Hinsegin dagar í Reykjavík - ágú. 2010, Blaðsíða 62

Hinsegin dagar í Reykjavík - ágú. 2010, Blaðsíða 62
 H I N S E G I N F é L A G A S A M T Ö K Á Í S L A N D I Hinsegin dagar í Reykjavík – Gay Pride www.gaypride.is Hinsegin dagar í Reykjavík – Gay Pride eru sjálfboðaliðasamtök sem árlega skipuleggja Hinsegin daga í Reykjavík aðra helgi í ágúst. Hinsegin dagar eru sjálfstæð félagasamtök, en ýmis önnur félög og hreyfingar samkynhneigðra, tvíkynhneigðra og transfólks eru félagar í Hinsegin dögum ásamt einstaklingum sem standa saman að skipulagi hátíðarinnar. Allir sem styðja markmið hátíðarinnar geta gerst félagar í Hinsegin dögum með því að greiða árgjaldið, 500 kr. Samtökin ´78 – félag hinsegin fólks á Íslandi www.samtokin78.is / skrifstofa@samtokin78.is samtökin ´78 eru elstu og stærstu samtök hinsegin fólks á íslandi og undir forystu þeirra hafa unnist miklir sigrar í mannréttindamálum á liðnum árum. markmið félagsins er tvíþætt: Að vinna að baráttu- og hagsmunamálum hinsegin fólks í því skyni að vinna því jafnrétti á við aðra á öllum sviðum þjóðlífsins, og að skapa félagslegan og menning- arlegan vettvang til þess að styrkja sjálfsvitund þess, samkennd og samstöðu um sérkenni sín. í miðstöð félagsins á laugavegi 3 starfar fólk að fræðslu og félagsráðgjöf og veitir aðstoð og ráðgjöf. Þar er einnig vandað og glæsilegt almenningsbókasafn með hinsegin efni, bókum, tímaritum og kvikmyndum. Trans-Ísland – félag transgender fólks á Íslandi http://groups.google.com/group/trans-is-frettabref trans-is-frettabref@googlegroups.com Transgender fólk er hinsegin að því leyti, að það breytir kynhlut- verki sínu meira eða minna, og skiptir jafnvel alveg um kynhlutverk, tímabundið eða varanlega. Transgender fólk getur verið gagnkyn- hneigt, samkynhneigt og allt þar á milli. Trans-ísland var stofnað árið 2007 og hefur að markmiði sínu að skapa transfólki og fjölskyldum þess menningarlegan vettvang og styrkja þannig sjálfsvitund þeirra, vinna að laga- og réttarbótum, auka fræðslu og eiga samstarf við sambærileg samtök hérlendis og erlendis. Fyrsta miðvikudag hvers mánaðar hittist Trans-ísland í félagsmiðstöð samtakanna ’78. KMK – Konur með konum www.kmk.is / kmk@kmk.is konur með konum, kmk, varð til sem grasrótarhreyfing lesbía fyrir rúmum áratug og hefur starfað síðan með nokkrum hléum. Tilgangurinn er ekki síst að efla sýnileika lesbía, styrkja samstöðu þeirra, gefa þeim tækifæri til að skemmta sér á eigin forsendum og kynnast öðrum í hópnum. stúlkurnar í kmk stunda íþróttir af kappi, einkum blak, og hafa keppt á alþjóðlegum leikum. Þá halda þær sumarhátíðir og bregða sér í útilegur og veiðiferðir þegar vel viðrar. MSC Ísland www.msc.is / msc@msc.is msC ísland var stofnað árið 1985. klúbburinn hefur sínar klæðareglur, leður, gúmmí-, einkennis- og gallaföt, og ástæðan er einfaldlega sú að félagarnir vilja hafa karlmenn karlmannlega klædda og þá heldur ýkt í þá áttina en hina. msC ísland hefur ferðamennsku og fyrir- greiðslu við erlenda ferðamenn beinlínis á stefnuskrá sinni og er aðili að Evrópusamtökunum ECmC, en þau hafa verið ein virkustu alþjóðasamtök samkynhneigðra um áratugi og lagt mikið af mörkum til baráttunnar fyrir stolti, sýnileika og samábyrgð. Íþróttafélagið Styrmir www.ststyrmir.is / ststyrmir@gmail.com íþróttafélagið styrmir var stofnað árið 2006 og er nú ein af blómleg- ustu grasrótarhreyfingum hinsegin fólks á íslandi. á vegum félagsins æfa konur og karlar sund, blak og fótbolta og boðið er upp á