Bæjarins besta - 12.01.2005, Side 4
MIÐVIKUDAGUR 12. JANÚAR 20054
Hjalti Rúnar Oddsson,
17 ára Ísfirðingur, var
kjörinn íþróttamaður
sveitarfélagsins Árborgar
fyrir árið 2004 fyrir frá-
bæran árangur í sundi.
Hjalti Rúnar er fæddur
og uppalinn á Ísafirði en
flutti á Selfoss með fjöl-
skyldu sinni fyrir um
tveimur árum þegar faðir
hans, Oddur Árnason tók
við stöðu aðstoðaryfirlög-
regluþjóns hjá lögregl-
unni í Árnessýslu.
Hjalti Rúnar varð efst-
ur í kjörinu en alls voru
13 íþróttamenn tilnefnd-
ir. Hann hefur átt fast
sæti í unglingalandsliði
Íslands frá árinu 2002 og
keppti m.a. á nokkrum
mótum á erlendri grundu
á árinu 2004 fyrir Íslands
hönd. Hjalti Rúnar æfir
6-9 sinnu í viku og er einn
efnilegasti sundmaður
landsins og æfir með
sunddeild Umf.Selfoss.
– bb@bb.is
Ísfirðingur
íþróttamaður
Árborgar 2004
Hjalti Rúnar Oddsson, íþróttamaður Árborgar.
Ljósm: Magnús Hlynur, Selfossi.
02.PM5 6.4.2017, 09:224