Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2000, Qupperneq 20

Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2000, Qupperneq 20
REGNBOGAÁNINN Arið 1978 hannaði og saumaði San Francisco-búinn Gilbert Bakerfána með röndum regnbogans. Litirnir áttu að tákna samfélag samkynhneigðra. A tuttugu árum hefur fáninn orðið þekktari sem tákn þeirra en bleiki þri'hyrningurinn sem um langt skeið hefur verið notaður í réttindabarátt- unni. Sögu bleika þriliymingsins má rekja til Þýskalands nasismans þegar hommar voru látnir bera merki með bleikum þri'hyrningi í fangabúðum nasista. Arið 1989 vakti regnbogafáninn þjóðarathygli í Bandari1<junum þegar leigjandi vann mál gegn leigusala sem hafði bannað honum að flagga fánanum af svölum íbúðar sinnar ÍVestur-Hollywood. Nú er regnbogafáninn viðurkenndur af Alþjóðlegu fánanefndinní og blaktir við hún á hátíðis- dögum samkynhneigðra um allan heim. Litir hafa löngum verið mikilvægir í sögu lesbía og homma. Á Viktoríutímanum í Englandi var græni liturinn tengdur við samkynhneigð. Fjólublár varð tákn fyrir baráttu samkynhneigðra seint á sjöunda áratugnum og vinsælt slagorð þeirra tíma var "Purple Power”. Bleikt er eins og áður var nefnt liturinn f bleíka þríhyrningnum og hefur líka á ýmsum tímum átt samleið með samkynhneígðum. Gilbert Baker notaði upphaflega átta liti í fánann sinn: bleikan, rauðan, appelsfnugulan, gulan, grænan, bláan, indigo og fjólubláan. Baker sagðí þessa liti tákna kynhneigð, líf, lækningu, sól, náttúru, list, jafnvægi og anda, og að þeir vísuðu í landið handan regnbogans í Galdrakarlinum í Oz. Þegar Baker hélt af stað með fýrsta fánann sem hann hafði saumað og litað í höndunum í fánaverksmiðju til þess að láta fjöldaframleiða hann, reyndist liturinn ”hot pink" ekki vera fáanlegun Fyrsta útgáfa fánans var því með sjö röndum. Þegar Harvey Milk, hommi og borgarstjóri í San Francisco, var myrtur f nóvember 1978 skyldi nýi fáninn prýða göngu sem samtök sam- kynhneigðra stóðu fyrir eftir harmleikinn. Þá var indigo-liturinn fjarlægður svo að tala randanna yrðí jöfn því að þrír litir fánans skyldu fylgja annarri hlið göngunnar og þrír litir hinni. Þar með voru rendur fánans orðnar sex, jafnmargar og þær eru í dag. It gera vel við v i ð s k i p t a v i n i þína eða félaga a> <TQ n> P CJQ vUÞJÓA/j, a* -f Jómfrúin ---- EKTA --- DANSKT SMURBRAUÐ SM0RREBR0D LÆKJARGATA 4 • 101 REYKJAVÍK • SÍMI: 551 0100 • FAX: 551 0035

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.