Dagfari - okt. 2016, Blaðsíða 18
18
Hverjir eru að spila?
Fjöldi áhugaverðra tónlistarmanna koma fram á Airwaves-
dagskránni í Friðarhúsi. Hér er örstutt lýsing á þeim svo allir ættu
að geta fundið eitthvað við sitt hæfi:
Andy Hates Us spilar tilraunakennda rokktónlist með áherslu á
kúnstuga texta og skemmtilega framkomu. Íslandsnördar frá þýska
Sviss.
Rökkva er frá Selfossi, spilar létta og kósý tónlist með píanóspili,
fiðlum og röddum.
I Am Soyuz. Felicia er sænskur trúbador frá Stokkhólmi sem spilar
melódíska tónlist.
John og félagar eru frá Denver Colorado. Hljómsveitin spilar í indý
þjóðlagageiranum og nýtir sér flóknar tilfinningaþrungnar melódíur.
Heiða trúbadúr / Ragnheiður Eiríksdóttir. Þekkt fyrir að syngja í
hinum ýmsu rokkböndum en er nú að þróa mýkri hlið trúbadorsins
með melódískri gítartónlist.
Ottoman er reykvískt rokkband sem eru þekkt fyrir öfluga
sviðsframkomu á hinum ýmsu tónlistarhátíðum.
Mr Shiraz frá Mið-Englandi eru vel þekktir fyrir líflega sviðsframkomu
og þrátt fyrir fáranleikann ætti að taka þetta rokkband alvarlega.
Man in between er spænskur trúbador sem spilað hefur víðs
vegar um Evrópu á götuhornum og börum.
Sacha Bernardson, er frönsk listakona sem býr á Íslandi og spilar
tilraunakennda popptónlist.