Bæjarins besta


Bæjarins besta - 27.09.2000, Page 12

Bæjarins besta - 27.09.2000, Page 12
ISAFJARÐARBÆR BREYTING Á AÐALSKIPULAGI ÍSAFJARÐARBÆJAR 1989-2009 Bæjarstjórn Isafjarðarbæjar auglýsir hér með tillögu að breytingu á aðal- skipulagi ísafjarðarbæjar 1989-2009. Tillagan var auglýst og lá frammi til ky nningar á bæj arskrifstofu Isafj arðar- bæjar í Stjórnsýsluhúsinu frá 14. júní til 11. ágúst sl. Athugasemdafresturrann út25. ágúst og barst engin athugasemd við tillög- una. Breytingatillagan hefur verið send Skipulagsstofnun sem gerir til- lögu til umhverfisráðherra um lokaaf- greiðslu hennar. Þeir sem óska frekari upplýsinga um breytingatillöguna geta snúið sér til tæknideildarísafjarðarbæjar. Stefán Brynjólfsson, byggingarfulltrúi. | Bæjarins besta - vestfirski fréttamiðiUinn Fundarboö AðalfundurLitla Leikklúbbsins 2000 verður haldinn föstudaginn 29. septemberkl. 20:30 í Edinborgarhúsinu. Dagskrá: Reikningar félagsins 1999. Önnur fundarstörf samkvæmt lögum fé- lagsins. Stjórnin. A1 HARGREIÐSLUSTOFA SÍMI: 456 4442 Atvinna Okkur vantar hársnyrtinema. Þarf að vera stundvís, glaðvær, snyrtileg(ur) og áhuga- söm(samur) og geta byrjað fljótlega. Upplýsingar hjá Siggu Þrastar Fjórðimgsþing Vestfirðinga var haldið í íþróttahúsinu í Súðavík um síðustu lielgi. Afar léleg mæting á Fjórðungsþingi Vestfirðinga sem haldið var í Súðavík Áhugaleysi eða hvað? Eitt verður fundið sérstak- lega að annars ágætu Fjórð- ungsþingi Vestfirðinga, sem haldið var í Súðavík um síð- ustu helgi. Það er áhugaleysi og slæleg mæting vestfirskra sveitarstjórnarmanna. Seturétt á þinginu áttu allir þeir sem eiga sæti í sveitarstjórnum á Vestfjörðum eða samtals 68 manns. Af þeim sóttu 26 manns þingið. Þeir sem ekki mættu áttu þess kost að kveðja til varamenn sem eru jafn- margir og aðalmenn. Niður- ísaflörður Opnir stærð- fræðidagar Nú er alþjóðlegt ár stærðfræðinnar og Dagur stærðfræðinnar í íslensk- um skólum er í dag. 1 Grunnskólanum á ísafirði er hann „tekinn með trompi“ og dagurinn á morgun er þar líka helg- aður stærðfræðinni. Nemendur fá margvís- leg og óvenjuleg verkefni til viðfangs. Markmiðið er að vekja þá og aðra til umhugsunar um þá stað- reynd, að stærðfræði er fleira en beinn reikningur. Af þessu tilefni er skólinn öllum opinn þessa daga og fólk er hvatt til að koma og líta á það sem fram fer. Myndlistarsyning á sjúkrahúsinu Laugardaginn 30. september nk. mun Sólveig Eggerts Pétursdóttirí samvinnu við Heilbrigðisstofnunina, opna yfirlitssýningu á verkum sínum á göngum 1. hæðar sjúkrahúss og heilsugæslu á ísafirði. Um er að ræða vatnslitamyndir, krítar- myndir og rekaviðarmyndir sem Sólveig hefur unnið á undanförnum 2-3 árum. Sýningin stendur til loka október. Allt áhugafólk er velkomið að opnun- inni kl. 15:00 á laugardaginn. staðan er því sú, að einungis mættu á þingið 26 af 126 aðal- og varamönnum í vestfirskum sveitarstjórnum eða rétt um einn fimmti hluti. Spurningar hljóta að vakna hvort sveitar- stjórnir séu störfum sínum vaxnar þegar málum er svona komið. „Mér þykir alveg með ólík- indum hversu lítið sveitar- stjórnarmenn nýta sér þennan sameiginlega vettvang sinn og hvað þeir mæta illa“, sagði einn af þeim sem þingið sátu. „ Að nokkru leyti er þetta skilj- anlegt hvað varðar litla sveita- hreppa langt í burtu en allt öðru máli gegnir um kaup- staðina á norðanverðum Vest- fjörðum, hvað þá þegar þingið er haldið við bæjardyrnar hjá þeim.“ Sveitarfélög á Vestfjörðum eru 12 og kom enginn fulltrúi á þingið frá tjórum þeirra. Þar er um að ræða fámenna sveita- hreppa í Strandasýslu. Meðal skýringa má nefna, að þessa helgi voru miklar annir hjá bændum í smalamennsku og réttum. Sú afsökun dugar síð- ur í f safj arðarbæ, þar sem eng- inn fjögurra aðalfulltrúa minnihlutans mætti og enginn af fjórtán varamönnum. Minnihlutinn veitti aftur á móti einum af meirihlutafull- trúunum umboð sitt á þinginu. Enginn úr þriggja manna minnihluta í Bolungarvík mætti heldur og enginn af ell- efu varamönnum og engum var veitt umboð. Landsbankinii var ineð getraun ú Atvinnuvegasýningunni ú Isajirði unt helgina og múttu gestirgiska ú innihald sparibauks ú bús bankans. Alls tóku 517 inanns þúitt ígetr- auninni og komst Guðrún Sigríður Matthíasdóttir nœst réttri upphœð. I bauknum voru kr. 13.816 en tilgúta Guðrúnar var kr. 13.888. I verðlaun fékk hún kjörbók með jafnhúrri innistœðu og í bauknum var. A myndinni tekur hún við bókinni úr hendi Brynjólfs Þórs Brynjólfssonar, svœðisstjóra Landsbankans ú Vestfjörðum. Samningsbundið iönnám í matreiðslu Hefur hú áhnna á matreiðslu? • ••••••••• • ••••• Ert þú dugleg(ur), stundvís og reglusöm(samur)? Samningsbundið iðnnám í matreiðslu er fjögurra ára nám, verklegt og bóklegt þar sem verklegi hlutinn er tekinn á vinnustað og bóklegi hlutinn er þrjár annir í skóla (Matvælaskólinn í Kópavogi). Ef þú hefur áhuga, hafðu þá samband við Karl eða Snorra á Hótel ísafirði eða qqI* í síma 456 3360. Gamlar umsóknir óskast endurnýjaðar. 12 MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2000

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.