Bæjarins besta - 28.04.2004, Side 12
MIÐVIKUDAGUR 28. APRÍL 200412
STAKKUR SKRIFAR
„Björn síns tíma“
Stakkur hefur
ritað vikulega pistla í
Bæjarins besta í mörg
ár. Skoðanir hans á
mönnum og málefn-
um hafa oft verið
umdeildar og vakið
umræður. Þær þurfa
alls ekki að fara
saman við skoðanir
útgefenda blaðsins.
Þrátt fyrir það bera
ábyrgðarmenn
blaðsins ábyrgð á
skrifum Stakks á
meðan hann notar
dulnefni sitt.
Smáauglýsingar
Óska eftir að kaupa Trip Trap
stól. Uppl. í síma 456 4494.
Óska eftir pústgrein á Buhk báta-
vél. Einnig óskast sleði undir
Dancall farsíma. Upplýsingar í
síma 894 1829.
Til sölu eru dekk og álfelgur af
Toyota Landcruiser árg. 1998.
Uppl. í síma 695 8171.
Ósóttir vinningar í páskaeggja-
happdrætti Vestra óskast sóttir
sem fyrst. Ósótt vinningsnúmer
eru: 66,70,306,375 og 476.
Nánari upplýsingar eru veittar í
símum 456 3547 og 862 6088.
Til sölu er Dísargufl og búr fyrir
kr. 10 þús. Upplýsingar í síma
456 4645.
Spilavist er í Guðmundarbúð á
föstudagskvöld kl. 20.
Til sölu er MMC Lancer árg. 94,
ekinn 128 þús. km. Upplýsingar
í síma 861 8980.
Lumar þú á hamar og sög sem þú
notar ekki lengur? Sé svo hefur
Holt friðarsetur not fyrir slíkt í
skógrækt og smíðavöll á sumar-
námskeiðum. Upplýsingar gefnar
í síma 868 3636.
Ungan mann bráðvantar ísskáp.
Uppl. í síma 845 2685.
„Sólin sendir yl“ verður lag Sæluhelgarinnar 2004
Lag Sæluhelgarinnar árið
2004 var valið við hátíðlega
athöfn í félagsheimilinu á Suð-
ureyri á sumardaginn fyrsta.
Sex lög kepptu um útnefning-
una og varð lagið „Sólin sendir
yl“ eftir Súgfirðingana Siggeir
Siggeirsson í Reykjavík og
Steinunni Þórhallsdóttur í
Kópavogi, fyrir valinu. Tæp-
lega 100 manns fylgdist með
flutningi laganna og giltu at-
kvæði úr sal 40% en mat dóm-
nefndar 60%.
Félagskapurinn Mansavinir
stendur að Sæluhelginni sem
er árviss viðburður í Súganda-
firði í júlí. Ævar Einarsson,
einn af forsprökkum félagsins,
segir áhorfendur og dómnefnd
hafa verið samdóma um val
lagsins. Lögin höfðu verið
hljóðrituð á geisladiska og
voru flutt í hljóðkerfi. Ævar
segir keppnina smám saman
hafa verið opnast, framan hafi
forvígismenn Sæluhelgarinnar
ráðið höfunda til verksins en í
fyrra hafi í fyrsta skiptið verið
efnt til samkeppni þar sem al-
menningi gafst kostur á að
senda inn lög.
„Við höfum smám saman
verið að opna þetta og nú tók-
um við skrefið að leyfa fólkinu
að hlusta á og kjósa. E.t.v.
verða lögin flutt lifandi næst –
við tökum eitt skref í einu.
Hver veit nema síðan verði
gefinn út diskur með Sælu-
helgarlögum síðustu ára.“ Sig-
geir sér sjálfur um flutning
sigurlagsins, sem verður hljóð-
ritað við fullkomnar aðstæður
í stúdíói, og segir Ævar stefnt
á að það komist í spilum sem
fyrst. Sigurvegurunum er að
Súgfirðingarnir Steinunn
og Siggeir áttu sigurlagið
sjálfsögðu boðið á Sæluhelgi
og fengu að launum flugfar
sem Fiskvinnslan-Íslandssaga
gefur.
Sjö manna dómnefnd var
skipuð fulltrúum nágranna-
byggðarlaga Suðureyrar og
sigurvegurum keppninnar frá
því í fyrra þeim Snorra Sturlu-
syni og Einar Erni Konráðs-
syni. Ævar segir fyrirkomu-
laginu ætlað að efla tengslin
við nágrannabyggðalögin.
Formaður dómnefndar var
Hulda Bragadóttir frá Ísafirði
og með henni störfuðu þau
Lena Sigurðardóttir, Suður-
eyri, Erna Thorlacius Önund-
arfirði, Pálína Vagnsdóttir,
Bolungarvík, og Sigmundur
Þórðarson, frá Þingeyri.
Ævar segir Mansavini vilja
þakka fyrir góðar móttökur,
góð lög og góða mætingu á
fyrstu opnu keppnina um
Sæluhelgarlagið sem hann
vonar að verði árviss viðburð-
ur á sumardaginn fyrsta.
