Bæjarins besta


Bæjarins besta - 15.01.2015, Blaðsíða 4

Bæjarins besta - 15.01.2015, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 15. JANÚAR 2015 Útgefandi: Gúttó ehf., kt. 680501-2620 Afgreiðsla og ritstjórn: Silfurgötu 1, Ísafirði, sími 456 4560 Ritstjóri BB og bb.is: Sigurjón J. Sigurðsson, 892 5362, bb@bb.is Ábyrgðarmaður: Sigurjón J. Sigurðsson. Blaðamenn: Sæbjörg Freyja Gísladóttir, 843 0077, sfg@bb.is Smári Karlsson, 866-7604, smari@bb.is Auglýsingar: Sími 456 4560, auglysingar@bb.is Prentvinnsla: Litróf ehf. Upplag: 2.200 eintök Dreifing: Íslandspóstur. Dreift án endurgjalds inn á öll heimili á norðanverðum Vestfjörðum Stafræn útgáfa: www.bb.is / facebook.com/pages/bbis Önnur útgáfa: Á ferð um Vestfirði ISSN 1670-021X Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið bb@bb.is. Auglýsingar þurfa að berast fyrir kl. 17 á mánudögum fyrir útgáfudag sem er almennt á fimmtudögum. Ritstjórnargrein Enn vofir hún yfir Spurning vikunnar Hvort nýtir þú þér flug eða bíl til að ferðast milli landshluta? Netspurningin er birt vikulega á bb.is og þar geta lesendur látið skoðun sína í ljós. Niðurstöðurnar eru síðan birtar hér. Alls svöruðu 499. Flug sögðu 73 eða 15% Bíl sögðu 426 eða 85% Umræðan um flutning ríkisstofnana frá höfuðborginni er ekki ný af nálinni. Og eins og réttilega hefur verið á bent viðgekkst um tveggja alda einstefna flutnings ríkisstofnana í hina áttina, öllu sem talinn var fengur í var troðið niður í þéttbýlinu, sem varð höfuðstaður landsins. Tilraunir til bakfærslna flestar í skötulíki, þótt við hafi borið að för hafi verið til fjár. Marga putta þarf þó ekki til halds og trausts við talningu þeirra. Umræðan um flutning Fiskistofu til Akureyar, og lokun útibúsins á Ísafirði, og nú síðast fyrirhugaðan flutning Landhelgisgæslunnar gefur BB ástæðu til að rifja upp frá fyrri tíma aðkomu að slíkum málum, ábendingum um nýjar stofnananir, að hluta til. Í leiðara BB í okt. 2002, var tilvitnun í vefsíðugrein Einars K. Guðfinnssonar, núv. forseta Alþing- is, þar sem hann fjallaði m.a. um veiðarfærarannsóknir og veiðieftirlit: ,,Fyrir nokkrum árum gerði ég ásamt mörgum góðum mönnum tilraun til þess að uppbygging veiðarfærarannsókna færi fram á Ísafirði, undir forustu Hafrannsóknastofnunar og í samvinnu við fyrirtæki á þessu sviði. Ástæðan var einföld. Slík þekking var þá ekki til staðar nema næsta takmörkuð innan stofnunarinnar. Á Ísafirði var hins vegar búsettur sérmenntaður maður á þessu sviði, sem hafði áhuga ´að sinna þessu verkefni, en með einu skilyrði þó. Hann fengi að búa og starfa fyrir vest- an. Fyrir lá að fyrirtæki á svæðinu voru tilbúin að veita þesu máli braut- argengi. Og alþekkt er að innan Netagerðar Vestfjarða hefur byggst upp mikil þekking á veiðarfærarannsóknum. Fátt virtist rökréttara en að þarna yrði byggt upp lítið vísindasamfélag, sem starfaði út frá höfuð- stöðvum Hafró í Reykjavík.“ Á þetta var ekki hlustað. Veiðarfærarann- sóknir? Hvað hafði fiskveiðiþjóðin Íslendingar, með slíkt að gera? Um veiðieftirlitið var sömu söguna að segja. Hin ósýnilega hönd vanans, eins og EKG orðaði það, réð för. Landhelgisgæslan á Ísafjörð, var fyrirsögn leiðara BB 9. Júlí 1997. Á Ísafirði eru öll skilyrði til að taka við Landhelgisgæslunni. Höfnin með þeim bestu á landinu. Ísfirsk fyrirtæki fyllilega í stakk búin til að þjón- usta skip Gæslunnar. En, það sem mest er um vert: Þó varðskipin séu á flandri í kringum landið þá er það í vetrarveðrum á miðunum úti fyrir Vestfjörðum sem mest á reynir. Þá er ekki verra að heimahöfnin sé nærri. BB hvatti hagsmunaðila, bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar, þingmenn og sjómannasamtök, til dáða. Allt kom fyrir ekki. Í sjónvarpsþættinum ,,Hringborðið“ (RUV) komst fyrrv. ritstjóri Morgunblaðsins svo að orði að ekki hefði verið tekið