Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2000, Blaðsíða 11
KABARETT
KAFFILEIKHÚSINU
Ljóshœrði Engillinn
MEÐ VIRGINIO LIMA
Sýningin Ljóshærði engillinn er óður til þeirrar kabarett-
hefðar sem átti sitt blómaskeið á meginlandi Evrópu á
þriðja og fjórða áratug aldarinnar - óður til tónlistar-
innar og þeirrar ærslafullu, óstýrilátu leikhúsgleði sem
fylgir þessari hefð. Með skírskotunum til Marlene Dietrich
og tónlistarinnar sem Friedrich Hollander samdi og varð
lykillinn að frægð hennar og töfrum, er haldið að heiman með
Marlene til Hollywood en víða komið við á leiðinni. Óviðjafnanleg
kvöldskemmtun,full af ærslum, örum efnaskiptum og seiðandi tónlist.
Leikarinn Virginio Lima frumsýndi Ljóshærða engilinn í
Canal Café leikhúsinu í London árið 1998 við svo frábærar undirtektir
að sýningin var tekin upp aftur og þá var harmónikan með í leiknum,
en það gefur sýningunni hinn fullkomna andblæ liðinna daga.Virginio
stendur einn á sviðinu í Kaffileikhúsinu, en sér til aðstoðar hefur
hann tónlistarstjóra sinn Peter Murphy sem leikur á harmóniku,
Einar Örn Einarsson leikur á píanó, en stjórnandi og kóreógraf
sýningarinnar er David Waring. jjj
Virginio Lima er Brasilíumaður, leikari, leikstjóri,
dansari, kóreógraf og hönnuður. Einnig á hann að baki
feril í sjónvarpi sem höfundur að fræðsluþáttum jÆ
fyrir börn. Hann hefur búið í London siðastliðin ,JM
fjórtán ár og um fjögurra ára skeið hefur hann ÉHHfl
rannsakað og rifjað upp kabaretttónlist fm
Evrópu á árunum milli stríða, einkum frá j^Hpr r
tímum Weimar-lýðveldisins í Þýskalandi. .’SjmmW
Peter Murphy er búsettur í jpr
London, fjölhæfur tónlistarmaður sem
leikur á dragspil með slavneska þjóðlagahóp-
num Beskydy og á franskt horn í London Gay Symphony Orchestra
(LGSO). Hann fæst einnig við tónsmíðar og vinnur nú
að semja tónlist við sýninguna Desire sem er byggð á bók
bandaríska rithöfundarins Edmunds White, States of
Desire, og verður frumflutt af LGSO í desember 2001.
Ljóshærði engillinn er aðeins sýndur einu sinni í
Kaffileikhúsinu, Hlaðvarpanum,Vesturgötu 3, föstudaginn
I I. ágúst klukkan 21:00.
Aðgöngumiðar við innganginn - 1000 kr.
CABARET FROM LONDON
The Blond Angel -Tribute to European cabaret of the I 920s and
1930s - to its humour, music and glamorous vulgarity.
At Kaffileikhúsið,
Vesturgata 3, Reykjavík,
Friday August 11 th, at 9 p.m.
Admission ISK 1000.
PHOTOGRAPHY: GARETH HUXTABLE