Bæjarins besta - 28.04.2004, Síða 15
MIÐVIKUDAGUR 28. APRÍL 2004 15
> Stöð 2: 1. maí kl. 21:30
Madonna leikur aðalhlutverkið í
rómantísku gamanmyndinni Swept
away, sem segir frá Amber Leighton
sem er fertug frekjudós. Hún er
vön að fá öllu sínu fram og í
skemmtisiglingu á Miðjarðarhafi
fær áhöfn skipsins það óþvegið. En
þá skellur stormur á og atvikin
haga því þannig að Amber og einn
úr áhöfninni lenda á eyðieyju...
Frekjudósin Madonna
Sælkeri vikunnar
er Hulda Guðmundsdóttir á Ísafirði
Fiskur í
karrýsósu
og kókos-
pilaf
Sportið í beinni
Sýn:
Miðvikudagur 28. apríl:
Kl. 16:45 – Landsleikur.
Lettland – Ísland.
Kl. 20:00 – Meistaradeildin:
Deportivo – AC Milan
Laugardagur 1. maí:
Kl. 11:20 – Enski boltinn:
Arsenal – Birmingham.
Kl. 19:50 – Spænski boltinn:
Deportivo – Real Madrid
Sunnudagur 2. maí:
Kl. 12:50 – Enski boltinn:
Bolton – Leeds
Kl. 14:55 – Enski boltinn:
Liverpool – Middlesbrough
Þriðjudagur 4. maí:
Kl. 18:30 – Meistaradeildin:
Deportivo – Porto
Stöð 2:
Laugardagur 1. maí.:
Kl. 14:00 – Enski boltinn:
Chelsea – Southampton
Canal+ Nordic:
Laugardagur 1. maí:
Kl. 14:00 – Enski boltinn:
Chelsea – Southampton
Sunnudagur 2. maí:
Kl. 13:00 – Enski boltinn:
Bolton – Leeds United
Kl. 15:00 – Enski boltinn:
Liverpool – Middlesbrough
Canal+ sport:
Laugardagur 1. maí:
Kl. 11:30 – Enski boltinn:
Arsenal – Birmingham.
Kl. 14:00 – Enski boltinn:
Blackburn – Man. Utd.
Sunnudagur 2. maí:
Kl. 13:00 – Enski boltinn:
Bolton – Leeds United
TV2 Danmark:
Miðvikudagur 28. apríl:
Kl. 18:00 – Landsleikur:
Danmörk – Skotland
Kanal 5 Svíþjóð:
Miðvikudagur 28. apríl:
Kl. 19:15 – Landsleikur:
Portúgal – Svíþjóð.
Laugardagur 1. maí:
Kl. 13:30 – Þýski boltinn:
W. Bremen – Hamburg
TV4+ Svíþjóð:
Laugardagur 1. maí:
Kl. 20:00 – Spænski boltinn:
Deportivo – Real Madrid
Sunnudagur 2. maí:
Kl. 13:00 – Ítalski boltinn:
AC Milan – Roma
Kl. 15:30 – Spænski boltinn:
Valencia – Real Betis
Kl. 19:30 – Spænski boltinn:
Barcelona – Espanyol
skrifa.com
Upplýsingavefur
gervihnattafólksins
Afruglarar ·
kort · brennarar og
allt annað til að
fullnýta búnaðinn.
Símar 893 5804 og
482 3929 alla virka
daga frá kl. 13-23
Bifhjólakennsla
Bifhjólakennsla verður á Ísafirði í byrjun
maí. Fræðilegt námskeið verður helgina 8.-
9. maí og verklega kennsla helgina á eftir.
Upplýsingar gefa Arnór í síma 848 6933
eða Eggert í síma 893 4744.
Hringið ódýrt
til útlanda
1cellnet býður ódýr símtöl með nýrri TLC
tækni. Hringið út um allan heim með heima-
síma, GSM eða tölvu fyrir $ 0.10 á mínútu
(ca. 7,35 kr.).
Áttu ættingja eða vini erlendis?
Ertu í viðskiptum?
Lækkaðu símareikninginn. Skoðið nánar
á slóðinni: http://1cellnet.com/dane.
Allar upplýsingar og aðstoð. Hafið sam-
band.
Daníel Engilbertsson,
Sími 847 3422
Netfang: dane@strik.is
Smíðavinna!
Get bætt við mig verkefnum.
Gluggar og fög, útihurðir, innréttingar,
sólpallar og parket eða hvað annað sem
þörf er á.
Halldór Antonsson,
Aðalstræti 16,
símar: 456 3041 og 690 2202.
Það er alltaf til ýsa í fryst-
inum og stundum hefur mér
fundist skorta uppskriftir sem
gera hana spennandi. Í upp-
skriftabók með réttum úr Kara-
bíska hafinu, rakst ég hins veg-
ar á uppskrift sem ég hef heim-
fært upp á ýsuna, en að sjálf-
sögðu geta aðrar fisktegundir,
eins og t.d þorskur eða stein-
bítur, komið í hennar stað.
Þessi uppskrift á það sameigin-
legt með seinni uppskriftinni
að kókosmjólkin kemur við
sögu, en kryddnotkunin er
einfaldari. Ég kasta henni hér
fram eftir minni.
