Bæjarins besta - 12.01.2005, Qupperneq 6
MIÐVIKUDAGUR 12. JANÚAR 20056
ritstjórnargrein
Vestfirðingur
ársins 2004
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
orðrétt af netinu
bjorn.is – Björn Bjarnason
R-listinn af hjörunum
Útgefandi: H-prent ehf., kt. 600690-1169, Sólgötu 9,
400 Ísafjörður, sími 456 4560, fax 456 4564 ·
Ritstjóri: Sigurjón J. Sigurðsson, sími 892 5362, bb@bb.is ·
Fréttastjóri: Hálfdán Bjarki Hálfdánsson, sími 863 7655,
halfdan@bb.is – Blaðamenn: Halldór Jónsson, sími 892 2132
hj@bb.is – Thelma Hjaltadóttir, sími 849 8699, thelma@bb.is ·
Ritstjóri netútgáfu: Sigurjón J. Sigurðsson · Ljósmyndari:
Halldór Sveinbjörnsson, sími 894 6125, halldor@bb.is
· Ábyrgðarmenn: Sigurjón J. Sigurðsson og Halldór Svein-
björnsson · Lausasöluverð er kr. 250 eintakið með vsk.
Áskriftarverð er kr. 215 eintakið. Veittur er afsláttur til elli- og
örorkulífeyrisþega. Einnig sé greitt með greiðslukorti.
ISSN 1670 - 021X
Örn Elías Guðmundsson, tónlistarmaður kjörinn Vestfirðingur ársins 2004
„Ein besta kynning sem
Vestfirðir hafa fengið“
Vestfirðingur ársins 2004
samkvæmt valið lesenda
fréttavefjarins bb.is er Örn
Elías Guðmundsson (Mugi-
son), tónlistarmaður frá Bol-
ungarvík, sem staðið hefur sig
frábærlega á tónlistarsviðinu
á undanförnum árum og sér-
staklega á því síðasta. Örn Elí-
as gaf á síðasta ári út plötuna
„Mugimama (Is This Monkey-
music?) sem Morgunblaðið,
DV og Rás 2 hafa valið sem
bestu plötu ársins. Þá samdi
Örn Elías tónlistina við kvik-
mynd Friðrik Þórs Friðriks-
sonar, Næsland og hann er til-
nefndur til fimm verðlauna á
Íslensku tónlistarverðlaunun-
um sem fram fara í næsta mán-
uði.
Örn Elías stóð einnig fyrir
rokkhátíðinni „Aldrei fór ég
suður“ ásamt föður sínum,
Guðmundi M. Kristjánssyni,
hafnarstjóra Ísafjarðarbæjar
(Papamug) um síðustu páska
og gerði þar með skíðavikuna
að reglulega eftirsóknarverð-
um atburði. Þá hefur hann ver-
ið ötull við að kynna heima-
slóðirnar eða eins og fjölmarg-
ir lesenda bb.is sögðu: „Mugi-
son er ein besta kynning sem
Vestfirðir hafa fengið um langt
skeið.“
Alls fengu 72 einstaklingar
atkvæði í kosningunni og
fengu þeir sem voru í 1.-4.
sæti rúmlega helming atkvæða
sem voru vel á fjórða hundr-
aðið. Faðir Arnar Elíasar,
Guðmundur M. Kristjánsson,
tók við viðurkenningu í tilefni
útnefningarinnar á laugardag
sem og eignar- og farandgrip
sem smíðaður er af Ísfirðingn-
um Dýrfinnu Torfadóttur,
gullsmið.
Í öðru sæti að mati lesenda
bb.is varð Jón Fanndal Þórðar-
son, verslunarmaður og for-
maður Félags eldri borgara í
Ísafjarðarbæ en hann var einn
af forsvarsmönnum Heima-
stjórnarhátíðar alþýðunnar
Örn Elías ásamt sambýliskonu sinni, Rúnu Esradóttur.
sem haldin var á Ísafirði á síð-
asta ári.
Í þriðja sæti varð Kristinn
H. Gunnarsson, alþingismað-
ur, sem varð í 2. sæti 2003, og
í fjórða sæti varð Sigmundur
F. Þórðarson, húsasmíða-
meistari á Þingeyri og formað-
ur Íþróttafélagsins Höfrungs.
Í næstu sætum komu Soffía
Vagnsdóttir í Bolungarvík,
Guðni Albert Einarsson, fram-
kvæmdastjóri á Suðureyri, Al-
bertína Elíasdóttir á Ísafirði,
Ólafur Sveinn Jóhannesson á
Tálknafirði, Rósamunda Jóna
Baldursdóttir, lögreglukona á
Ísafirði, Lýður Árnason, lækn-
ir og kvikmyndagerðarmaður
á Flateyri, Elvar Logi Hannes-
son, vert og leikari á Ísafirði,
Guðni Jóhannesson, fram-
kvæmdastjóri og bæjarfulltrúi
á Ísafirði, Magnús Guðmunds-
son, sjómaður á Flateyri og
Vestfirðingur ársins 2003 og
Friðgerður Guðmundsdóttir,
ekkja Rafns Jónssonar, tón-
listarmanns, sem lést á síðasta
ári.
