Hinsegin dagar í Reykjavík - ágú. 2010, Blaðsíða 40

Hinsegin dagar í Reykjavík - ágú. 2010, Blaðsíða 40
„Ég skellti mér bara með eftir tveggja vikna æfingar sumarið 2006 og síðan hef ég æft í hverri viku með félaginu,“ segir Alfreð, en hann er núverandi formaður styrmis. Félagið er heldur ekki lengur bara stráka- félag því nafninu var breytt fyrir nokkru í íþróttafélagið styrmi og stúlkurnar boðnar velkomnar. Þær eru ekki margar ennþá, en fjölgar vonandi í vetur, við viljum hafa þær sem flestar með okkur.“ En hvers vegna fótbolti? „ja, það er góð spurning,“ segir Alfreð, „því sjálfum fannst mér fótbolti alltaf hálfleiðinlegur, nennti ekki að horfa á hann í sjónvarpi og náði reyndar aldrei neinu sambandi við þessar venjulegu hópíþróttir. En þegar ég fór að spila með styrmi breyttist viðhorfið, og ég fór að sjá kostina við að æfa í hóp. Ég hafði stundað líkamsrækt í mörg ár og fannst það orðið frekar tilbreytingarlaust, það var svo einhæft. Þegar ég byrjaði í boltanum þá fann ég mig strax þar og hætti að puða í tækjunum. Þetta sameiginlega markmið, að spila í hóp og ná sambandi við aðra á vell- inum verður svo sterkt að maður gleymir sér og hleypur af sér spik á stuttum tíma. Engin fyrirhöfn bara skemmtun. sumir okkar hugsa þennan félagsskap sem leið til að halda sér í formi fram eftir aldri.“ ekki okkar metnaðarmál En hvað er svona sérstakt við hommabolt- ann? Það vefst ekki fyrir Alfreð að svara því: „Fyrst og fremst er það mórallinn, í okkar hópi leggjum við áherslu á að hafa stemn- inguna jákvæða og skemmtilega sem er ekki sjálfsagt. Ég hef tekið eftir því að óvanir íþróttamenn geta brugðist illa við ef verið er að skammast á fótboltavellinum og slíkar skammir ná oft ekki tilætluðum árangri. maður sér þetta stundum hjá öðrum ís- lenskum fótboltaliðum sem við spilum gegn. Það er ekki allra að svara slíkum öskrum á vellinum og ekki okkar metnaðarmál að menn læri það. líklegast voru það slíkar skammir sem réðu því að fótbolti var aldrei mitt uppáhald og ætli það sé ekki svo með fleiri homma. Það er að vissu leyti sorglegt því núna þykir okkur fótboltinn svo skemmti- legur að við getum varla misst úr æfingu! Og það sem er kannski ekki síður merkilegt, með okkur spila þó nokkrir gagnkynhneigðir strákar, sem ég tel að líði vel í okkar hópi.“ En í keppni þurfa menn stundum að öskra hátt til að ná saman og koma fram vilja sínum á vellinum. Alfreð neitar því ekki en bætir við: „Það er líka hægt að hrópa á jákvæðan hátt, því staðreyndin er sú að neikvæður tónn hefur alltaf neikvæð áhrif á fólk. Auðvitað gerist það stundum að menn gleyma sér og byrja að skammast, en þá tökum við þá afsíðis eftir æfingu og ræðum málin svo þeir skemmi ekki móralinn fyrir hinum. mottóið er að benda á það góða sem gert er áður en farið er að gagnrýna eða leiðbeina. Og þá hefur maður séð ótrúlegan árangur.“ esjugöngur, ballett og heitt jóga Umsvifin í styrmi hafa vaxið upp á síðkastið. Eftir að fótboltinn hafði fest sig í sessi var stofnuð sunddeild, síðan varð Sundlið Styrmis hefur verið sigursælt á erlendum sundmótum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.