlanta til Kaupmannahafnar og þaðan ekið um nýju Eyrarsunds- brúnayfirtil Svíþjóðarog svo sem Ieið lá upp til Tönsberg. Þangað var komið síðla kvölds og búið um sig í 5 „hyttum“ sem við höfðum til umráða þann tíma sem við dvöldumst þar. Tengiliður okkar í Tönsberg var Erla Jónsdóttir en hún starfar sem félagsráðgjafi og sérkennari í sveitarfélaginu. Hennarþáttur var mikill og góður og lagði hún sig fram um að allt væri sem best skipulagt fyrir okkur og verður að segja að það tæk- ist vel. Bæði stóðust vel allar tímaáætlanir og svo var okkur hvarvetna vel tekið og þeir sem voru okkur til leiðsagnar áhugasamir um að við fengj- um að vita sem flest. Með gjafir að heiman Til að sýna lit á þakklæti okkar færðum við fram gjafir frá heimalandi okkar. Stofn- ununum sem við heimsóttum færðum við leirmuni sem bún- ir eru til af listakonum á Flat- eyri, Erlu færðum við hand- smíðað hálsmen með íslensk- um fjörusteinum eftir Dýr- finnu og bæjarstjórinn veitti viðtöku f.h. Tönsbergbæjar málaðri fjöl eftir listakonuna Sólveigu Eggerz Pétursdóttur. Föstudaginn 8. september var dagurinn tekinn snemma og klukkan 9 vorum við komin að ráðhúsinu. Þar var hlýlega tekið á móti okkur af bæjar- stjóranum, Hans Kristian Hogsnes, og henni Önnu Mettu, en hún var okkur til halds og trausts meiri hluta dagsins. Eftir móttökuna var farið á Midtlökken, sem er íbúða- og þjónustumiðstöð fyrir aldraða. Þar hlýddum við á fyrirlestra um norska heil- brigðiskerfið, áætlanir fyrir hjúkrun og umönnun í sveit- arfélaginu, öldrunarþjónustu, búsetu- og húsnæðisþjónustu. Ekki sjónvarp... Eftir fyrirlestrana gengum við svo um húsið og skoðuð- um aðstöðuna. Ibúðirnar eru nokkuð rúmgóðar og bjartar, stofa, svefnherbergi, eldhús og bað og auk þess góðar sval- ir. Hægt er að fá afnot af auka- herbergjum fyrir gesti en þau eru sameiginleg fyrir allar íbúðimar. Ibúðirnareru leigð- ar út og er leigan 35 þúsund íslenskar krónur og eru öll húsnæðisgjöld innifalin þeirri tölu. Sameiginlegardagstofur eru á hverri hæð fyrir íbúðirnar og eru þær án sjónvarps til að ýta undirað fólk sitji að spjalli og hafi meiri samskipti hvert við annað. Tería er í húsinu og hægt að fara þangað til að borða og ekki þarf að panta fy rirfram .Valerumýmsa rétti, vín er á boðstólum og hægt að fá matinn sendan í íbúðir- nar og einnig fyrir gesti sem að garði ber. Vinnustofa er á Mitlökken, sem bæði þjónar íbúunum þar og einnig þeim sem búa út í bæ og koma margir þangað daglega. Þar er margvísleg handavinna, smíðastofa og einnig eldhús þar sem fólk er þjálfað í að sinna eldhúsverk- um og vera sjálfbjarga. Þegar við komum var verið að baka þessar líka dýrindis bollur og lagði ilminn um alla ganga. Það sem verið er að gera þama er ákveðið af þátttakendum sjálfum og ekki er neitt keypt inn af efni eða áhöldum nema að til standi að fara að nota það, svo það safnast ekki fyrir allskyns dót sem enginn vill vinna úr. Þarna er líka dálítil verslun sem selur handverk það sem framleitt er. Vinnu- stofan hefur á að skipa 4,6 stöðugildum. Sundlaug staðarins er mikið notuð og koma um 600 manns á viku í sund og æfingar í