Dagfari - okt. 2016, Síða 10
10
Vinstrihreyfingin - grænt framboð
Þau hafa gert hana verri. Það má sjá bæði af stöðu mála innanlands í
þessum ríkjum, þar sem í mörgum þeirra ríkir algjört upplausnarástand,
sem og fjölda flóttamanna í heiminum sem margir eru einmitt frá þessum
sömu ríkjum. Þá má ekki gleyma þeim fjölda saklausra borgara sem hafa
látið lífið í slíkum árásum.
Telur stjórnmálahreyfingin að Ísland ætti að axla
ábyrgð á þátttöku sinni í stríðsrekstri liðinna ára með
því að taka á móti fleira flóttafólki?
Alþýðufylkingin
Já, en það er ekki nóg að taka á móti fleirum, það þarf líka að gera það
betur ef vel á að fara. Ísland ætti líka að axla ábyrgð með því að draga
fyrrum ráðamenn fyrir rétt fyrir aðild þeirra að glæpum gegn mannkyni.
En umfram allt ætti Ísland að axla ábyrgð með því að beita sér framvegis
af alefli gegn heimsvaldastefnunni og fyrir friði í heiminum.
Björt framtíð
Tvímælalaust.
Dögun
Það hefur ekki verið nein umræða um þessa tengingu sem þið nefnið í
þessari spurning hjá okkur í Dögun.
Flokkur fólksins
Íslandi ber að standa við sínar alþjóðlegu skuldbindingar varðandi flóttafólk
Íslendingar ættu líka að skoða betur að senda hjálparstarfsmenn, búnað
og vistir á stríðshrjáð svæði og í flóttamannabúðir fólks sem hefur orðið
fyrir barðinu á hernaðarátökum sem við höfum því miður átt hlutdeild í og
að hluta sök á með samþykki okkar og meðvirkni.
Framsóknarflokkurinn
Framsóknarflokkurnn telur að ekki sé ástæða til að taka ákvarðanir um
aðstoð við flóttafólk með hliðsjón af fyrri ákvörðunum í utanríkismálum.
Ábyrgð Íslands, hvort sem hún er á grundvelli alþjóðlegra skuldbindinga