fjölmarga íþróttaviðburði í hverri viku. árlega tekur félagið þátt í íþróttamótum á erlendum vettvangi og hefur átt þar góðu gengi að fagna. Q – Félag hinsegin stúdenta www.queer.is Félag hinsegin stúdenta, Q, var stofnað í janúar 1999 af nokkrum stúdentum við Háskóla íslands. Það heldur uppi öflugu félagsstarfi meðal ungs fólks og hittist á Q-kvöldum í hverri viku í félagsmiðstöð samtakanna ´78. Eitt af markmiðum félagsins er að vera sýnilegt afl innan háskólasamfélagsins á íslandi og í forsvari þar þegar málefni hinsegin fólks ber á góma. Félagið tekur mikinn þátt í alþjóðlegu sam- starfi og er virkur þátttakandi í tveimur samtökum ungs hinsegin fólks í Evrópu, AnsO og IGlyO. Thanks to the Queer Community The queer comunity in Iceland has joined forces to celebrate Gay Pride 2010 with festivities in Reykjavík during the second weekend of August. We would like to thank six organizations and activity groups: the national Queer Organization of Iceland, samtökin ’78; The Association of Queer students, Q; the women’s group Women with Women, kmk; the transgender association Trans-Iceland; the leather men’s club msC Iceland; and styrmir sports Club. útgefandi: Hinsegin dagar í Reykjavík – Gay Pride Pósthólf 80 – 121 Reykjavík www.gaypride.is Ábyrgðarmaður: Heimir már Pétursson. hönnun: Tómas Hjálmarsson. forsíðumynd: Oddvar Örn Hjartarson. bolur hinsegin daga: G. davíð Terrazas ritstjórnarvinna: Þorvaldur kristinsson, árni Heimir Ingólfsson og ásta kristín Benediktsdóttir. Ljósmyndir: Geir Ragnarsson, katrín dögg Valsdóttir, linnea Ornstein, Ólafur k. magnússon og fleiri. auglýsingar: Eva maría Þórarinsdóttir, Heimir már Pétursson, jón sævar Baldvinsson, kristín sævarsdóttir og Þorvaldur kristinsson. Prentun: ísafoldarprentsmiðja hf. 62 Stjórn og samstarfsnefnd hinsegin daga í reykjavík Þau eru fjölmörg sem leggja hönd á plóg til að gera hátíð Hinsegin daga að veruleika á hverju ári. sum sýna þó meira úthald en önnur við undirbúninginn og vinna hörðum höndum í stjórn og samstarfsnefnd árið um kring, áður en kemur að fjögurra daga stórhátíð: í stjórn Hinsegin daga í Reykjavík árið 2010 sitja Þorvaldur kristinsson, forseti, kristín sævarsdóttir, ritari, jón sævar Baldvinsson, gjaldkeri, katrín jónsdóttir, erindreki, og Heimir már Pétursson, framkvæmdastjóri. Þeim til stuðnings, aðhalds og trausts starfar öflug sam- starfsnefnd að verkefnum ársins. Allir sem þess óska geta tekið sæti í samstarfsnefnd, þar þarf ekkert til nema góðan vilja og samstarfshug. Þau sem meðal annarra hafa komið að vinnu samstarfsnefndar í ár eru: Auður Halldórsdóttir, ásdís Þórhallsdóttir, ásta kristín Benediktsdóttir, Baldvin kári sveinbjörnsson, Birna Hrönn Björnsdóttir, davíð Terrazas, Elaine mcCrorie, Erlingur Óttar Thoroddsen, Eva maría Þórarinsdóttir, Eyjólfur karl Eyjólfsson, Guðmundur lárus, Heiðar Reyr ágústsson, Helga k. Bjarnadóttir, matthías matthíasson, Ragnar Ólason, sesselja maría mortensen, Valgerður Þ.E. Guðjónsdóttir, Valgerður Ægisdóttir, Vallý Helgadóttir og Þórarinn Þór. Allt þetta fólk tekur síðan forystu í ýmsum „deildum“ hátíðarinnar og ábyrgist meðal annars sölumál, fánaborgir, öryggi hátíðar- gesta, fjáröflun og auglýsingar, stjórn gleðigöngu, ritstjórn útgáfuefnis og rekstur þjónustumiðstöðvar svo fátt eitt sé nefnt. Þegar hátíðin nálgast kalla stjórn og samstarfsnefnd síðan á mikinn fjölda sjálfboðaliða sér til aðstoðar við að gera hátíðina sem glæsilegasta.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.