Hulda Bjarnadóttir, fulltrúi sigurvegaranna, tekur við viðurkenningu frá Ævari Einarssyni. Á milli þeirra sést Magnús Há-
varðarson sem átti lag í keppninni. Mynd: Páll Önundarson.
Ásgeir Ásgeirsson, verk-
fræðingur, hefur tekið við
starfi framkvæmdastjóra
Póls hf. af Halldóri Hall-
dórssyni, viðskiptafræð-
ingi, sem hefur gegnt starf-
inu síðastliðið ár. Marel hf.
tók formlega við rekstri
Póls hf. þann 1. apríl síð-
astliðinn í kjölfar áreiðan-
leikakönnunar um kaup
félagsins á Póls hf. Ásgeir
mun áfram gegna starfi
sínu sem framkvæmda-
stjóri vöruþróunar hjá
Marel, að því er fram
kemur í tilkynningu frá
Póls hf.
Nýr stjóri hjá
Póls á Ísafirði
Vart verður dregið í efa að Björn Bjarnason ráðherra dóms- og kirkjumála sé nú
einn umdeildasti stjórnmálamaður á Íslandi. Svo langt hefur gengið að pólitískir
andstæðingar Björns hafa tekið að hrósa honum fyrir störf hans fyrrum í ráðuneyti
mennta og menningar. Slíkt hrós heyrðist ekki áður, en nú liggur mikið við. Hæst
hefur látið nú nýverið vegna ummæla ráðherrans í tengslum við umdeilda skipun
Ólafs Barkar Þorvaldssonar í dómarasæti Hæstaréttar. Stjórnmálamenn eru misjafnir
og það eru lögfræðingar einnig. Björn er lögfræðingur og það eru þeir félagar Ólaf-
ur Börkur og Jónas Jóhannsson héraðsdómari í Hafnarfirði, áður á Ísafirði, einnig.
Hann ritaði um síðustu helgi langa grein í Fréttablaðið og gagnrýndi skipun skólafé-
laga síns Ólafs Barkar í Hæstarétt, en taldi hann þó hinn vænsta dreng.
Allir telja sig nú eiga veiðirétt á Björn, en er það sanngjarnt og réttmætt? Og í
framhaldinu mætti spyrja, hvað er jafnrétti kynjanna? Af umfjöllun blaða, útvarps
og sjónvarps að dæma hefur hver og einn sína skoðun á því. Mönnum er hugsanlega
brugðið við það að dómsmálaráðherra lætur ekki deigan síga í þessu máli, en nú
koma einnig menn fram á völl fjölmiðlanna og lýsa Ólafi Berki sem vænsta manni.
Hann virðist hafa unnið sér það til sakar að vera ungur og efnilegur og að auki karl-
kyns. Verst er þó af öllu vondu að hann skuli vera frændi Davíðs Oddssonar, sem
verið hefur forsætisráðherra um langt skeið. Björn hefur réttilega bent á ýmislegt
máli sínu til stuðnings, eins og það að hann fari með skipunarvaldið og einnig að
Hæstiréttur hafi talið Ólaf Börk hæfan til dómarastarfa. Hæfasta taldi þó rétturinn
tvo karla, sem ekki voru skipaðir, en Hjördís Hákonardóttir, sem nú leitar réttar síns
á grundvelli laga um jafnrétti kynjanna, kom þar að baki. Vissulega er rétt að hún
er hæf og mæt kona og að sjálfsögðu lögfræðingur.
Björn Bjarnason hefur lýst skoðun sinni á hreinskilinn og beinan hátt og það
virðist koma andstæðingum hans í stjórnmálum mjög á óvart, því jafnréttismál
hafa ekki þolað mikla pólitíska gagnrýni og verið rædd í snyrtilega afmörkuðum
bás síðustu árin. Þar með er því ekki haldið fram að jafnrétti eigi ekki rétt á sér. Það
á svo mikinn rétt á sér að ekki ætti að þurfa að setja um það sérstök lög. Nægir að
nefna hörmungarnar sem á dundu í framhaldi ráðningar leikhússtjóra á Akureyri
og leiddu til þess að forstöðumaður jafnréttismála íslenska ríkisins hvarf frá störf-
um. Hver dæmdi í því máli annar en Hæstiréttur? Þjóðin og stjórnmálamenn höfðu
kveðið upp sína dóma, en Hæstiréttur komst að þeirri niðurstöðu að karlmaðurinn
sem ráðinn var leikhússtjóri væri til þess hæfur.
Björn Bjarnason er vissulega umdeildur og kannski eins gott því hann tekur
ákvarðanir og stendur við þær. Hann er reiðubúinn að taka niðurstöðu þar til bærra
dómstóla um verk sín, og reyndar er ekki víst að þeir dæmi með sama hætti og
þjóðin, fjölmiðlafólk og alþingismenn, sem eins og venjulega reyna að koma
höggi á pólitíska andstæðinga. En Björn er hins vegar barn síns tíma, okkar tíma,
og óhræddur við tjáningarfrelsið og að koma skoðunum sínum í verk. Það mættu
fleiri, bæði kollegar hans í stjórnmálum og aðrir taka sér til fyrirmyndar. Þjóðinni
er þörf lifandi umræðu og nú er komið að því að skilgreina hvort jákvæð mismun-
un sé rétta leiðin.