Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2000, Blaðsíða 22

Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2000, Blaðsíða 22
ÞAU STANDA AÐ HINSEGIN DÖGUM 2 0 0 0 Samtökin '78 - Félag lesbía og homma á Islandi Samtökin 78 eru elstu og stærstu samtök samkynhneigðra hér á landi og voru stofnuð vorið 1978. Markmið félagsins frá fyrstu tíð hafa einkum verið tvíþætt: Að vinna að baráttu- og hagsmunamálum lesbía og homma í því skyni að vinna þeim jafnrétti á við aðra á öllum sviðum þjóðlífsins, og að skapa félaglegan og menningarlegan vettvang til þess að styrkja sjálfsvitund þeirra, samkennd og samstöðu um sérkenni sín. Mikill hluti af starfi félagsins snýst um réttindabaráttu á opinberum vettvangi. Það var fyrir vinnu Samtakanna 78 að stjórnskipuð nefnd kannaði stöðu samkynhneigðra á Islandi og lagði fram tillögurtil úrbóta snemma á níunda áratug 20. aldar. Sú vinna bar þann árangur að lög um staðfesta samvist fólks af sama kyni voru samþykkt 1996 og nokkru seinna verndarákvæði í íslensk refsilög. Þá er skemmst að minnast nýfengins réttar samkynhneigðra í staðfestri samvist til stjúpættleiðingar nú í vor Stonewall - Félag samkynhneigðra i framhaldsskólum Stonewall á baki starf í hálft annað ár meðal framhaldsskólanema. Markmið félagsins er að vera lesbíum og hommum íframhaldsskólum til halds og trausts og skapa þeim félagslegan vettvang. Síðasta vetur hitt- ust félagsmenn í Hinu húsinu við Aðalstræti í Reykjavík á fimmtudögum kl. 18. Á fundunum er ýmislegt rætt er tengist samkynhneigð og fengnir eru góðir gestir til að halda fyrirlestra um ýmís málefni. Einnig gera félagsmenn margt annað spennandi til að styrkja samstöðuna í hópn- um. Farið er í bíó, keilu, leikhús og ferðir í sumarbústaði út á land. Lykillinn að skemmtuninni eru að sjálfsögðu þeir sem mæta og halda uppi fjöri og góðum félagsanda. MSC ísland MSC Island var stofnað árið 1985 og sniðið eftir gay vélhjólaklúbbum þótt reyndar fari meira fyrir tilheyrandi klæðnaði og félagsskap en þeysingi á hjólum. Klúbburinn hefur sínar klæðareglurj leður, gúmmí- einkennis- og gallaföt, og ástæðan er einfaldlega sú að félagarnir vilja hafa karlmenn karlmannlega klædda og þá heldur ýkt í þá áttina en hina. MSC ísland hefur ferðamennsku og fýrirgreiðslu við erlenda ferða- menn beinlínis á stefnuskrá sinni og félagið var ekki síst stofnað til þess að Islendingar gætu orðið formlegur aðili að Evrópusamtökum slíkra klúbba, ECMC. Bein pólítísk afskipti eru ekki á dagskrá en í reynd hafa ECMC-samtökin verið ein virkustu alþjóðasamtök samkynhneigðra í heilan aldarfjórðung og lagt mikið af mörkum til baráttunnarfyrir stolti, sýnileika og samábyrgð. FSS - Félag samkynhneigðra og tvíkynhneigðra stúdenta I október 1998 hittist vaxandi hópur samkynhneigðra stúdenta reglu- lega til að ræða stöðu samkynhneigðra og tvíkynhneigðra við Háskóla Islands. Upp úr því spunnust þær umræður að stofna hagsmunasamtök og stuðningshóp. Félag samkynhneigðra og tvíkynhneigðra stúdenta, FSS, varsíðan stofnað hinn I9.janúar 1999 og hefur haldið uppi blóm- legu félagsstarfi síðan. Það telur nú hátt á annað hundrað félaga.Víðast hvar við erlenda háskóla eru félög samkynhneigðra starfrækt og þykja sjálfsagður hluti af háskólamenningunni. Markmið félagsins er öðrum þræði það að vera vettvangur fýrir samkynhneigða og tvíkynhneigða til að hittast og eiga góðar stundir saman. Einnig hefur félagið tekið mikinn þátt í réttindabaráttunni og beítt áhrifum sínum á Alþingi. Það á nú full- trúa í stjórn alþjóðlegra samtaka ungra lesbía og homma. Jákvæður hópur homma Fyrirfimmtán árum tóku nokkrir hommar sig saman eftir að hafa smít- ast af HlV-veirunni og stofnuðu hóp til að styðja hver við annan í lífs- baráttunni á tímum ótrúlegra fordóma þar sem aðkast í garð HIV- jákvæðra var daglegt brauð í fjölmiðlum og lífsvonir litlar fyrir þá sem smitast höfðu. Eftir að Alnæmissamtökin á Islandi voru stofnuð hefur hópurinn starfað á vettvangi þeirra samtaka og félagar í honum hafa lagt mannréttindabaráttunni ómælt lið á liðnum árum með því að fræða og upplýsa um HIV og samkynhneigð. The forces behind Gay Pride 2000 in Reykjavík The gay comunity in lceland has joined forces to celebrate Gay Pride 2000 with festivities in Reykjavk throughout a summer of fun, cultural events and general good feeling in bright daylight all around the clock. Gay Pride 2000 is organized by the lcelandic Organization of Lesbians and Gay Men Samtökin '78, the Gay and Lesbian University Students Union FSS, the Gay and Lesbian Youth Organization Stonewall, the leather club MSC lceland, and the HlV-Positive Group of Gay Men.

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.