Hinsegin dagar í Reykjavík - aug. 2010, Síða 62
H I N S E G I N F é L A G A S A M T Ö K Á Í S L A N D I
Hinsegin dagar í Reykjavík – Gay Pride
www.gaypride.is
Hinsegin dagar í Reykjavík – Gay Pride eru sjálfboðaliðasamtök sem
árlega skipuleggja Hinsegin daga í Reykjavík aðra helgi í ágúst.
Hinsegin dagar eru sjálfstæð félagasamtök, en ýmis önnur félög og
hreyfingar samkynhneigðra, tvíkynhneigðra og transfólks eru félagar í
Hinsegin dögum ásamt einstaklingum sem standa saman að skipulagi
hátíðarinnar. Allir sem styðja markmið hátíðarinnar geta gerst félagar
í Hinsegin dögum með því að greiða árgjaldið, 500 kr.
Samtökin ´78 – félag hinsegin fólks á Íslandi
www.samtokin78.is / skrifstofa@samtokin78.is
samtökin ´78 eru elstu og stærstu samtök hinsegin fólks á íslandi og
undir forystu þeirra hafa unnist miklir sigrar í mannréttindamálum á
liðnum árum. markmið félagsins er tvíþætt: Að vinna að baráttu- og
hagsmunamálum hinsegin fólks í því skyni að vinna því jafnrétti á við
aðra á öllum sviðum þjóðlífsins, og að skapa félagslegan og menning-
arlegan vettvang til þess að styrkja sjálfsvitund þess, samkennd og
samstöðu um sérkenni sín. í miðstöð félagsins á laugavegi 3 starfar
fólk að fræðslu og félagsráðgjöf og veitir aðstoð og ráðgjöf. Þar er
einnig vandað og glæsilegt almenningsbókasafn með hinsegin efni,
bókum, tímaritum og kvikmyndum.
Trans-Ísland – félag transgender fólks á Íslandi
http://groups.google.com/group/trans-is-frettabref
trans-is-frettabref@googlegroups.com
Transgender fólk er hinsegin að því leyti, að það breytir kynhlut-
verki sínu meira eða minna, og skiptir jafnvel alveg um kynhlutverk,
tímabundið eða varanlega. Transgender fólk getur verið gagnkyn-
hneigt, samkynhneigt og allt þar á milli. Trans-ísland var stofnað árið
2007 og hefur að markmiði sínu að skapa transfólki og fjölskyldum
þess menningarlegan vettvang og styrkja þannig sjálfsvitund þeirra,
vinna að laga- og réttarbótum, auka fræðslu og eiga samstarf við
sambærileg samtök hérlendis og erlendis. Fyrsta miðvikudag hvers
mánaðar hittist Trans-ísland í félagsmiðstöð samtakanna ’78.
KMK – Konur með konum
www.kmk.is / kmk@kmk.is
konur með konum, kmk, varð til sem grasrótarhreyfing lesbía fyrir
rúmum áratug og hefur starfað síðan með nokkrum hléum. Tilgangurinn
er ekki síst að efla sýnileika lesbía, styrkja samstöðu þeirra, gefa þeim
tækifæri til að skemmta sér á eigin forsendum og kynnast öðrum í
hópnum. stúlkurnar í kmk stunda íþróttir af kappi, einkum blak, og
hafa keppt á alþjóðlegum leikum. Þá halda þær sumarhátíðir og bregða
sér í útilegur og veiðiferðir þegar vel viðrar.
MSC Ísland
www.msc.is / msc@msc.is
msC ísland var stofnað árið 1985. klúbburinn hefur sínar klæðareglur,
leður, gúmmí-, einkennis- og gallaföt, og ástæðan er einfaldlega sú
að félagarnir vilja hafa karlmenn karlmannlega klædda og þá heldur
ýkt í þá áttina en hina. msC ísland hefur ferðamennsku og fyrir-
greiðslu við erlenda ferðamenn beinlínis á stefnuskrá sinni og er
aðili að Evrópusamtökunum ECmC, en þau hafa verið ein virkustu
alþjóðasamtök samkynhneigðra um áratugi og lagt mikið af mörkum til
baráttunnar fyrir stolti, sýnileika og samábyrgð.
Íþróttafélagið Styrmir
www.ststyrmir.is / ststyrmir@gmail.com
íþróttafélagið styrmir var stofnað árið 2006 og er nú ein af blómleg-
ustu grasrótarhreyfingum hinsegin fólks á íslandi. á vegum félagsins
æfa konur og karlar sund, blak og fótbolta og boðið er upp á fjölmarga
íþróttaviðburði í hverri viku. árlega tekur félagið þátt í íþróttamótum á
erlendum vettvangi og hefur átt þar góðu gengi að fagna.