Aðstandendur valsins á
Vestfirðingi ársins 2004, Gull-
auga á Ísafirði, hugbúnaðar-
fyrirtækið Innn hf., í Reykja-
vík og bb.is þakka lesendum
þátttökuna og óska þeim og
Vestfirðingum öllum velfarn-
aðar á árinu.
– bb@bb.is
Guðmundur M. Kristjánsson, faðir Arnar Elíasar tekur við viðurkenningu
og farandgrip úr hendi Arnar Torfasonar í Gullauga (tv) og Hálfdáns Bjarka
Hálfdánssonar, fréttastjóra Bæjarins besta og bb.is
Skemmst er frá því að segja, að R-listinn fór enn einu sinni
af hjörunum, þegar minnst er á OR og Línu.net og önnur gælu-
verkefni Alfreðs Þorsteinssonar. Viðbrögðin voru þau sömu
og þegar ég vakti máls á því á sínum tíma, að kostnaður við nýj-
ar höfuðstöðvar OR myndu fara fram úr áætlun og kanna ætti
það sérstaklega.
Þá var farið að tala um Skálann við alþingishúsið, náttúru-
fræðihúsið í Vatnsmýrinni og endurgerð safnhúss Þjóðminja-
safnsins. Nú flutti Alfreð tillögu um, að borgarstjóri skyldi
kanna kostnað allra fyrirtækja í fjarskiptum, þar á meðal fyrir-
tækja, þar sem Reykjavíkurborg hefur engra beinna hagsmuna
að gæta.
Örn Elías Guðmundsson, söngvarinn og tónskáldið Mugison,
var til þess valinn af lesendum bb.is að bera sæmdarheitið
Vestfirðingur ársins 2004. Þetta er í fjórða sinn, sem bb.is
stendur fyrir því að Vestfirðingur er krýndur þessu sæmdarheiti,
sem áður í samvinnu við fyrirtækið Gullauga á Ísafirði og að
þessu sinni ennfremur með hugbúnaðarfyrirtækinu Innn hf í
Reykjavík. Á hæla Mugison kom Jón Fanndal Þórðarson, fyrr-
um garðyrkjubóndi og í þriðja sæti Kristinn H. Gunnarsson, al-
þingismaður.
Fullyrða má að Mugison hafi skotist með slíkum leifturhraða
upp á stjörnuhiminn tónlistarinnar að fá dæmi séu þar til jöfn-
unar. Má með nokkru sanni orða það svo, að á hann hafi verið
hlaðið lofi allt frá því að hans varð fyrst vart sem tónlistarmanns,
bæði hérlendis sem erlendis. Nægir í þessu sambandi að nefna
plötu hans Lonely Mountain, sem fékk fádæma góða dóma,
þátttöku í raftónlistarhátíð í Barcelona í júní s.l., tónlist hans í
kvikmyndinni Niceland, að ekki sé minnst á rokkhátíð alþýð-
unnar, Aldrei fór ég suður, sem lengi verður í minnum höfð.
Um Mugison hefur verið sagt að hann sé ,,einn áhugaverðasti
og efnilegasti tónlistarmaður sem fram hefur komið hérlendis
í mörg ár.“ Mugison hefur hlotið 5 tilnefningar til Íslensku tón-
listarverðlaunanna 2004, meðal annars fyrir plötuna Mugimama,
sem 18 helstu tónlistarsérfræðingar landsins telja tvímælalaust
bestu plötu ársins.
Á Heimastjórnarhátíð alþýðunnar, sem haldin var með
glæsibrag á Ísafirði, minnti Jón Fanndal Þórðarson landsmenn
á, að bóndinn, verkamaðurinn og sjómaðurinn, áttu ekki síður
þátt í að skapa hina nýju sögu íslensku þjóðarinnar og því ætti
aldarafmæli heimastjórnar á Íslandi ekki síður erindi til
almennings en fáeinna stjórnmála- og embættismanna, sem
eignuðu sér þessi merku tímamót. Fyrir framgöngu sína í þessu
máli og fyrir störf í Félagi aldraðra á Ísafirði var Jón Fanndal
ofarlega í huga fólks í vali á Vestfirðingi ársins. Kristinn H.
Gunnarsson, sem hlaut þriðja sætið, varð í öðru sæti í kosn-
ingunni í fyrra. Það er eðli stjórnmála að þeir sem taka þátt í
þeim séu umdeildir. Þótt velgengni Kristins þurfi ekki skýringar
við má þó í léttari tón ætla, að áhyggjur vakni hjá sumum hverj-
um. Jóni Fanndal Þórðarsyni og Kristni H. Gunnarssyni eru
færðar heilla- og hamingjuóskir með verðskuldaðan heiður.
Bæjarins besta óskar Mugison til hamingju með titilinn
Vestfirðingur ársins 2004. Hann er vel að þessu kominn, ungur
maður, sem fer vel með góðar vöggugjafir.
s.h.
02.PM5 6.4.2017, 09:226