Hinsegin dagar í Reykjavík - aug. 2010, Síða 10

Hinsegin dagar í Reykjavík - aug. 2010, Síða 10
10 Það er ekki á hverri hátíð sem við bjóðum tvo af okkar ágætustu óperu- söngvurum velkomna á útitónleikana við Arnarhól 7. ágúst, en þar munu þeir Bergþór og Eyjólfur stilla saman raddir sínar í tvísöng. Bergþór Pálsson nam söng í Reykjavík og í Bandaríkjunum, en starfaði síðan um nokkurra ára skeið við óperuhús í Þýskalandi. Eftir heim- komuna 1991 hefur hann tekið mikinn þátt í íslensku tónlistarlífi og margar góðar minningar um óperusýn- ingar á Íslandi eru honum tengdar. Þá hefur hann haldið fjölda einsöngstónleika, sungið einsöng með Sinfóníuhljómsveit Íslands og komið fram með kórum. Bergþór er fleira til lista lagt en að flytja klassíska tón- list og hefur löngum þótt liðtækur í þeim efnum. Nægir þar að nefna samvinnu þeirra Helga Björnssonar við flutning léttra laga á Hótel Borg á sínum tíma sem seinna rataði á vinsæla plötu, Strákarnir á Borginni. Eyjólfur Eyjólfsson lætur þess gjarnan getið að fyrsta hlutverk hans á sviði hafi verið hundurinn Spakur í söngleiknum Kolrössu, og má hafa það til marks um fjölbreytta hæfileika söngvarans. En í alvöru talað, þá nam Eyjólfur flautuleik og söng í heimabæ sínum, Hafnarfirði, en stundaði síðan framhaldsnám í söng í London og á að baki glæsilegan feril sem ljóðasöngvari og óperusöngvari. Eyjólfur hefur nokkrum sinnum komið fram í Íslensku óperunni, nú síðast í hlutverki Beppe í I Pagliacci fyrir tveimur árum. Þá hefur hann tekið þátt í óperusýningum með nokkrum af virtustu óperuflokkum á Englandi, en býr nú í Hollandi þar sem hann starfar að list sinni. Two excellent opera singers will perform together at the Open Air Concert at Arnarhóll on Saturday 7 August. Bergþór Pálsson has been one of Iceland’s leading baritones for two decades, and has performed to great acclaim with the Icelandic Opera and the Iceland Symphony. He recently took on the role of Mr. Bumble in the National Theater’s production of the musical Oliver! Eyjólfur Eyjólfsson studied singing at London’s renowned Guildhall School of Music and Drama, and has performed widely in song recitals and operas, including the Icelandic Opera’s production of I Pagliacci. He now lives and works in the Netherlands. Opera Duo 10

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.