Q – Félag hinsegin stúdenta
www.queer.is
Félag hinsegin stúdenta, Q, var stofnað í janúar 1999 af nokkrum
stúdentum við Háskóla íslands. Það heldur uppi öflugu félagsstarfi
meðal ungs fólks og hittist á Q-kvöldum í hverri viku í félagsmiðstöð
samtakanna ´78. Eitt af markmiðum félagsins er að vera sýnilegt afl
innan háskólasamfélagsins á íslandi og í forsvari þar þegar málefni
hinsegin fólks ber á góma. Félagið tekur mikinn þátt í alþjóðlegu sam-
starfi og er virkur þátttakandi í tveimur samtökum ungs hinsegin fólks
í Evrópu, AnsO og IGlyO.
Thanks to the Queer Community
The queer comunity in Iceland has joined forces to celebrate Gay
Pride 2010 with festivities in Reykjavík during the second weekend
of August. We would like to thank six organizations and activity
groups: the national Queer Organization of Iceland, samtökin ’78; The
Association of Queer students, Q; the women’s group Women with
Women, kmk; the transgender association Trans-Iceland; the leather
men’s club msC Iceland; and styrmir sports Club.
útgefandi: Hinsegin dagar í Reykjavík – Gay Pride
Pósthólf 80 – 121 Reykjavík
www.gaypride.is
Ábyrgðarmaður: Heimir már Pétursson.
hönnun: Tómas Hjálmarsson.
forsíðumynd: Oddvar Örn Hjartarson.
bolur hinsegin daga: G. davíð Terrazas
ritstjórnarvinna: Þorvaldur kristinsson, árni Heimir Ingólfsson
og ásta kristín Benediktsdóttir.
Ljósmyndir: Geir Ragnarsson, katrín dögg Valsdóttir, linnea Ornstein,
Ólafur k. magnússon og fleiri.
auglýsingar: Eva maría Þórarinsdóttir, Heimir már Pétursson, jón
sævar Baldvinsson, kristín sævarsdóttir og Þorvaldur kristinsson.
Prentun: ísafoldarprentsmiðja hf.
62
Stjórn og samstarfsnefnd hinsegin daga í reykjavík
Þau eru fjölmörg sem leggja hönd á plóg til að gera hátíð
Hinsegin daga að veruleika á hverju ári. sum sýna þó meira
úthald en önnur við undirbúninginn og vinna hörðum höndum
í stjórn og samstarfsnefnd árið um kring, áður en kemur að
fjögurra daga stórhátíð:
í stjórn Hinsegin daga í Reykjavík árið 2010 sitja Þorvaldur
kristinsson, forseti, kristín sævarsdóttir, ritari, jón sævar
Baldvinsson, gjaldkeri, katrín jónsdóttir, erindreki, og Heimir
már Pétursson, framkvæmdastjóri.
Þeim til stuðnings, aðhalds og trausts starfar öflug sam-
starfsnefnd að verkefnum ársins. Allir sem þess óska geta
tekið sæti í samstarfsnefnd, þar þarf ekkert til nema góðan
vilja og samstarfshug. Þau sem meðal annarra hafa komið
að vinnu samstarfsnefndar í ár eru: Auður Halldórsdóttir,
ásdís Þórhallsdóttir, ásta kristín Benediktsdóttir, Baldvin kári
sveinbjörnsson, Birna Hrönn Björnsdóttir, davíð Terrazas,
Elaine mcCrorie, Erlingur Óttar Thoroddsen, Eva maría
Þórarinsdóttir, Eyjólfur karl Eyjólfsson, Guðmundur lárus,
Heiðar Reyr ágústsson, Helga k. Bjarnadóttir,
matthías matthíasson, Ragnar Ólason, sesselja maría
mortensen, Valgerður Þ.E. Guðjónsdóttir, Valgerður
Ægisdóttir, Vallý Helgadóttir og Þórarinn Þór. Allt þetta fólk
tekur síðan forystu í ýmsum „deildum“ hátíðarinnar og
ábyrgist meðal annars sölumál, fánaborgir, öryggi hátíðar-
gesta, fjáröflun og auglýsingar, stjórn gleðigöngu, ritstjórn
útgáfuefnis og rekstur þjónustumiðstöðvar svo fátt eitt sé
nefnt. Þegar hátíðin nálgast kalla stjórn og samstarfsnefnd
síðan á mikinn fjölda sjálfboðaliða sér til aðstoðar við að
gera hátíðina sem glæsilegasta.