Bæjarins besta


Bæjarins besta - 12.01.2005, Side 12

Bæjarins besta - 12.01.2005, Side 12
MIÐVIKUDAGUR 12. JANÚAR 200512 16. janúar 1995 – 16. janúar 2005 Lífið er hverfult og stutt – viðtal við séra Magnús Erlingsson, sóknarprest á Ísafirði Prestar gegna veigamiklu hlutverki í samfélaginu. Við- fangsefni þeirra utan hefð- bundinna athafna eru að vísu ekki mjög sýnileg. Það vita hins vegar allir af þeim. Þeir eru til staðar þegar á þarf að halda. Þeir eiga mikinn þátt í gleðistundum í lífi sóknar- barna sinna og sinna afar erf- iðu hlutverki þegar sorgin kveður dyra. Séra Magnús Erlingsson á Ísafirði var sóknarprestur Súð- víkinga þegar snjóflóðin féllu. Þar tókst hann á við hlutverk sem tæplega verður talið að nokkur maður sé búinn undir. Séra Magnús féllst á að ræða nokkur atriði tengd þeim hörmungum sem yfir Súðvík- inga dundu janúardaginn ör- lagaríka fyrir tíu árum. – Hvernig kemur sóknar- prestur að málum við aðstæður eins og sköpuðust í Súðavík? „Aðkoma presta að slysum og náttúruhamförum er með margvíslegum hætti. Að mor- gni mánudagsins 16. janúar fyrir tíu árum fór ég með skipi til Súðavíkur. Þar var ég í fjöldahjálparstöðinni í Frosta við að hugga og hughreysta fólk. Um kvöldið sat ég með björgunarsveitarmönnum á fundi í barnaskólanum þar sem við ræddum atburði dagsins. Daginn eftir fór ég til Ísafjarðar að sinna aðstandendum sem voru þar á Fjórðungssjúkra- húsinu. Þá tóku við kistulagn- ingar, útför, eftirfylgd og margvísleg sálusorgun. Einnig sat ég í stjórn Samhugar í verki. Síðan kom tímabil upp- byggingar, bæði eigin upp- byggingar og samfélagsins í Súðavík. Þannig eru snertiflet- irnir margir. En í öllu þessu naut ég þess að vinna með góðum hópi samverkafólks úr mörgum stéttum og ólíkum áttum. Reynsla mín á þessum tíma sannfærði mig um það, að með samstilltu átaki margra og kærleiksríkum huga er hægt að vinna stórvirki.“ Öll fyrri reynsla hjálpar – Þú hafðir ekki starfað lengi hér vestra þegar þetta var. Nú er trúlega erfitt að búa menn undir að mæta svona hörm- ungum. Hvernig fannst þér menntun þín hafa undirbúið þig til þessara hluta? „Í náminu við guðfræðideild Háskóla Íslands voru auk hefð- bundinnar trúfræði áfangar í sálgæslu, geðsjúkdómafræði og viðtalstækni. Í einum af þessum áföngum skrifaði ég ritgerð um sorg barna. Þannig hafði ég nú einhverja þekkingu í farteskinu. Þá hafði ég einnig hlýtt á fyrirlestur um áfalla- hjálp árinu áður. En sannast sagna er ekki hægt að undirbúa sig fyrir svona áföll eins og snjóflóðið í Súðavík var. Þarna reyndi mjög mikið á fólk. En öll fyrri mannleg reynsla hjálp- ar okkur við að vinna úr erfið- um aðstæðum – bæði sú reyn- sla sem við höfum sjálf og eins þekking úr bókum eða bíómyndum jafnvel. Í Biblí- unni er til að mynda að finna marga kafla, sem segja frá fólki og viðbrögðum þess við áföllum.“ – Hvernig gekk að veita fólki aðstoð meðan á þessum hörmungum stóð? „Sálusorgun er svolítið skrýtið fyrirbæri. Þú sérð yfir- leitt ekki strax áþreifanlegan árangur af samtölum og fyrir- bænum eða auðsýndum hlý- hug. Þetta er heldur ekki þann- ig að verið sé að líma plástur á sár. Sálusorgun hefur lang- tímaáhrif. Kærleik og skiln- ingi, hvort heldur er frá fagað- ila eins hjúkrunarfólki eða góðum vini, mætti líkja við að græðandi smyrsl séu borin á sálina. Markmiðið með sálu- sorgun er að hjálpa fólki til að ná aftur sínum fyrri persónu- lega styrk með því að aðstoða það við að komast yfir sálræn áföll og mótlæti. Samtal, per- sónuleg nærvera og fyrirbæn eru hér lykilatriði. Auðvitað tekst misvel að hjálpa fólki. Stundum tekst það og stundum ekki.