Bæjarins besta - 12.01.2005, Blaðsíða 5
MIÐVIKUDAGUR 12. JANÚAR 2005 5
Ökumaður vörubifreiðar sem stöðvaður var á Hestakleif í Ísafjarðardjúpi
Sýknaður af ákæru
um of mikinn ásþunga
Héraðsdómur Vestfjarða
hefur sýknað bílastjóra vöru-
bifreiðar af ákæru um að hafa
ekið bifreið sinni með of mik-
inn ásþunga. Hann var stöðv-
aður við akstur eftir Djúpvegi
yfir Hestakleif og við vigtun
bifreiðarinnar kom í ljós að
ásþungi hennar var 3.400 kg.
á framási og 4.300 kg. á aft-
urási. Ekki var ágreiningur
um niðurstöðu vigtunarinnar.
Ákærði taldi sig hins vegar
ekki yfir auglýstum ásþunga-
takmörkunum þar sem við
vegamót vegarins upp á
Hestakleif var umferðar-
merki sem sýndi 5 tonna
þungatakmörkun. Lögregla
taldi mörkin vera 3.000 kg. á
hvorum ás.
Fyrir dómi var hins vegar
tekist á um hvers tegund um-
ferðarmerkis hefði verið við
áðurnefnd vegamót. Ákærði
hélt því fram að umrætt merki
hefði sýnt bifreiðaöxul með
fjórum hjólum en ekki tveim-
ur hjólum eins og segir í
reglugerð. Fram kom í réttin-
um að báðar tegundir merkja
voru til hjá Vegagerðinni.
Starfsmaður Vegagerðarinnar
sem setti merkið upp treysti
sér ekki til að fullyrða af eða á
af hvorri gerðinni merkið var
sem hann setti upp.
Ákærði krafðist sýknu þar
sem bifreið hans hafi ekki ver-
ið með ásþunga yfir 5.000 kg.
og auk þess sem umrætt merki
hefði ekki verið í samræmi
við ákvæði reglugerðar um
umferðarmerki og notkun
þeirra og því ekki falið í sér
löglegt boð til vegfarenda um
heimila ásþyngd ökutækja. Í
dómnum segir að á umrætt
umferðarmerki skuli letra há-
mark leyfðs ásþunga, en þyngd
áss með tvö hjól á ásenda og
þyngd tví- eða þríáss skuli vera
í samræmi við reglur um
þyngd ökutækja. Segir að þetta
verði ekki skilið á annan hátt
en að vegfarendur geti treyst
því að ásþungi samkvæmt
nefndu umferðarmerki eigi
við um ás með einu hjóli á
hvorum ásenda.
Var ákærði því sýknaður
af kröfum ákæruvaldsins og
sakarkostnaður greiddur úr
ríkissjóði. Erlingur Sig-
tryggsson dómstjóri kvað
upp dóminn. Ólafur Hall-
grímsson sótti málið af hálfu
ákæruvaldsins en ákærði
varði sig sjálfur fyrir dómi.
Menntamálaráðuneytið
hefur ákveðið nýjar dag-
setningar vegna samræmd-
ra lokaprófa í 10. bekk
grunnskóla í vor í kjölfar
þeirrar röskunar sem varð
á skólahaldi í grunnskólum
síðasta haust. „Við fáum
því fjóra kennsludaga
aukalega sem léttir tölu-
vert á spennunni. Þá hefur
komið til tals að bæta við
kennslustundum og verður
tekin ákvörðun um það á
sameiginlegum grundvelli
skólastjórnenda. Ef af því
verður kemur upp sú
spurning hvernig fyrir-
komulagið verður og hvort
fjármagn fáist í það“, segir
Skarphéðinn Jónsson,
skólastjóri Grunnskólans á
Ísafirði. Ákvörðun
menntamálaráðuneytisins
er tekin í samráði við
Námsmatsstofnun sem sér
um framkvæmd prófanna.
Prófgreinar og prófdagar í
10. bekk grunnskóla vorið
2005 verða eftirfarandi:
Íslenska: mánudagur 9.
maí. Enska: þriðjudagur
10. maí. Stærðfræði:
fimmtudagur 12. maí.
Danska: föstudagur 13.
maí. Samfélagsfræði:
þriðjudagur 17. maí. Nátt-
úrufræði: miðvikudagur
18. maí. Öll prófin fara
fram frá kl.9 -12.
Samræmdu prófunum
seinkað um fjóra daga
Grunnskólinn á Ísafirði.
Hvetjandi hf., eignarhaldsfélag
auglýsir eftir umsóknum um
kaup félagsins á hlutafé
Tilgangur félagsins er fyrst og fremst að ávaxta hluta-
fé með þátttöku í nýsköpun og uppbyggingu atvinnu-
tækifæra á norðanverðum Vestfjörðum.
Heimasíða félagsins er www.hvetjandi.is og er þar að
finna allar nauðsynlegar upplýsingar um félagið, um-
sóknareyðublöð og kröfur félagsins vegna þátttöku
þess í verkefnum.
Ennfremur er þeim sem áhuga hafa á að kynna sér
félagið bent á að hafa samband við framkvæmda-
stjóra þess, Eirík Finn Greipsson, Aðalstræti 20,
Ísafirði (hús Sparisjóðs Vestfirðinga).
Sími 450 4900. Netfang: hvetjandi@snerpa.is
Héraðsdómur Vestfjarða er til húsa í Neistahúsinu á Ísafirði.
02.PM5 6.4.2017, 09:225