Bæjarins besta


Bæjarins besta - 12.01.2005, Page 3

Bæjarins besta - 12.01.2005, Page 3
MIÐVIKUDAGUR 12. JANÚAR 2005 3 Nokkrar breytingar hafa orðið á kennaraliði skólans sem er nú fjölmennara en nokkru sinni áður. Síðastliðið haust hófu tíu nýir starfsmenn störf við skólann, sjö kennarar, bókavörður, fjármálastjóri og námsráðgjafi. Nú um áramótin bættust fjórir nýir kennarar við hópinn, þar af einn í fullu starfi en fjórir í hlutastörfum. Þetta eru Gunnar Páll Eydal sem kenna mun raungreinar í stað Kristins Harðarsonar sem er að hætta. Svavar Þór Guð- mundsson mun kenna frönsku í hálfu starfi í stað Brynjars Viborg sem verður í veikinda- leyfi til vors. Þá koma inn fjórir nýir stundakennarar, Dóra Hlín Gísladóttir sem kennir stærðfræði, Hákon Þorleifsson sem kennir tölvutækni og svo valgreinakennararnir Sigurrós Eva Friðþjófsdóttir sem kenna mun dans og Elín Ólafsdóttir matreiðslukennari. – hj@bb.is Á laugardag voru braut- skráðir 23 nemendur frá Menntaskólanum á Ísafirði. Í þeim hópi voru átta stúdentar, ellefu vélaverðir með vélstjórn 1. stigs, einn vélstjóri af 2. stigi, einn vélsmiður, einn húsasmiður og einn meistari í vélasmíði. Á sama tíma í fyrra útskrifuðust 15 nemendur frá skólanum. Í máli Ólínu Þor- varðardóttur skólameistara kom fram að aðsókn að skól- anum hefur farið stigvaxandi á undanförnum fjórum árum og hefur skólinn undanfarin tvö ár þurft að forgangsraða umsóknum þannig að ekki komust allir að sem vildu. Við skólasetningu höfðu borist 445 umsóknir saman- borið við 379 árið áður. Af 349 dagskólanemum gengu 338 til prófs sem þýðir að brottfall haustannar er 6% og bendir það að sögn Ólínu til þess að sá árangur sem skólinn hefur náð við að minnka brott- fall sé orðinn varanlegur. Sem dæmi nefndi hún að haustið 2001 hafi brottfall verið 17,4% en hafi síðan legið á bilinu 4,5-6,5%. Þá kom fram hjá skólameist- ara að nokkrar breytingar hefðu orðið á húsakynnum skólans. Tvær nýjar kennslu- stofur voru í haust settar upp til bráðabirgða í mötuneytis- álmu heimavistarinnar auk þess sem nú er að ljúka endur- bótum á neðri hæð suðvestur- álmu heimavistarinnar. Þar er nú verið að taka í notkun tíu rúmgóð herbergi með nýjum húsbúnaði og snyrtingu sem fylgir hverju herbergi. Þá hefur tækjabúnaður skólans tekið stórstígum framförum og er þess ekki langt að bíða að allar kennslustofur skólans verði búnar skjávarpa og tölvu. Útskriftarnemar úr MÍ ásamt Guðmundi Einarssyni og Ólínu Þorvarðardóttur. Mynd: Birgir Þór Halldórsson. Aðsókn að skólanum fer stigvaxandi Á þriðja tug nemenda útskrifuðust frá Menntaskólanum á Ísafirði Undirbúningur er hafinn fyrir tónlistarhátíðina Aldrei fór ég suður sem haldin verð- ur á Ísafirði um komandi páska. Eins og mönnum er í fersku minni var hátíðin haldin í skíðaviku Ísfirðinga í fyrra og þótti takast með eindæmum vel. „Þetta tókst svo vel í fyrra að það var ákveðið að telja í aftur“, segir Rúnar Óli Karls- son, einn þeirra sem skipar undirbúningsnefnd hátíðarinn- ar. „Við stefnum á að hafa þetta með svipuðu sniði og í fyrra, blanda