Bæjarins besta


Bæjarins besta - 30.07.2015, Qupperneq 18

Bæjarins besta - 30.07.2015, Qupperneq 18
18 FIMMTUDAGUR 30. JÚLÍ 2015 Fjölmiðlun á tímamótum Stakkur hefur ritað viku- lega pistla í Bæjarins besta í mörg ár. Skoð- anir hans á mönnum og málefnum hafa oft verið umdeildar og vak- ið umræður. Þær þurfa alls ekki að fara saman við skoðanir útgefenda blaðsins. Þrátt fyrir það bera ábyrgðarmenn blaðsins ábyrgð á skrif- um Stakks á meðan hann notar dulnefni sitt. Stakkur skrifar Hvað eru fréttir? Einföld spurning sem kallar á flókið svar eða öllu heldur flókin svör. Fréttir eru fregnir eða frásögn af einhverju sem hefur gerst, er að gerast eða mun hugsanlega gerast og talið er skipta máli fyrir almenning og kannski og ekki síður í sum til- vikum fyrir fjölmiðla og fjölmiðlunga. Fréttamat manna er misjafnt og einum þykir fréttnæmt það sem öðrum þykir lítils virði og ekki eyðandi á prentsvertu eða tíma í útvarpi eða sjónvarpi. Hvert sækja menn, konur eru líka menn jafnt og karlar, fréttir? Hver sér um að koma þeim á framfæri og er öllum þeim treystandi sem þann starfa hafa með höndum, sjálfviljugir eða launað starfsfólk annarra og farandi þá eftir fyrirmælum í þeim mæli sem við hæfi þykir hverju sinni eða þar að lútandi starfssamningur segir til um. Það er engan veginn víst að allir sem stunda það að segja fréttir og afla þeirra hafi sömu sýn á gildi þeirra. Eigendur sumra fjölmiðla falla í þá gryfju að ganga erinda sinna eða hagsmuna bæði eigin og annarra. Meðan pólitísku blöðin voru og hétu var oftast einfalt að greina það sem að baki bjó. Kommúnistar á Íslandi og síðar sósíalistar áttu Þjóðviljann og hann var hægt að lesa og greina kjarnann frá hisminu. Tíminn heitinn studdi Framsóknarflokkinn, Alþýðublaðið sinn flokk og Vísir var mjög tengdur við Sjálfstæðisflokkinn og Morgunblaðinu var eignaður sá staður einnig. Nú eru þessi gömlu blöð ýmist gengin inn í eilífð liðinnar blaða- mennsku að Mogganum einum undnaskildum. DV er til enn þá sem ,,dagblaðs bastarður“ þar sem það kemur ekki út á hverjum degi. Það blað segist sjálft öðrum fremur leita sannleikans. Um ár- angurinn verður ekki dæmt hér. Morgunblaðið er dagblað á göml- um grunni. Fréttablaðið borgum við öll við búðarkassann því það er rekið á auglýsingum að sögn. Við ráðum hins vegar hvort við viljum Moggann eða ekki og borgum ef svo ber undir. Í því blaði ber einna helst á því að mál séu brotin til mergjar. Sú breyting hef- ur orðið að vefrit ýmiss konar hafa sprottið upp á Íslandi og of langt mál er að telja þau. En sennilega er vaxandi kynslóð og sú næsta vefneytandi fyrst og fremst, leitandi sjálf að því sem henni er kærast og forvitnilegast. Útvarp og sjónvarp kunna að tapa fyrir netinu nema að þau snúi sér að því að vera á netinu. Óskiljanlegt er að ríkið skuli reka út- varp og sjónvarp og Stöð 2 virðist einkum vera afþreying fremur að kryfja málin. Allt er að breytast. En hver er þá framtíð héraðs- blaðs eins og BB? Framtíðin ein sker úr um það, en gott er að hafa fjölmiðil sem sinnir heimabyggð og því fjölbreytta mannlífi sem Vestfirðir bjóða og Vestfirðingar lifa. Til þess að slíkur miðill lifi þarf fólkið að standa með honum og það gerist vonandi um langa hríð. treystu mér. Ég hafði talað menn til þess að lána okkur meira og meira, og ég gat hreinlega ekki hugsað mér að labba frá þessu og skella á allt þetta fólk sem hafði treyst mér. Ég vildi því reyna að leita samninga við alla lánar- drottna, ekki nauðasamninga heldur frjálsra samninga, yfirtaka fyrirtækið og skuldirnar og breyta þessu í minn einkarekstur. En þegar þetta hafði verið rætt og var að smella saman, þá ákvað Heiðar að vera með mér í þessu. Við Heiðar tókum því á okkur persónulega allar skuldir fyrir- tækisins og síðan skiptum við því á milli okkar, að vísu ekki jafnt, því að ég tók 75% af súp- unni og hann 25%. Við skiptum í samræmi við þá veltu sem var í þeim rekstri sem hvor fékk í sinn hlut.