2-3 ýsuflök, roðlaus
limesafi
50 g smjör
1 laukur, sneiddur
1 msk karrý
1 msk hveiti
3 tsk kóríander (má sleppa)
400 ml kókósmjólk
1 grænn chili
salt og svartur pipar úr kvörn
kóríanderlauf eftir smekk
Laukurinn er mýktur í
smjörinu. Eftir 2-3 mínútur er
karrý og hveiti bætt út á pönn-
una og hrært duglega í. Einnig
er gott að krydda með kóríand-
er. Kókosmjólkinni er hellt út
á og hrært vel í. Söxuðu chili
er bætt út í, með eða án fræja,
og piprað og saltað að smekk.
Sósan er látin malla í nokkrar
mínútur.
Á meðan er fiskurinn settur
í mót, gott er að skera hvert
flak í 3 bita, og limesafa dreypt
yfir. Þegar fiskurinn hefur hvít-
nað aðeins er sósunni hellt út á
og álpappír settur yfir mótið.
Rétturinn er bakaður í ofni í
u.þ.b. 12 mínútur og ferskt
kóríander rifið yfir.
Þar sem ferskt kóríander er
dýrt og alls ekki alltaf til er
hægt að sleppa því eða láta
steinselju koma í þess stað.
Með þessu er gott að bera
fram hrísgrjón, snittubrauð og
mango-chutney, eða það sem
magi og hugur girnist.
Kókos-pilaf
með kjúklingi
Þegar kemur að góðum ind-
verskum hversdags/spariréttum
er af nógu að taka. Best er að
rétturinn uppfylli bæði skilyrðin
og sé jafnboðlegur í matarboð-
inu og hvunndags. Það gildir
um uppskriftina sem hér kemur
á eftir.
grænmetisolía til steikingar
1 úrbeinuð, skinnlaus kjúkl-
ingabringa (að sársaukalausu
má nota meira af kjúklingi
eða afganga af t.d. lamba-
kjöti)
2 laukar, sneiddir
1 tsk cuminfræ (broddkúmen)
1 kanilstöng
fræ úr 4 grænum kardi-
mommubelgjum
3 negulnaglar
1 tsk túrmerik
200 g basmati hrísgrjón
400 ml dós af kókosmjólk
½ bolli vatn
½ bolli pistasíuhnetur, rist-
aðar og saxaðar
¼ bolli af rúsínum
salt og svartur pipar úr kvörn.
Skerið kjúklingabringurnar í
bita, steikið, saltið og piprið.
Haldið heitu.
Laukurinn er mýktur í olíunni
við miðlungshita í u.þ.b. 4
mínútur Kryddinu bætt út í
og hrært saman við í 2 mín-
útur. Hrísgrjónin eru þessu
næst sett út í og áfram hrært
í mínútu til. Kókósmjólkinni
og vatninu er hellt út í og
suðan látin koma upp.
Mér hefur fundist ágætt
að setja ekki allan vökvann
út í í einu og bæta frekar við
á eldunartímanum. Eins get-
ur verið ágætt að nota meira
vatn, á kostnað kókosmjólk-
urinnar, en það er smekks-
atriði.
Látið malla undir loki í
u.þ.b. 20 mín, eða þar til
vökvinn hefur gufað upp og
hrísgrjónin eru orðin mjúk.
Saltið og piprið eftir smekk.
Bætið kjúklingnum við
hrísgrjónin síðustu 5 mínút-
urnar og hrærið hnetunum
og rúsínunum saman við rétt
áður en maturinn er borinn
fram.
Með þessum rétti er gott
að búa til/hita Naan-brauð.
Annað meðlæti er óþarft.
Uppskriftirnar hafa tekið
smávægilegum breytingum
í mínum meðförum, enda
nauðsynlegt að smakka sig
til og gera uppskriftirnar að
sínum. Njótið vel.
Það tilheyrir þeim heiðri
að vera matgæðingur í BB
að fá að kasta boltanum
áfram. Mér dettur í hug að
Inga Bára Þórðardóttir,
fyrrum samstarfskona mín
á Skólaskrifstofu Vestfjarða
heitinni, geti boðið upp á
einhverjar spennandi upp-
skriftir.
Halldór Karl hlutskarpastur í Norð-
urlandakeppni matreiðslunema
Bolvíkingurinn Halldór Karl Valsson, matreið-
slunemi á Hótel Sögu, varð hlutskarpastur
ásamt félaga sínum Sigurði Daða Friðrikssyni,
matreiðslunema á Tveimur fiskum, í Norður-
landakeppni framreiðslu- og matreiðslunema
sem lauk á mánudag í Gautaborg í Svíþjóð.
Danir urðu í öðru sæti og Finnar í því þriðja en
Svíar og Norðmenn deildu fjórða sætinu. Ís-
lensku framreiðslunemarnir höfnuðu í þriðja
sæti.
Íslensku keppendurnir voru þeir sem stóðu
sig best í keppninni um besta framreiðslu- og
matreiðslunema ársins 2003 á Íslandi, sem hald-
in var á Akureyri fyrir ári. Keppendurnir hafa
síðan varið miklum tíma til æfinga. Halldór Karl Valsson fyrir miðju ásamt félögum sínum.