Bæjarins besta

Ataaseq assigiiaat ilaat

Bæjarins besta - 28.04.2004, Qupperneq 10

Bæjarins besta - 28.04.2004, Qupperneq 10
MIÐVIKUDAGUR 28. APRÍL 200410 Krabbameinsfélagið Sigurvon fær milljón króna styrk frá Bónus Hrærður yfir höfðinglegum styrk Sigurður Ólafsson, formað- ur Krabbameinsfélagsins Sig- urvonar, veitti í síðustu viku viðtöku einnar milljón króna styrk frá versluninni Bónus. Hann sagðist í samtali við blaðið vera mjög þakklátur og hrærður vegna þessa höfð- inglega styrks. „Það er mjög gleðilegt að hafa verið í þess- um hópi sem hlaut styrk frá Bónus. Allt eru þetta aðilar sem eru að vinna að mikil- vægum verkefnum hver á sínu sviði og allir vel að styrkjunum komnir. Að starf okkar skyldi vekja áhuga forráðamanna Bónuss er mjög ánægjulegt og þessi mikli styrkur verður seint fullþakkaður“, sagði Sigurður. Jóhannes Jónsson, kaup- maður í Bónus, afhendi nokkr- um félögum styrki, samtals að fjárhæð 15 milljóna króna, við hátíðlega athöfn á Nordica hó- tel í Reykjavík. Styrkirnir eru veittir í tilefni af 15 ára afmæli Bónuss. „Sigurvon er gott nafn á fé- lagi sem stofnað var fyrir rúm- um tveimur árum á Ísafirði til að styðja krabbameinssjúka á norðanverðum Vestfjörðum. Vonin um sigur þarf alltaf að vera til staðar þegar barist er við erfiðan sjúkdóm eins og krabbameinið er. Varla er til sú fjölskylda á Íslandi í dag sem ekki þekkir með einhverj- um hætti þennan vágest. Til- gangur Sigurvonar er einfald- ur, styðja í hvívetna baráttuna gegn krabbameini og vill Bón- us með einnar milljón króna framlagi til félagsins styðja þá baráttu“, sagði Jóhannes í ræðu sem hann hélt við það tækifæri. Stjórn Sigurvonar hefur ákveðið að styrkurinn verði nýttur sem stofnframlag að styrktarsjóði fyrir krabba- meinssjúka á starfssvæði fé- lagsins á norðanverðum Vest- fjörðum. Sjóðurinn er í mótun þessa dagana og verður til- kynnt síðar um stofnun hans. – hj@bb.is Sigurður Ólafsson formaður Sigurvonar tekur við styrknum úr hendi Jóhannesar Jónssonar kaupmanns í Bónus. Gagnrýna rík- isstjórnina Störf við launaútreikna hjá Fjórðungssjúkrahúsinu á Ísafirði verða ekki flutt suður eins og til stóð. Þetta kom fram hjá Guðna Geir Jóhannessyni formanni bæjarráðs Ísafjarðarbæj- ar. Hann hefur þung orð um núverandi ríkisstjórn og finnst hún hvorki hlusta á eða vinna fyrir Vestfirð- inga. Framsóknarmenn á norðanverðum Vestfjörð- um kvöddu ráðherra og framsóknarþingmenn Norðvesturkjördæmiskjör- dæmis vestur á dögunum, þar sem þeir sögðu hug sinn um lítinn gang mála, sem varða byggðaaðgerðir gagnvart svæðinu. Öllum boðið á ball í Víkinni Heilsubærinn Bolungarvík, íþróttamiðstöðin Árbær og UMFB ætla að halda fjöl- skyldudansleik í Bolungar- vík sunnudaginn 2. maí og bjóða öllum Vestfirðingum frítt á ball. Benedikt Sig- urðsson, einn af skipu- leggjendum dansleiksins, segir markið sett hátt og vonir manna standi til þess að slá nýlegt met Geir- mundar Valtýssonar þegar hann fékk 1.500 manns á ball. Ætlunin er að dansa í íþróttahúsinu kl. 15 -18 og verður Jónsi Evróvísjón- fari aðalnúmerið.

x

Bæjarins besta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.