Bæjarins besta


Bæjarins besta - 30.07.2015, Page 13

Bæjarins besta - 30.07.2015, Page 13
FIMMTUDAGUR 30. JÚLÍ 2015 13 haldi af þessari umræðu um feður hans tvo og afa hans tvo í sömu ættina. Treysti sér ekki til að berjast um konuna Og aðeins meira varðandi kirkjubækurnar og það sem þar stendur ekki. „Amma mín, móðir Guðmund- ar Guðna, sem hét Anna, var ekki skilgetin, heldur dóttir Þórðar Magnússonar alþingismanns í Hattardal. „Ég held að hann sé eini maðurinn á Alþingi Íslend- inga sem hefur orðið gjaldþrota meðan hann var þingmaður,“ segir Úlfar og hlær. „Hann fór síðan til Vesturheims og þar er nokkuð stór ættbogi frá honum.“ Úlfar er fæddur á Hlíðarenda á Ísafirði, sem var hús Jóns And- réssonar, raunverulegs afa hans. „Þegar mamma var orðin ófrísk að mér var hún komin til að vera hjá Ágústi pabba mínum. Þannig var, að í október 1939 kemur Ágúst Jörundsson frá Ísa- firði á Strandir og sækir unnustu sína, móður mína, sem þá var trúlofuð Guðmundi Guðna á Drangsnesi. Eftir því sem Guð- mundur sagði mér, þá var hann svo mikil gunga að hann treysti sér ekki til að berjast um konuna og lét bara undan og Ágúst fór með hana. Móðir mín tók síðan þá ákvörðun sjálf að þetta barn skyldi vera barn Ágústar Jörunds- sonar og ekkert röfl með það, þó að hún vissi betur.“ Úlfar Snæfjörð – Væntanlega vita ekki margir fyrir hvað essið í nafninu Úlfar S. Ágústsson stendur. Af hverju heitirðu Úlfar Snæfjörð? „Einhvern tímann spurði ég mömmu um þetta, en hún vildi ekkert útskýra það fyrir mér. En eftir að ég vissi um uppruna minn, þá fannst mér það sniðugt af henni að gefa mér nafn sem ég hefði getað notað í staðinn fyrir föðurnafn. Ef það yrði eitthvert vesen hvort ég væri Ágústsson eða Guðmundsson, þá gæti ég bara verið Úlfar Snæfjörð. Á þessum tíma þótti fínt að heita eftir fjörðum eða fjöllum.“ – Hefurðu nokkurn tímann notað meira en bara essið í nafn- inu, skrifað þig eða kallað Úlfar Snæfjörð eða Úlfar Snæfjörð Ágústsson? „Nei, ég hef aldrei notað það, að minnsta kosti ekki síðan ég varð fullorðinn. Og eins og ég er nú líkur Guðmundi Guðna, þá er Ágúst alltaf faðir minn. Það var hann sem ól mig upp. Guðmund- ur Guðni vildi hins vegar endilega að ég skipti um föðurnafn og leiðrétti kirkjubækurnar. En ég hef alltaf haft gaman af því að á meðan ég heiti Úlfar S. Ágústsson, þá er fangamarkið mitt USA. Ég er alltaf einum degi á undan USA. Ég á afmæli núna í dag, þriðja júlí, en á morg- un er þjóðhátíðardagur Banda- ríkjanna.“ Fjölskyldan Ína eiginkona Úlfars síðustu 55 árin heitir fullu nafni Jósefína Guðrún Gísladóttir. Þau einuðust fjóra syni. Þann elsta, sem hét Gautur Ágúst, misstu þau í bíl- slysi á Eyrarhlíðinni árið 1978 þegar hann var nýorðinn sautján ára. Yngri synirnir eru Gísli Elís, Úlfur Þór og Axel Guðni. Varðandi tengdadæturnar og barnabörnin segir Úlfar: „Gísli og Ingibjörg Sólveig Guðmundsdóttir kona hans byrj- uðu á því að eignast tvíbura, dæt- ur sem heita í höfuðið á ömmum sínum, Ína Guðrún Gísladóttir og Jóhanna Ósk Gísladóttir. Síð- an eignuðust þau strák sem heitir Gautur og svo stúlku sem heitir Anna Margrét eftir langömmum sínum. Úlfur og Anna Sigríður Ólafsdóttir kona hans [Annska] eiga tvo stráka, Fróða Örn og Huga Hrafn. Axel og Thelma kona hans eiga stelpu sem heitir Ingibjörg og strák sem heitir

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.