“ Á myndum frá þessum árum er Úlfar Ágústsson sérlega hár- prúður. Hann hafði svipaðan hátt á og Haraldur hárfagri forðum: Hét því að láta ekki skerða hár sitt fyrr en hann væri búinn að borga allar síðar skuldir. Um tíma rak Úlfar Hótel Hamrabæ á Ísafirði. „Það var að mörgu leyti mjög skemmtilegur tími en feikilega erfiður. Þar tókst mér í annað sinn að eyða aleig- unni. Þegar því ævintýri lauk árið 1985 var ég orðinn ámóta skuld- settur og snauður og þegar ég tók Hamraborg upp á mína arma árið 1971. Ég var í allmörg ár að vinna mig út úr því.“ Og til að gera langa sögu stutta, þeir Úlfar S. Ágústsson og Heiðar Sigurðsson héldu báðir verslun- arrekstri áfram, borguðu allar sín- ar skuldir og urðu smátt og smátt prýðilega bjargálna á ný, og Úlfar tvisvar. Og þess má geta, að núna í haust verða 48 ár liðin frá stofn- un verslunarinnar Hamraborgar á Ísafirði. Baráttan við þunglyndið Mjög snemma í þessu viðtali sagðist Úlfar vera að eðlisfari mjög glaðsinna og hamingjusam- ur maður. Fólk sem kynntist hon- um náið sem verslunarmanni og í margvíslegu félagsstarfi þekkti ekki annað. Vissi ekki um það sem hann átti við að stríða en bar ekki utan á sér. Alltaf var Úlfar brosandi og bráðhress og gaman- samur. Þess vegna mun það hafa komið flestum á óvart þegar hann greindi fyrst opinberlega frá bar- áttunni við veikindi sín í viðtali sem undirritaður átti við hann á sínum tíma. Það sem þarna er um að ræða er alvarlegt skammdegisþung- lyndi, sem hefur fylgt honum mjög lengi. Það er helsta ástæða þess, að á síðari árum hefur Úlfar dvalist mikið í suðrænni löndum yfir vetrartímann. Einn af þessum félags- lega vitfirrtu mönnum – Þú hefur alltaf verið félags- málatröll, eins og það er kallað. „Ég er áreiðanlega einn af þessum félagslega vitfirrtu mönn- um. Líklega er ég að því leyti ekkert ólíkur einum ágætismanni sem hér var búsettur mestallt sitt líf, honum Ella á Bjargi. Um hann var sagt, að hann væri í öllum félögum á Ísafirði nema kvenfélögunum og formaður í helmingnum. Það er kannski ekkert langt frá því að ég hafi náð þessu, því að ég hef verið í fjöldamörgum félagasamtökum og haft gaman af. Nema í kvenfélögunum.“ – Ína þín hefur séð um það ... „Jújú, og hefur bara gert það nokkuð vel. Hún hefur starfað í Kvenfélaginu Hlíf og Sjálfstæð- iskvennafélaginu og fleiri kvenna- samtökum. Hún stofnaði ásamt öðrum konum Zontaklúbb Ísa- fjarðar og gegndi þar flestum trúnaðarstörfum. Það fyrsta sem ég man eftir félagsstarfi hér var þegar ég gekk í barnadeild Slysavarnafélagsins, sem hét að mig minnir Norðurljós og var stjórnað af Kristjáni Krist- jánssyni hafnsögumanni, miklum ágætismanni. Mér er minnisstætt frá veru minni í barnadeildinni, að þar voru haldin skemmtikvöld fyrir krakkana. Einu sinni lék Gvendur golli dverg, sat uppi á borði og sagði okkur sögu, og ég var lengi að brjóta heilann um það hvernig hægt væri að breyta Gvendi golla í dverg. Svona hef ég alltaf verið mikið barn í mér,“ segir Úlfar Snæfjörð Ágústsson. – Hlynur Þór Magnússon.

x

Bæjarins besta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.