mark á viðvörunum hans í kvótamálinu sökum þess að þær birtust í leiðurum Moggans. Horft til stærðarmunar og áhrifa- valds (Moggans og BB) eru viðbrögðin við skrifum BB um flutning Landhelgisgæslunnar á sínum tíma kannski ekki til að býsnast yfir. Nú er öldin önnur. Landhelgisgæslan umræðuhæf. Hin ósýnilega hönd vanans vofir þó sem fyrr yfr Vestfirðingum. s.h. Hefur aldrei séð gögn sem sýna díoxínmengun Gísli Halldór Halldórsson, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar, segir sveitarfélagið ekki viðurkenna skaðabótaskyldu vegna díoxín- mengunar frá sorpbrennslunni í Engidal þótt bærinn ætli að taka þátt í að bæta tjón bænda á svæð- inu. „Það kann að hljóma undar- lega, en ég hef aldrei séð gögn sem sýna fram á díoxínmengun í þessu kjöti úr Engidal, marktækt yfir mörkum. Þvert á móti sá ég á sínum tíma skýrslur frá danska rannsóknaraðilanum, sem sýndu að mengun í kjöti var í öllum tilfellum undir mörkum. Það er einmitt af þessum ástæðum sem Ísafjarðarbær hefur aldrei viður- kennt að vera valdur að því tjóni sem varð,“ segir Gísli í samtali við visir.is. Búpeningur í Engidal var felld- ur í kjölfar díoxínmengunar sem barst frá sorpbrennslunni Funa. Stöðinni, sem hafði verið á und- anþágu, var lokað í árslok 2010. Gísli segir að fróðlegt væri að sjá frumskýrslur með mengun- arupplýsingum frá Matvæla- stofnun (MAST). „Ástæða þess að slátra þurfti búpeningi í Engi- dal var bannið sem MAST hafði sett á kjötið og uppnámið sem MAST olli með því að innkalla íslenskt lambakjöt frá Evrópu. Eina leið sláturleyfishafa og bænda til að losna úr þeirri klemmu var að útrýma gripunum í Engidal og tjónið stafaði af því,“ segir bæjarstjórinn. Ekki fengust svör frá MAST að því er segir á visir.is en í skýrslu stofnunarinnar um fram- tíð búskapar í Engidal segir að díoxín hafi mælst yfir mörkum í sýnum sem tekin voru úr kjöti af svæðinu í desember 2010. Díoxín hafi áður mælst yfir mörkum í mjólk. Ísafjarðarbær hefur nú samþykkt gagntilboð Kristjáns Ólafssonar á Kirkjubóli IV um bætur vegna tjóns sem hann varð fyrir. Í september síðastliðnum var gengið frá samkomulagi um bætur til Karls Bjarnasonar í Neðri Hjarðardal II. Samkomu- lag við Steingrím Jónsson í Efri- Engidals, er enn ófrágengið. „Við bíðum enn formlegra viðbragða frá Steingrími við tilboði okkar sem lagt var fram fyrir löngu síðan,“ segir Gísli. Að sögn Gísla ákvað Ísafjarð- arbær þrátt fyrir málavexti að bjóða bændunum bætur þannig að þeir þyrftu ekki að sitja sjálfir uppi með allt tjónið. „Engu að síður viðurkennir Ísafjarðarbær ekki bótaskyldu í málinu,“ undir- strikar bæjarstjórinn. Eins og fram kom í Fréttablaðinu vildi Ísafjarðarbær ekki upplýsa um þær bætur sem bæjarráðið sam- þykkti að greiða fyrir jól. Það mál varðar bæturnar til Kristjáns. „Ástæða þess að ekki er upplýst um bæturnar að sinni er að við teljum okkur þurfa leyfi frá Krist- jáni. Við eigum enn eftir að fá afstöðu Kristjáns til þess,“ segir Gísli Halldór Halldórsson. Ralf Trylla, umhverfisfulltrúi Ísafjarðar segir að vandamálið varðandi dioxín mengunina sem mældist, hafi verið að á þessum tíma voru engin sett takmörk á díoxínmengun sem Funi þurfti að uppfylla. Sama á við um aðrar sorpbrennslur á landinu, en vegna smæðar þeirra fengu þær allar undanþágu frá evrópskum reglu- gerðum varðandi díoxínmengun. Þetta var meðal annars ein af ástæðunum að baki því að erfitt var að loka Funa vegna mengunar af þessu tagi. Umhverfisstofnun gat heldur ekki aðhafst í málinu vegna þess að í starfsleyfi Funa var ekki tekið til díoxínmengun- ar, aðeins mengunar vegna þunga- málma og annars, og hlutfall dí- oxínmengunar þurfti aðeins að mæla einu sinni. – sfg@bb.is Gísli Halldór Halldórsson, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar.

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.