“ Stórslys opinbera vanmátt okkar – Vorum við vanbúin til þess að taka á svona stórum áföll- um? „Nei og já, myndi ég segja. Í fyrsta lagi er maðurinn aldrei viðbúinn stórum áföllum eins og náttúruhamfarir eru. Við erum hvorki tilfinningalega né hvað þekkingu varðar undir- búin fyrir slíkt. Stórslys opin- bera alltaf vanmátt okkar. En á móti kemur hitt, að við Vest- firðingar þekkjum það vel úr sögu okkar og fortíð hvernig höfuðskepnurnar – sjórinn, stormar og hríðarbyljir – hafa rænt frá okkur mannslífum. Og við vitum að á slíkum stundum er það hlý hönd vin- arins, sem hjálpar okkur að halda áfram að lifa. Það var til dæmis stórkostlegt að heyra frásagnir þeirra, sem komust af í flóðunum í Suðaustur-Asíu á dögum, af því hvernig hlý- hugur íbúanna var þeim ómet- anleg hjálp. Trúin á Guð veitir fólki líka styrk í svona hörm- ungum. Að geta treyst á æðri mátt og aðstoð góðra vina veit- ir manni tvöfaldan styrk.“ – Hvað hefur breyst síðan þessir atburðir gerðust? Höf- um við eitthvað lært af þeim? „Þegar snjóflóðið varð á Flateyri í október sama ár, þá sá ég að þar var staðið öðruvísi og betur að bæði hreinsunar- málum og margvíslegri eftir- fylgd. Þannig höfðu menn þá strax lært. Síðan þá hefur við- búnaður verið aukinn. Snjó- flóðavarnir hafa verið efldar. Þjóðkirkjan hefur líka endur- skipulagt sína starfsemi og nú í vetrarbyrjun var samþykkt sérstök neyðaráætlun, sem kirkjan vinnur eftir í erfiðum aðstæðum.“ Sennilega betra að vera ungur – Nú hljóta svona atburðir að hafa mikil áhrif á alla þá sem að þeim koma. Hvernig gekk þér sem ungum manni að komast í gegnum þetta álag? „Ætli það sé bara ekki betra að vera ungur og óreyndur þegar svona holskeflur ríða yfir! Með aldrinum verðum við meyrari. Stór áföll rífa líka upp eldri sár þannig að ég er ekkert endilega viss um að reynsla og aldur í árum hjálpi til í hamförum. Ég hefði alla vega ekki viljað vera eldri en ég var.“ – Hvert gat presturinn leitað sér aðstoðar? Er nokkuð reikn- að með því að hann þurfi að vinna sig út úr hlutunum? „Prestar þurfa líkt og aðrir að leita sér aðstoðar, – og gera það. Innan kirkjunnar er starf- rækt fagleg handleiðsla. Þá leita prestar líka stuðnings hver hjá öðrum og hjá vinum sínum.“ – Efast ekki jafnvel prestar í trúnni við svona aðstæður? „Um trúna í þessum kring- umstæðum mætti líklega heimfæra orð Jesú og segja, að þeim, sem hefur lifandi trú, verði gefin meiri trú, en þeim, sem litla trú á eða enga, frá honum verði tekið. Það stend- ur hvergi skrifað í Heilagri ritningu að líf mannsins skuli vera laust við erfiði og böl. Guð er látinn segja við Ad- am, forföður og fulltrúa mann- kyns: Með erfiði skalt þú þig af jörðinni næra alla þína lífdaga. Þyrna og þistla skal jörðin bera þér. Í sveita þíns andlits skalt þú neyta brauðs þíns þangað til þú hverfur aft- ur til jarðarinnar því að af henni ert þú tekinn. Það er blekking og firring nútímans að halda að til sé líf án þrauta. Vantrúin er afurð velmegunarinnar. Með þraut eru öll börn í heiminn borin. Og við mennirnir deilum ör- lögum með náttúrunni. Eini munurinn á lífsbaráttu manns- ins og dýranna er sá, að mað- urinn hefur til að bera meiri þekkingu. Eins skepnan deyr, þannig deyr og maðurinn, seg- ir í Predikaranum, og fyrri hluti þessarar setningar var tekinn upp sem heiti einnar ágætrar íslenskrar bíómyndar.