Dagfari - Oct 2016, Page 9

Dagfari - Oct 2016, Page 9
9 heldur gert hana verri. Þátttaka Íslands í innrás Bandaríkjanna í Írak 2003 og samþykki íslenskra stjórnvalda innan NATO á árásunum á Lýbíu 2011 hafa meðal annars stuðlað að því að ISIS samtökin urðu til. Píratar Þáttaka Íslands í stríðum á liðnum árum hefur ekki bætt stöðu heimsmála. Við tökum undir að árásarstríð síðustu ára hafi gert stöðu heimsmála verri. Samfylkingin Ísland er sem aðildarríki Sameinuðu þjóðanna bundið af ákvörðunum Öryggisráðsins sem teknar eru til að binda enda á þjóðarmorð, stríðsglæpi og hernaðarátök. Undir það falla aðgerðir í Afganistan og Líbíu og þátttaka Íslands í friðargæslu í Kósóvó. Það er villandi að segja að Ísland hafi tekið þátt í þeim stríðum, enda býr Ísland ekki yfir herliði. Samfylkingin var eindregið andvíg yfirlýsingu þáverandi ráðamanna um stuðning við einhliða árás á Írak árið 2003 enda var sú aðgerð ólögleg að alþjóðalögum og hefur ekki bætt stöðu heimsmálanna. Sjálfstæðisflokkurinn Villandi spurning. Ísland hefur ekki tekið þátt í stríðsátökum með neinum beinum hætti. Íslendingar hafa tekið þátt í borgaralegum verkefnum með samstarfsþjóðum, sem hafa miðað að því að byggja upp samfélög í kjölfar stríðsátaka. Viðreisn Ísland hefur ekki verið beinn aðili að neinum þessum átökum, þannig að hér er væntanlega verið að vísa í þátttöku Íslands í NATO. Ljóst er að hernaðaríhlutun hefur ávallt áhrif á þróun heimsmála. Þegar litið er til baka má segja að framkvæmd og eftirfylgni íhlutunar í umræddum löndum hefur að mörgu leyti verið ábótavant og þar hefði í mörgum tilfellum mátt gera betur. Það er þó ómögulegt að segja hvort staða heimsmála væri betri í dag ef ekki hefði verið brugðist við alvarlegri stöðu t.d. í Kosovo. Viðreisn leggur sérstaka áherslu á að vinna að friði og öryggi í heiminum í samstarfi við aðrar vestrænar lýðræðisþjóðir. Sérstök áhersla er lögð á ályktun öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna númer 1325 um konur, frið og öryggi í alþjóðasamstarfi.

x

Dagfari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagfari
https://timarit.is/publication/968

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.