saman vestfirsk- um hljómsveitum og stærri nöfnum annars staðar frá. Við reynum að hafa þetta heimilis- legt og bjóðum alla velkomna. Sama staðsetning og í fyrra er inni í myndinni“, segir Rúnar, en um síðustu páska var hátíð- in haldin á neðri hæð Sindra- bergs á Ísafirði. „Það standa yfir viðræður við hljómsveitir. Það er greinilega mikill áhugi með- al tónlistarmanna, bæði heimamanna og að sunnan. Þá er verið að reyna að fá erlenda listamenn til að koma fram og eru margir þeirra mjög jákvæðir fyrir þessu“, segir Rúnar Óli. Reynt að fá erlenda listamenn Tónlistarhátíðin Aldrei fór ég suður verður haldin í annað sinn um páskana Breytingatillögur meirihluta bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar kynntar á blaðamannafundi „Hækkanir á gjaldskrám nauð- synlegar til að tryggja þjónustu“ Reiknað er með töluverðum hækkunum á gjaldskrám sam- kvæmt fjárhagsáætlun Ísa- fjarðarbæjar sem verður til seinni umræðu í bæjarstjórn á fimmtudag. Forystumenn meirihluta bæjarstjórnar segja hækkanir á gjaldskrám tryggja að þjónusta við bæjarbúa hald- ist jafn góð og hún hefur verið. Þeir telja nauðsynlegt að mjög fljótlega komist niðurstaða í viðræður ríkis og sveitarfélaga um tekjuskiptingu því tekjur sveitarfélaga verði að aukast frá því sem nú er til þess að mæta kröfum íbúa um aukna þjónustu. Á fréttamannafundi sem haldinn var á mánudag kynntu Guðni Geir Jóhannesson for- maður bæjarráðs Ísafjarðar- bæjar og Halldór Halldórsson bæjarstjóri helstu þætti í fjár- hagsáætlun bæjarins sem verð- ur til seinni umræðu í bæjar- stjórn á fimmtudag. Í máli þeirra kom fram að rekstrar- kostnaður bæjarins hækkar mikið á þessu ári og sem dæmi má nefna að launakostnaður verður um 100 milljónum króna hærri en á síðasta ári þrátt fyrir tillögu um fækkun stöðugilda um 7 á árinu. Kostnaðaraukning verður mest á fræðslu- og félagssviði þar sem nýverið hefur verið samið við kennara og leik- skólakennara um talsverðar launahækkanir. Í tillögum meirihluta bæjar- stjórnar eru lagðar til töluverð- ar hækkanir á gjaldskrám. Að sögn forystumanna meirihlut- ans er almennt miðað við 4% hækkun. Margar gjaldskrár taka mun meiri hækkunum. Þar má fyrst nefna að lagt er til að leikskólagjöld hækki um 10% á árinu en hádegisverður og hressing um 4%. Í félags- legri heimaþjónustu verður lágmarksgjald fellt niður en gjald fyrir hvern tíma hækkað um 50%. Gjald fyrir aksturs- þjónustu fatlaðra og öryrkja hækkar töluvert. Leiga á íbúð- um á Hlíf I verður hækkuð um 25% í áföngum og gjald fyrir heilsdagsskóla hækkar um 25%. Eins og fram hefur komið í fréttum hækkar álagningar- stofn fasteignagjalda nokkuð ásamt því að fasteignamat á Ísafirði hækkar um 10%. Munu því fasteignagjöld á Ísa- firði hækka um allt að 22% af ákveðnum eignum. Af öðrum gjöldum má nefna að aflagjald verður hækkað úr 1,28% í 1,4%. Við fyrri umræðu var gert ráð fyrir að aflagjald hækkaði í 1,6%. Í samtali við bb.is á dögun- um sagði formaður bæjarráðs Ísafjarðarbæjar að tillögur um álagningarstofn fasteigna- gjalda yrði endurskoðaður á milli