“ Lífsbaráttan verður aldrei umflúin „Kannski hneykslar þetta tal mitt einhvern. En það verður þá bara svo að vera. Ég hef aldrei álitið það að Guð stýrði heiminum í stóru og smáu. Manninum er varpað inn í þessa tilveru. Hann á bæði völ- ina og kvölina. Við erum frjáls og ábyrg allra okkar gerða, – en líka ofurseld örlögum okk- ar. Ég hef oft fundið fyrir van- mætti mínum, grátið og öskr- að, verið nístur inn að beini og beðið Guð um miskunn, beðið hann að gefa mér styrk eða stýra gjörðum mínum og hugs- un. Og ég hef fundið það að slík bæn virkar og hjálpar mér. Lífsbaráttan verður aldrei umflúin. Lífsháskinn er alls staðar í kringum okkur. For- feður okkar við Djúpið þekktu ógnir lífsins og ekki eru þær minni í stórborgum nútímans. Sem gamall aðdáandi Íslend- ingasagna tel ég það dyggðugt og eftirbreytnivert að mæta ör- lögum sínum með reisn. Enda yrkir Hallgrímur Pét- ursson svo í þeim sálmi, sem oftast hefur hljómað yfir mold- um Íslendinga: Dauði, ég ótt- ast eigi afl þitt né valdið gilt. Í Kristí krafti eg segi: Kom þú sæll, þá þú vilt.“ – Höfum við lært eitthvað hvað sálgæslu og áfallahjálp varðar á þeim tíu árum sem liðin eru frá þessum atburðum? „Já, það höfum við gert. Við þekkjum betur takmarkanir okkar og veikleika. Og við umgöngumst líka náttúruna af meiri varfærni en þá. En þetta var dýrkeypt reynsla. Því má aldrei gleyma. Mannskaðar skilja eftir sig sár, sem aldrei gróa. Það, sem ég hef sjálfur lært af þessu er eftirfarandi: Lífið er hverful og stutt. Þess vegna eigum við líka að hugsa helst um það að njóta lífsins með vinum okkar og minnast þess að veraldlegur auður er for- gengilegur en ástin er það eina, sem lifir af dauða og eyði- leggingu.“ – Halldór Jónsson. Tomasz Þór Veruson bjargaðist síðastur úr snjóflóðinu Hef jafnað mig ágætlega Tomasz Þór Veruson bjargaðist síðastur úr flóð- inu. Hann var tíu ára gamall þegar þetta gerðist. Hann bjó í Túngötu 7 og lenti hús hans í miðju flóðsins. Allt heimilisfólk var sofandi þegar flóðið féll. Aðspurður segist hann muna eftir því þegar hann var grafinn upp. „Ég man lauslega eftir því þegar björgunarsveitar- mennirnir grófu mig upp. Ég er ekki viss hvort ég hafi heyrt í þeim áður en þeir komust niður á mig, þetta er allt í móðu.“ Eins og allir aðrir sem fundust, lífs eða liðnir, þá var Tom- asz fluttur í rækjuverksmiðju Frosta. „Síðan fór ég með skipi til Ísafjarðar og á sjúkrahúsið þar. Ég er ekki alveg viss um það hversu lengi ég var þar, en held það hafi verið svona ein og hálf vika.“ Tomasz og Wieslawa Lupinska, móðir hans sem einnig bjargaðist úr flóðinu, fluttu til Kópavogs strax eftir snjóflóðið. „Við byrjuðum að búa í Trönuhjalla í Kópa- vogi, en fluttum síðar í Ástúnið og höfum verið þar síðan þá.“ Tomasz segist ekki hafa verið lengi að ná sér líkamlega eftir flóðið. „Ég var það ungur að þetta var fljótt að lagast. En maður er lengur að ná sér andlega. Þetta tekur á, ég viðurkenni það alveg.“ Tomasz hefur komið nokkrum sinnum til Súðavíkur á þessum tíu árum sem liðin eru frá flóðinu. „Ég fór til Súðavíkur nýlega með unnustu minni. Við tók- um smá hring um Vestfirði og komum meðal annars við í Súðavík og á Ísafirði. Þó að snjórinn sé miklu minni í Kópavogi en í Súðavík rám- ar mann oft í þennan tíma þegar maður sér myndir úr bænum. En ég hef jafnað mig ágætlega og hugsa ekki um þetta dags daglega.“ Tomasz Þór Veruson. Ljósm: Spessi. 02.PM5 6.4.2017, 09:2212

x

Bæjarins besta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.