Bæjarins besta - 30.07.2015, Síða 10
10 FIMMTUDAGUR 30. JÚLÍ 2015
Nýr skipstjóri á skútuna!
Eftir ríflega þrjátíu ár við stýrið
á Bæjarins besta er komin tími
til að söðla um finna sér nýtt að
stússast. Sigurjón J. Sigurðsson
ritstjóri og annar stofnenda blaðs-
ins, hefur nú eftirlátið flateyrsk-
um Hvergerðingi það merkilega
verkefni að bera Vestfirðingum
fréttir af sjálfum sér og öðrum.
Nýr ritstjóri og eigandi Bæjarins
besta og bb.is er Bryndís Sigurð-
ardóttir viðskiptafræðingur, fædd
í Ölfusi, uppalin í Hveragerði en
búsett á Flateyri frá 2013. Hún
tekur við rekstrinum 1. ágúst nk.
Ekki er reiknað með miklu
fjölmiðlafári kringum stólaskipt-
in enda engar stórkarlalegar
breytingar fyrirhugaðar, aðeins
eðlileg þróun og stefnan verður
hér eftir sem hingað til að bera
vandaðar fréttir milli manna í
fjórðungnum og ekki síður að
færa umheiminum fréttir að vest-
an. Sigurjón þakkar lesendum BB
samfylgdina í þrjá áratugi. Sigurjón býður Bryndísi velkoma til starfa.
Símaklefinn í Súðavík hef-
ur fengið nýtt hlutverk en
Dagbjört Hjaltadóttir, kenn-
ari í Súðavíkurskóla, hefur
komið upp skiptibókasafni í
klefanum. „Þetta er farið að
virka strax á öðrum degi. Ég
sá að bókum hafði verið býtt-
að þannig að þetta er að fæð-
ast,“ segir Dagbjört.
Skiptibókasafnið virkar á
þá leið að fólk getur náð sér í
lesningu í símaklefann og
skilið eftir lesnar bækur fyrir
aðra. „Ég hef gert þetta frá
því að ég var ung kona. Þegar
ég var í skóla í Skotlandi þá
fann ég bók í strætó og í
henni var miði sem sagði að
það væri velkomið að taka
bókina og lesa hana og að
lestri loknum ætti ég að koma
henni til næsta manns. Síðan
hef ég skilið eftir bækur á
Hlemmi, í strætóum og víð-
ar,“ segir hún.
„Við íslendingar erum sí-
fellt að kaupa hluti, bækur
sem annað, og því ekki að
deila með náunganum því
sem þú ert búin að nota og
bækur á að lesa. Ég er alin
upp við mikinn bóklestur og
á mínu heimili voru bækur
lesnar upp til agna,“ segir
Dagbjört.
Hún bendir á að bókaskipti
sem þessi víkki sjóndeildar-
hringinn. „Bókin sem ég tók
í strætó í Skotlandi á sínum
tíma var science fiction bók
eftir Isaac Asimov. Fram að
því hafði ég aldrei lesið sci-
ence fiction og hefði kannski
aldrei gert nema fyrir þetta.“
– smari@bb.is
Skiptibóka-
safn í símaklefa
„Hér er búið að vera fjörugt í
sumar,“ segir Stella Guðmunds-
dóttir sem á og rekur ferðaþjón-
ustuna í Heydal í Mjóafirði í Ísa-
fjarðardjúpi ásamt syni sínum
Gísla Pálmasyni. Hún segir að
þrátt fyrir kuldalegt sumar hafi
20% fleiri ferðamenn lagt leið
sína í Heydal í sumar samanborið
við síðasta sumar. Ferðaþjónust-
an í Heydal er opin allt árið og
getur tekið við fimmtíu manna
hópum í gistingu. Hún tekur þó
fram að þetta séu ferðamenn sem
vilji gistingu en ekki tjalda. „Það
er meira um það að fólk komi og
dvelji í nokkra daga og nýti sér
alla afþreyinguna sem hér er í
boði svo sem að fara í hestaferðir,
gönguferðir, hjólabáta veiði,
kajaka og liggja í heitu lauginni.“
Stella Guðmundsdóttir er frek-
ar svartsýn á berin í ár. „Sumarið
er búið að vera svo kalt að berin
er komin mjög stutt á veg. En
það er aldrei að vita, núna hefur
hlýnað svo mikið að það er engu
líkara en að sumarið sé komið“
segir hún og hlær. „Það er farið
að örla á því í seinni tíð að fjöl-
skyldur komi hingað í þeim til-
gangi að tína ber á haustin.“
Fjörugt sumar í Heydal í Mjóafirði
Melrakkasetur Íslands í Súða-
vík nýtur æ meiri vinsælda meðal
ferðamanna. Ríflega tólf þúsund
gestir hafa sótt setrið síðan í maí.
Melrakkasetrið var stofnað árið
2007 í þeim tilgangi að safna
saman á einn stað, allri þekkingu,
efni og hlutum sem tengjast mel-
rakkanum í nútíð og fortíð. Setrið,
sem mun vera eina refasafnið í
heiminum, er til húsa í elsta húsi
Súðavíkur, Eyrardalsbænum. Að
sögn Stephen Midgley, forstöðu-
manns safnsins kemur áhugafólk
um refi allan ársins hring til Súða-
víkur. Síðastliðinn vetur komu
nokkrir ferðamenn frá Reykja-
vík í þeim tilgangi að kynna sér
safnið og rannsóknirnar sem
tengjast því.
Þegar skemmtiferðaskip koma
til Ísafjarðar er það orðinn fastur
rúntur að fara og skoða Melrakka-
setrið og þá koma allt að þrjár
rútur fullar af ferðamönnum á
dag.
Stephen Midgley segir að sýn-
ingarsvæðið hafi tekið nokkrum
breytingum, búið sé að stækka
svæðið og koma fyrir nýjum sýn-
ingarhlutum. Tvær nýjar íslensk-
ar heimildarmyndir um refi og
refaveiðar eru sýndar daglega.
Mikið er lagt upp úr því að segja
fólki frá refaveiðahefðinni og
hvernig refaveiðar eru nauðsyn-
legar samfélaginu. Sýnt er hvern-
ig legið er á grenum. Þá getur
fólk kynnt sér þær rannsóknir
sem eru í tengslum við setrið.
Melrakkasetrið í Súðavík
nýtur æ meiri vinsælda