Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2000, Blaðsíða 20
REGNBOGAÁNINN
Arið 1978 hannaði og saumaði San Francisco-búinn Gilbert Bakerfána
með röndum regnbogans. Litirnir áttu að tákna samfélag samkynhneigðra.
A tuttugu árum hefur fáninn orðið þekktari sem tákn þeirra en bleiki
þri'hyrningurinn sem um langt skeið hefur verið notaður í réttindabarátt-
unni. Sögu bleika þriliymingsins má rekja til Þýskalands nasismans þegar
hommar voru látnir bera merki með bleikum þri'hyrningi í fangabúðum
nasista. Arið 1989 vakti regnbogafáninn þjóðarathygli í Bandari1<junum
þegar leigjandi vann mál gegn leigusala sem hafði bannað honum að flagga
fánanum af svölum íbúðar sinnar ÍVestur-Hollywood. Nú er regnbogafáninn
viðurkenndur af Alþjóðlegu fánanefndinní og blaktir við hún á hátíðis-
dögum samkynhneigðra um allan heim.
Litir hafa löngum verið mikilvægir í sögu lesbía og homma. Á
Viktoríutímanum í Englandi var græni liturinn tengdur við samkynhneigð.
Fjólublár varð tákn fyrir baráttu samkynhneigðra seint á sjöunda áratugnum
og vinsælt slagorð þeirra tíma var "Purple Power”. Bleikt er eins og áður
var nefnt liturinn f bleíka þríhyrningnum og hefur líka á ýmsum tímum átt
samleið með samkynhneígðum. Gilbert Baker notaði upphaflega átta liti í
fánann sinn: bleikan, rauðan, appelsfnugulan, gulan, grænan, bláan, indigo og
fjólubláan. Baker sagðí þessa liti tákna kynhneigð, líf, lækningu, sól, náttúru,
list, jafnvægi og anda, og að þeir vísuðu í landið handan regnbogans í
Galdrakarlinum í Oz. Þegar Baker hélt af stað með fýrsta fánann sem hann
hafði saumað og litað í höndunum í fánaverksmiðju til þess að láta
fjöldaframleiða hann, reyndist liturinn ”hot pink" ekki vera fáanlegun Fyrsta
útgáfa fánans var því með sjö röndum.
Þegar Harvey Milk, hommi og borgarstjóri í San Francisco, var myrtur f
nóvember 1978 skyldi nýi fáninn prýða göngu sem samtök sam-
kynhneigðra stóðu fyrir eftir harmleikinn. Þá var indigo-liturinn fjarlægður
svo að tala randanna yrðí jöfn því að þrír litir fánans skyldu fylgja annarri
hlið göngunnar og þrír litir hinni. Þar með voru rendur fánans orðnar sex,
jafnmargar og þær eru í dag.
It gera vel við v i ð s k i p t a v i n i þína eða félaga
a>
<TQ
n>
P
CJQ
vUÞJÓA/j,
a* -f
Jómfrúin
---- EKTA ---
DANSKT SMURBRAUÐ
SM0RREBR0D
LÆKJARGATA 4 • 101 REYKJAVÍK • SÍMI: 551 0100 • FAX: 551 0035