Bæjarins besta


Bæjarins besta - 30.07.2015, Qupperneq 4

Bæjarins besta - 30.07.2015, Qupperneq 4
4 FIMMTUDAGUR 30. JÚLÍ 2015 Útgefandi: Gúttó ehf., kt. 680501-2620 Afgreiðsla og ritstjórn: Silfurgötu 1, Ísafirði, sími 456 4560 Ritstjóri BB og bb.is: Sigurjón J. Sigurðsson, 892 5362, bb@bb.is Ábyrgðarmaður: Sigurjón J. Sigurðsson. Blaðamaður: Smári Karlsson, 866-7604, smari@bb.is Auglýsingar: Sími 456 4560, auglysingar@bb.is Prentvinnsla: Litróf ehf. Upplag: 2.200 eintök Dreifing: Íslandspóstur. Dreift án endurgjalds inn á öll heimili á norðanverðum Vestfjörðum Stafræn útgáfa: www.bb.is / facebook.com/pages/bbis Önnur útgáfa: Á ferð um Vestfirði ISSN 1670-021X Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið bb@bb.is. Auglýsingar þurfa að berast fyrir kl. 17 á mánudögum fyrir útgáfudag sem er almennt á fimmtudögum. Ritstjórnargrein Tímamót Spurning vikunnar Finnst þér umgengni ferðafólks um landið vera ábótavant? Netspurningin er birt vikulega á bb.is og þar geta lesendur látið skoðun sína í ljós. Niðurstöðurnar eru síðan birtar hér. Alls svöruðu 330. Já sögðu 236 eða 72% Nei sögðu 51 eða 15% Veit ekki sögðu 43 eða 13% Enginn veit sína ævina fyrr en öll er. Sama gildir um við- fangsefni sérhvers einstaklings í gegnum lífshlaupið. Þau verða til, mörg hver, fyrir tilviljun og líftími þeirrra mörgu háður, margt ræður för. Framansagt á við um útgáfu Bæjarins besta. Hver hefði spáð litla fjórblöðungnum, sem leit dagsins ljós 14. nóvember 1984, þeim vexti og viðgangi, sem raun varð á? Með þessu tölublaði BB lýkur endanlega aðkomu stofnenda blaðsins að útgáfu þess. Frá og með næsta blaði hefur nýr eig- andi tekið við kyndlinum. Þar með lýkur leiðaraskrifum s.h. í blaðinu; leiðaraskrifum sem í upphafi voru ekki tekin hátíðlegri en svo að ef þannig ,,stóð á“ féllu þau niður. Frá og með 1992 hafa þau verið fastur liður. Þessi er nr. 1.412. ,,Menn mun ávallt greina á um efnistök blaðsins í einstökum málum, hjá því verður ekki komist, en ég tel að BB hafi sannað í gegnum tíðina að hér fer sjálfstætt blað sem tekur hverju sinni afstöðu eftir málefnum en ekki eftir því hverjir eiga hlut að máli. Það er mikilsvert fyrir hnignandi byggð á Vestfjörðum að það skuli takast að halda úti góðum fjölmiðli, sem heldur á lofti merki byggðarinnar og flytur landsmönnum og heims- byggðinni allri fréttir héðan að vestan.“ (Ummæli í 20 ára af- mælisblaði) Hvernig tekist hefur að feta sig þessa vandförnu línu í leið- araskrifum blaðsins er hverjum og einum eftir látið um að dæma. Hvað þetta varðar skal vitnað í leiðara í 20 ára afmælis- blaðinu, þar sem undirstrikað var að blaðið myndi, hér eftir sem hingað til, bregðast hart við þegar það teldi vegið að hags- munum Vestfirðinga. Þessari grundvallar afstöðu hefur blaðið reynt að vera trútt. Um leið og ég þakka stofnendum BB fyrir það mikla traust sem þeir sýndu mér með þessari aðkomu minni að blaðinu, vil ég tjá þakklæti fyrir tækifærið sem mér gafst með þessu til að leggja lóð á vogarskálina til endurgjalds fyrir öll mín ógleym- anlegu Vestfjarðaár. Þótt náttbólið sé nú í 201 liggur heimleiðin alltaf vestur. Nýjum eiganda BB árna ég allra heilla. s.h. (Siggi Hanni) Sigurður Jóhann Jóhannsson. 