henni. Einnig er sjúkraþjálfun, iðjuþjálfun og talþjálfun. íbúar staðarins nota aðstöð- una í þjálfunarsal og sundlaug frjálst. Hársnyrtistofa, fót- snyrtistofa og læknastofur eru á Mitdlökken og nýttar af íbúum þar en þær eru þó ekki eingöngu fyrir þá, heldur einnig fyrir almenna íbúa í hverfinu. Þegar þessari yfir- ferð um húsið var lokið var komið hádegi og við snædd- um ágætan hádegisverð, smurbrauð, vínarbrauð og kaffi, í boði bæjarstjórnar- innar. Víngerð meðal haustverka Að þessu afstöðnu var farið undir leiðsögn Önnu Mettu á íbúða- og umönnunarheimilið Eik. Fyrst var þar skoðuð deild þar sem fjórar íbúðir voru í einingu. Ibúðirnar voru stofa, svefnherbergi og bað og síðan voru íbúar í þessum vistar- verum með sameiginlegt eld- hús og dagstofu. Þarna dvaldi fólk sem var nokkuð sjálf- bjarga en fékk þó talsverða hjálp við athafnir daglegs lífs. Allt er gert til að hafa þetta sem heimilislegast og íbúar hjálpa við matreiðslu eftir getu. A haustin er búin til sulta og saft, auk víngerðar sem þarna telst jafn sjálfsagður hlutur og taka upp kartöflur. Þvottur er þveginn fyrir íbúana en sumir geta straujað og gengið frá sínum þvotti. Mikið er þarna lagt upp úr tómstundastarfi. Söngur við gítarundirleik, spilað á spil, upplestur og fleira. Þægileg útiaðstaða er fyrir hendi og íbúamir taka ofurlítinn þátt í garðyrkjustörfum eftir getu og a.m.k. fylgjast með því sem er að gerast hverju sinni. Ætt- ingjar íbúa Eikar eru mikið með í ráðum og tvisvar á ári eru fundir með þeim og eiga ættingjarnir hver sinn fulltrúa meðal starfsmanna sem þeir geta snúið sér til með það sem þeini liggur á hjarta. Á Eik eru líka deildir fyrir lítt sjálfbjarga einstaklinga, heilabilaða, langveika og end- urhæfmgarsjúklinga. Endur- hæfingarsjúklingarnir koma frá sjúkrahúsum eftir t.d. bein- brot og eru á Eik í endurhæf- ingu í 2-3 vikur áður en þeir fara heim. Iðjuþjálfi kemur þarna tvisvar í viku og var auðheyrt á starfsfólki að það þótti fulllítið. Skýrt var tekið fram, að enginn væri sendur heim fyrr en hann hefði getu til. Þessar deildir hafa allar hver sína borðstofu og lítið eldhús en maturinn kemur að mestu leyti tilbúinn frá aðal- eldhúsinu. Ibúarogsjúklingar eru til aðstoðar við fram- reiðslu matarins eftir því sem þeir geta og flestir borða í borðstofunni en þeir veikustu fá matinn inn í sitt herbergi. Þama hafa allir rúmgott sér- herbergi og geta búið það per- sónulegum munum. Deildir- nar hafa hver sinn einkennislit sem er ríkjandi þar, t.d. á gólf- land... um, og er fatnaður starfs- manna í lit deildarinnar. Við hliðina á Eik er leik- skóli og koma börnin þaðan einu sinni í viku og skemmta fólkinu með söng og ýmsu skemmtilegu. Þetta hefur ver- ið mjög vinsælt bæði hjá börn- unurn og íbúum Eikar. Sambýli og félagsþjónusta Næst á dagskrá var að kynnast hvernig búið er að þroskaheftum í þessu samfé- lagi. Farið var á Bragerlia- sambýlið þar sem okkar fræð- ari varíslendingur.Njáll Helgi Jónsson, forstöðumaður sam- býlis og þroskaþjálfi. Hann tjáði okkur að stóru stofnanir- nar hefðu verið lagðar niður á árunum 1990-91 og þá hefði fólk flutt til sinnar