Bæjarins besta - 30.07.2015, Side 20
20 FIMMTUDAGUR 30. JÚLÍ 2015
Laust starf
Orkubú Vestfjarða óskar eftir að ráða í starf
á veitusviði. Leitað er að laghentum einstakl-
ingi í vinnuflokk sem er með starfsstöð á Ísa-
firði.
Starfssvið:
· Daglegur rekstur dreifikerfis hitaveitu og
kyndistöðvar.
· Viðhald og nýframkvæmdir í veitukerfi.
· Rekstur og viðhald díselvéla.
· Bakvaktir.
· Önnur tilfallandi verkefni á veitusviði.
Hæfniskröfur:
· Vélstjórnarmenntun mikill kostur.
· Sjálfstæði í vinnubrögðum.
· Reynsla af sambærilegu starfi kostur.
· Almenn tölvufærni.
Nánari upplýsingar um starfið veitir svæðis-
stjóri á Ísafirði, hb@ov.is. Umsóknarfrestur er
til 10. ágúst og skal skila umsóknum til fram-
kvæmdastjóra veitusviðs, hm@ov.is.
Atvinna
Fiskeldisþjónustan ehf. óskar eftir að ráða í
starf sem meðal annars felur í sér atvinnuköfun,
sjómennsku og ýmis störf í landi. Gerum kröfu
um áreiðanleika, stundvísi og snyrtimennsku.
Um framtíðarstarf er að ræða.
Viðkomandi verður sendur í köfunarnámskeið
erlendis í upphafi starfs og þarf því að vera
með gott þrek og heilsu. Búseta í Ísafjarðar-
bæ, Bolungarvík eða Súðavík er skilyrði.
Fiskeldisþjónustan ehf. – sími 893 0583
Tólf mánaða skilorð
fyrir að kveikja í húsi
Karlmaður hefur verið dæmd-
ur í 12 mánaða skilorðsbundið
fangelsi fyrir fjársvik. Maðurinn
var ákærður fyrir að hafa í júlí
2011 kveikt í húsi með það að
markmiði að svíkja út trygging-
arbætur. Annar karlmaður var
einnig ákærður í málinu en hann
var sýknaður. Aðfaranótt mánu-
dagsins 25. júlí 2011 barst lög-
reglu tilkynning um eld í mann-
lausu íbúðarhúsi. Fram kom að
húsið væri alelda og nærliggjandi
hús í hættu. Samkvæmt upplýs-
ingum frá Orkubúi Vestfjarða var
lokað fyrir rafmagn í húsinu og
hafði húsið verið rafmagnslaust
síðan 21. janúar 2002. Fljótlega
vaknaði grunur um að kviknað
hefði í húsinu af mannavöldum
og beindist grunur að ákærðu.
Húsið hafði verið mannlaust
og ókynt í 10 ár og höfðu ákærðu
ætlað að gera það upp. Eldurinn
kviknaði út frá hitablásara auk
þess sem bensíni hafði verið
dreift í kringum hann. Rafmagn í
hitablásarann hafði verið leitt frá
nærliggjandi húsi.
Fyrir dómnum lá fyrir hand-
skrifað skjal þar sem því er lýst
að kveikt skuli í húsinu og skuldir
greiddar. „Við tökum 7 millz í
lán. Við fáum 3 millz í styrk.
Þessar 3 millz fara í að borga
uppi þessar 7 millz þannig þá
skuldum við 4 millz. Svo kviknar
í húsinu og þá borgum við tessar
4 sem eru eftir og þá eigum við
húsið skuldlaust og 4 millz auka“,
stendur í skjalinu.
– smari@bb.is
9.600 manns komu hingað til
lands með skemmtiferðaskipum
30. júní. Á þeim degi má gera
ráð fyrir að fyrirtæki í ferðaþjón-
ustu hafi samanlagt þurft 130-
140 rútur ef miðað er við að um
60-70% farþega nýti sér hópferð-
ir á ferðamannastaði. Kristín Sif
Sigurðardóttir, framkvæmda-
stjóri ferðaskrifstofunnar Atlan-
tik, segir í samtali við Morgun-
blaðið, að hlutfall farþega sem
nýtir slíkar ferðir á því bili. Á
þessum tiltekna degi komu 5.100
manns til Reykjavíkur, 1.800
manns til Ísafjarðar og 2.700
manns til Seyðisfjarðar. „Á
stærstu dögum sumarsins koma
fleiri þúsund manns. Það eru allt
að 80 farartæki sem þurfa að vera
tiltæk, eingöngu í Reykjavík,“
segir Kristín Sif.
Um 2.400 manns komu til Ísa-
fjarðar á mánudag í síðustu viku
með AIDA Luna og Ocean Dia-
mond. Búið var að gera ráð fyrir
komu Queen Elizabeth með
2.500 farþega en skipið sneri frá
þar sem óhagstæð skilyrði voru
til að ferja farþega í land frá akk-
erislæginu. Engu að síður var
búið að panta rútur þangað til að
ferja um 4.700 manns. „Innviðir
eiga til að bresta þegar svo margir
koma í einu. Erfitt er til að mynda
að koma fólki á veitingastaði.
Rútur eru keyrðar þangað frá
Reykjavík og Akureyri og kostn-
aður er gífurlegur við það að
keyra tóma leggi aðra leið. Svo
var ekkert skip á Ísafirði á þriðju-
daginn en á miðvikudag komu
4.300 farþegar. Á milli þessara
daga voru mjög margir í Reykja-
vík eða 5.500 og 5.000 á Akureyri
og það hefur ábyggilega verið
skortur á rútum einhvers staðar,“
segir Kristín Sif. Hún segir það
gerast að farþegar komist ekki í
ferðir sökum þess að ekki er nægt
framboð af rútum.
Á annað hundrað
rútur á álagsdögum
Eignarhaldsfélagið Fiskihóll ehf. sem gerir út bátinn Hrólf
Einarsson ÍS hefur verið selt. Í blaðinu Vestfirðir er greint frá
að kvóti útgerðarinnar sé liðlega 100 tonn og verður hann flutt-
ur á bát á Hornafirði en Hrólfur verður seldur til Noregs. Gunn-
ar Torfason, annar af eigendum Fiskihóls, segir í samtali við
blaðið að málalyktir hafi valdið vonbrigðum en fyrirtækið sóttist
eftir Byggðastofnunarkvóta á Flateyri, þaðan sem Hrólfur hefur
verið gerður út. Hann segist hafa mætt velvilja hjá heima-
mönnum og sérstaklega hjá bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar en
Byggðastofnun hefði haft aðrar hugmyndir. Gunnar er ekki
hættur afskiptum af útgerð á Vestfjörðum og gerir enn út
rækjubátinn Halldór Sigurðsson ÍS.
– smari@bb.is
Hrólfur Einars-
son ÍS seldur
Hrólfur Einarsson ÍS.