597 sumarhús á Vestfjörðum Meirihluti sumarhúsa lands- manna er á Suðurlandi og eru þau langflest í Grímsnes- og Grafningshreppi. Þetta kemur fram í samantekt á heimasíðu Samtaka sunnlenskra sveitarfé- laga. Í árslok 2013 voru skráð alls 12.574 sumarhús á landinu, samkvæmt Fasteignamati ríkis- ins. Af þeim voru 6.446 á Suður- landi eða 51% allra sumarhúsa. Á Vesturlandi voru 2.605 sumar- hús og á höfuðborgarsvæðinu voru þau 1.123. Á Vestfjörðum eru samkvæmt úttektinni 597 sumarhús, eða 4,7 prósent af heildarfjöldanum. Skráðum sumarhúsum fjölgaði um 5.057 frá árinu 1997 til árs- loka 2013 eða um 67%. Sam- kvæmt línuriti varð mest fjölgun sumarhúsa árið 2000 þegar þeim fjölgaði um 6,9% á einu ári. Sum- arhúsum fjölgaði einnig mikið á árunum frá 2005 til 2008. Á því tímabili var fjölgunin stöðugust á tímabilinu og fjölgaði sumar- húsum um 411 til 519 á ári, eða 4,1% til 4,8%. Eftir hrunið dró mjög úr fjölgun sumarhúsa og bættust fæst við árið 2011 á tíma- bilinu þegar þeim fjölgaði ekki nema um 1,2%. Í Grímsnes- og Grafningshreppi voru skráð 2.642 sumarhús í árslok 2013 eða 21% allra sumarhúsa á land- inu. Næst flest voru sumarhúsin í Bláskógabyggð eða 1.881 tals- ins sem samsvaraði 15% allra sumarhúsa í landinu. Samtals voru þessi tvö sveitarfélög með 70% allra sumarhúsa á Suður- landi og 36% sumarhúsa á lands- vísu. Í þriðja sæti yfir landið var Borgarbyggð með 1.303 sumar- hús (10%). Þar á eftir komu Kjós- arhreppur, með 544 sumarhús, og Skorradalshreppur, með 527. Skipstjórar eru ósáttir við stað- setningu á sjókvíum í Önundar- firði og sem eru í innsiglingar- leiðinni að höfninni á Flateyri. Rune Andreassen, skipstjóri á skemmtiferðaskipinu Fram, sendi bréf til Ísafjarðarhafna þar sem fram kemur að þegar skipið kom til Flateyrar í maí, hafi sjókvíar þrengt verulega að innsigling- unni. Í bréfinu segir Rune að í óhagstæðum vindáttum geti Fram ekki lagst upp að á Flateyri og hann muni hætta við komur til Flateyrar við þær aðstæður. Rune segir einnig að kvíarnar komi ekki fram á sjókortum og í fyrra hafi kvíarnar verið fjær inn- siglingunni en í ár. Páll Halldórsson, skipstjóri á Páli Pálssyni ÍS segir staðsetn- ingu kvíanna algjörlega út úr korti. „Þetta er stórhættulegt og mjög ámælisvert. Það er hægt að komast inn í höfnina í sumarblíðu en það þarf að gæta ítrustu varúðar. Það er útilokað að koma stærri skipum þarna að ef eitthvað er að veðri og skyggni lítið. Skip þurfa að geta leitað hafna í öllum veðrum,“ segir Páll sem þekkir höfnina á Flateyri vel en hann var skipstjóri og stýrimaður á Gylli ÍS um árabil. „Mér er spurn hverjum datt í hug að staðsetja þessar kvíar þarna. Ég átti ekki eitt einasta orð þegar ég sá þetta.“ – smari@bb.is Segja staðsetningu kvía í Önundarfirði hættulega Ísfell ehf. í Hafnarfirði og Fisk- eldisþjónustuna ehf. hafa sótt um lóð fyrir þvotta- og þjónustustöð fyrir fiskeldispoka á Þingeyri. Fyrirtækin eru búin að fjárfesta í þvottavél frá Noregi sem getur þvegið 160m fiskeldispoka en það eru stærstu pokarnir sem eru í notkun hér við landi. Ísfell er öflugt fyrirtæki á sviði veiðar- færaþjónustu og sölu á útgerðar- vörum og með starfstöðvar víða um land en Fiskeldisþjónustan er rekin af ísfirska kafaranum Kjartani Haukssyni. „Ef leyfismálin ganga hratt og vel fyrir sig ásamt öðrum undir- búningi þá er stefnt að því að hefja starfsemi á Þingeyri í haust,“ segir Magnús Eyjólfsson, markaðsstjóri Ísfells. Þingeyri er valin þar sem þorpið er miðsvæð- is og hentar til að þjónusta fisk- eldi á suður- og norðursvæði Vestfjarða. Aðspurður hvort að starfsemin krefjist húsnæðis segir Magnús svo vera. „Þvottavélin sjálf getur staðið úti, þetta er í raun risa- tromla. En annað sem fylgir þessu, eins og yfirferð og við- gerðir á möskvum er betra að gera innivið. Hvað við gerum í húsnæðismálum á eftir að koma í ljós.“ Fiskeldisþjónustan hefur upp á síðkastið þrifið sjókvíar með búnaði sem þrífur þær án þess að þurfi að taka þær á land. Magnús segir að samkvæmt reglugerð verði að taka alla poka á land á 18 mánaða fresti til yfir- ferðar og vottana. – smari@bb.is Setja á fót nótaþvottastöð Þingeyri er miðsvæðis og hentar því best fyrir nótaþvottastöð.

x

Bæjarins besta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.