heima- byggðar. Hins vegar hefði ekki gefist vel að færa búsetu þroskaheftra dreift út í bæ. Það hefði valdið mikilli fé- lagslegri einangrun þeirra og starfsfólk hefði einnig ein- angrast og gefist frekar upp í starfi. Nú væri þetta byggt þannig upp að þroskaheftir byggju margir í sama hverfi í séríbúðum. Þarna sem hann var að vinna voru 12 þroska- heftir í 12 íbúðum og fengu þá þjónustu sem þeir þurftu á að halda frá hópi starfsmanna sem þar var til staðar allan sólarhringinn og hafði eina íbúð til afnota. Þroskaheftir kaupa þessar íbúðir eða hafa þær á leigu og eru fjárhagslega sjálfstæðir. í þessu hverfi var ekki um að ræða að það væri eingöngu byggt þroskaheftum heldur er þetta hefðbundið íbúðahverfi. Þroskaheftir eru með 3-4 vinnustaði þar sem þeir framleiða ýmislegt og í bænum er síðan verslun sem selur framleiðsluna. Lokaheimsókn dagsins var í félagsþjónustu kirkjunnar. Þar fer fram merkilegt starf í þágu fíkniefnaneytenda sem að langmestum hluta er unnið ísjálíhoðavinnu. Þamaeropið til 21 á kvöldin og er boðið upp á heitan mat og kaffi sem kostar 100 íslenskar krónur. Það var að óskum þeirra sem þarna koma sem að gjald er tekið fyrir matinn en þeim finnst virðing sín meiri ef þeir borga fyrir sig. Heimilislausir geta fengið gistingu og hefur athvarfið 8 svefnpláss sem oftast eru fullnýtt og þarf oft að vísa frá. Þarna er einnig aðstaða til að þvo og þurrka föt og er það talsvert notað. Öll neysla vímuefna er bönnuð í húsinu og þegar komið er inn eru efni og áhöld afhent og geymd í læstum skáp þar til viðkomandi yfir- gefur svæðið en þá fær hann sitt „stöff ‘ afhent aftur. Þetta er ekki meðferðarstofnun heldur skjól.Við spurðum eftir því hvernig samstarfi við lög- reglu væri háttað og fengum að vita að báðir aðilar virtu starfsemi hins. Lögreglan virðir friðhelgi athvarfsins og athvarfið starfsemi lögreglu, þ.e. skýturekki skjólshúsi yfir brotamenn á flótta undan laganna vörðum. Á fimmtudagskvöldum er messa í tengslum við kvöld- matinn og er eins konar þungamiðja í vikustarfinu. Það eru milli 50 og 60 komur á dag í athvarfið en sumir koma oftar en einu sinni. Þessi kirkjudeild hefur einnig opna kapellu, Bryggjukapelluna, á einum mesta fjörstað í Töns- berg og getur fólk farið þangað inn og átt kyrrðarstund. Yfir 4000 gestir hafa komið þang- að í sumar. Á efri hæð kapell- unnar er rekið gallerí. Hreindýrasteik og rommegrot Þetta var nú orðinn ansi góður skammtur af stofnunum og starfsemi þeirra og var dag- skránni lokið þennan daginn. Ekki var hópurinn þó alveg útbrunninn og var farið út að borða á ágætu veitingahúsi, Bryggen, þar sem flestir fengu sérhreindýrasteik og þótti hún bragðast vel. Á laugardagsmorgun var fyrst af öllu farið og keypt eintak af dagblaði bæjarins. Þar var mynd af þessu mynd- arlega heilbrigðisstarfsfólki frá ísafjarðarbæ og dálítill greinarstúfur um heimsókn okkar. Þessu næst var haldið á Slottsfjellet þar sem snædd- ur var „römmegröt“ á Seter- kafeen og þó þessi þjóðlegi 6 MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2000

x

Bæjarins besta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.