umferða í ljósi hækkunar fasteignamats á Ísafirði um 10%. Niðurstaðan varð samt sú að tillögur um hækkun álagningarstofns eru óbreyttar. Eins og áður sagði breyttust tillögur um hækkun aflagjalds á milli umræðna og er nú ekki gert ráð fyrir jafn mikilli hækk- un og við fyrri umferð. Guðni Geir segir að fyrri tillaga hafi sætt töluverðri gagnrýni frá sjávarútvegsfyrirtækjum og ákveðið hefði verið að taka tillit til þeirrar gagnrýni. Aðspurðir hvort ekki hefði komið fram viðlíka gagnrýni á boðaðar hækkanir á öðrum gjöldum sögðu forsvarsmenn meirihlutans svo ekki vera og því hefði ekki verið talin ástæða til þess að breyta þeim tillögum. Á undanförnum ár- um hefur hlutfall íbúa í yngri aldursflokkum bæjarins verið að lækka. Um skeið hafa leik- skólagjöld í Ísafjarðarbæ verið með þeim allra hæstu á land- inu. Aðspurðir hvort boðaðar hækkanir á leikskólagjöldum nú ásamt hækkun á öðrum gjöldum virkuðu ekki neikvætt á það fólk sem hefði í hyggju að setjast hér að sögðu for- svarsmenn meirihlutans svo ekki vera. Þjónusta væri mjög góð í Ísafjaðrarbæ og fyrir hana þyrfti að greiða. Til þess að tryggja áfram þessa góðu þjónustu þyrfti nú að grípa til þess ráðs að hækka gjaldskrár eins og flest önnur sveitarfélög væru að gera. Við fyrri umræðu um fjár- hagsáætlun var gert ráð fyrir sölu eigna að fjárhæð 100 milljónir króna. Meirihluti bæjarstjórnar leggur til við seinni umræðu að sala eigna nemi 60 milljónum króna. Ekki hefur verið tekin ákvörð- un um hvaða eignir verði seld- ar. Fram hefur komið í fréttum að nefnd hefur verið sala íbúða á Hlíf 1. Ekkert hefur þó verið ákveðið í því sambandi. Halldór Halldórsson bæjar- stjóri segir ýmsar hugmyndir hafa komið upp um hugsan- legar eignasölur en ekkert væri ákveðið í því efni. Bærinn ætti ýmsar fasteignir sem hægt væri að selja. Guðni Geir Jó- hannesson formaður bæjarráðs nefndi að sveitarfélög hefðu á sumum stöðum verið að selja veitufyrirtæki svo sem vatns- veitur og skoða mætti þann möguleika hér t.d. með því að kanna þann möguleika að selja Orkubúi Vestfjarða vatnsveit- ur bæjarins. Við fyrri umræðu um fjár- hagsáætlun var gert ráð fyrir að rekstrargjöld yrðu 152 milljónir króna umfram tekjur og að veltufé til rekstrar yrði 0,4 milljónir króna. Við seinni umræðu er gert ráð fyrir að rekstargjöld umfram rekstrar- tekjur verði 107 milljónir króna og að veltufé frá rekstri verði 45 milljónir króna. Á fréttamannafundinum varð forystumönnum meiri- hlutans tíðrætt um tekjuskipt- ingu ríkis og sveitarfélaga og nauðsyn þess að niðurstaða fengist úr viðræðum um hugs- anlega breytingu hennar. Að- spurðir hversu lengi sveitarfé- lög gætu beðið lengi eftir nið- urstöðu úr þeim viðræðum í ljósi versnandi afkomu þeirra sögðu þeir mjög brýnt að já- kvæð niðurstaða fengist í þeim viðræðum sem allra fyrst. Bæjarfulltrúar Samfylking- arinnar sátu blaðamannafund- inn og tilkynntu þar að þeir myndu ekki leggja til neinar breytingartillögur við fjár- hagsáætlunina. – hj@bb.is 02.PM5 6.4.2017, 09:223

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.