Hinsegin dagar í Reykjavík - aug. 2010, Síða 49
Viltu vera með atriði
í gleðigöngunni?
Atriðum í gleðigöngunni hefur fjölgað ár frá ári
og mörg hver hafa verið einstaklega glæsileg.
Til þess að setja upp gott atriði er mikilvægt að
hugsa málin með fyrirvara. Góð atriði þurfa ekki
að kosta mikla peninga. Gott ímyndunarafl og liðs-
styrkur vina og vandamanna dugar oftast nær.
Þátttakendur sem ætla að vera með formleg
atriði í gleðigöngunni verða að sækja um
það til Hinsegin daga eigi síðar en 1. ágúst.
nauðsynlegt er að skrá atriði með því að fylla
út eyðublað sem finna má á vefsíðunni,
www.gaypride.is. nánari upplýsingar veita
göngustjórarnir, ásta kristín og Helga á net-
fanginu gongustjori@gmail.com. og á það net-
fang er einnig hægt að senda umsóknir um
þátttöku í göngunni. Einnig er hægt að hafa
samband við þær í síma 696 0498 eða 868 1860.
Athugið að ekki er hægt að veita fólki með
atriði aðgang að göngunni nema það hafi
verið tilkynnt skilmerkilega til göngustjóra.
Hægt er að sækja um styrki til einstakra göngu-
atriða gegn framvísun reikninga, en Hinsegin
dagar áskilja sér rétt til að samþykkja eða hafna
öllum beiðnum um styrki í samræmi við fjárhag
hátíðarinnar.
Byrjað verður að raða göngunni upp við lög-
reglustöðina á Hlemmi kl. 12:00, laugardaginn 7.
ágúst og þeir þátttakendur sem eru með atriði
verða skilyrðislaust að mæta á þeim tíma til
að fá sitt númer og fara í röð. Gangan leggur
stundvíslega af stað kl. 14 og bíður ekki eftir
neinum.
do you want a float or space
in the parade?
People who wish to perform a number in the
parade must register before 1 August. you can
register on the website www.gaypride.is, from
the link “Parade Application” on the English
version of the website, or send an e-mail to
Asta and Helga, gongustjori@gmail.com. Please
inform us how many people will be participat-
ing in your number and whether it will involve
a float or a car. We will also need the name,
address and phone number of the contact person
in charge.
Participants please meet at 12 noon on Satur-
day, 7 August, by the Police Station at Hlemmur
Square. The parade starts at 2 p.m. sharp.
Stjórn Q – félags hinsegin stúdenta
Lj
ós
m
yn
di
r:
Ge
ir
Ra
gn
ar
ss
on