Bæjarins besta - 03.11.2004, Side 2
MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 20042
Bæjarskiltin
á Óshlíðinni
Bæjarskilti á Óshlíðinni
sem bera nöfn Ísafjarðar
og Bolungarvíkur urðu
nýlega fyrir árekstri og
grjótskriðu. Í síðustu viku
var keyrt á Bolungarvíkur-
skiltið sem skemmdist og
verður því að fá nýtt skilti.
Grjótskriða féll á Ísa-
fjarðarskiltið sem er þó
óskemmt en skipta þarf
um undirstöður á því.
„Búið er að moka hluta
af skriðunni burt en skiltið
verður ekki sett upp aftur
fyrr en því er lokið. Hins
vegar þarf að sérpanta nýtt
Bolungarvíkurskilti og
gæti tekið nokkrar vikur
að framleiða það“, segir
Geir Sigurðsson hjá
Vegagerðinni á Ísafirði.
thelma@bb.is
Kempurnar
og Fúsíjama
sigruðu
Kempurnar (KFÍ-b)
sigruðu Bolvíkinga í
UMFB 94-52 á föstudag í
íþróttahúsinu á Torfnesi.
Sex leikmenn hjá Kempun-
um skoruðu 10 stig eða
meira og var Magnús Þór
Heimisson stigahæstur
með 18 stig. Ingólfur Hall-
grímsson og Bjarni Jóns-
son voru stigahæstir hjá
UMFB með 14 stig hvor.
Þá mættust UMFB og
Fúsíjama í Bolungarvík á
sunnudag og sigruðu
Hnífsdælingar 61-84.
Þórarinn Ólafsson var
stigahæstur Fúsijama-
manna með 21 stig en hjá
UMFB var Sigurvin Guð-
mundsson hæstur með 17 stig.
Staðan í Vestfjarðariðl-
inum er nú sú að Kemp-
urnar og Fúsíjama eru
efstir með 4 stig hvor. Næst
á eftir kemur Hörður með
2 stig en Fúsijama-b og
UMFB eru í 4-5 sæti með
ekkert stig.
– thelma@bb.is
Ungur Bolvíkingur, Stefán
Örn Finnbjörnsson, var í
sigurliði í betadeild í for-
ritunarkeppni framhalds-
skólanna sem fram fór í
Háskólanum í Reykjavík á
laugardag. Stefán Örn
keppti fyrir hönd Iðnskól-
ans í Reykjavík og er þetta
annað árið í röð sem hann
er í sigurliði í keppninni.
Háskólinn í Reykjavík
stendur fyrir keppninni og
var dómnefnd skipuð
kennurum við tölvunar-
fræðideild skólans. Þrír
framhaldsskólanemendur
eru í hverju liði og lið
Stefáns Arnar bar nafnið
X-Paradox.
– thelma@bb.is
Bolvíkingur í
sigurliði í for-
ritunarkeppni
Skeljungur og Olís skiptu með
sér viðskiptum á Ísafirði
Í skýrslu Samkeppnisráðs
um meint samráð olíufélag-
anna kemur fram að Skeljung-
ur og Olís hafi skipt með sér
viðskiptum á Ísafirði í gegnum
umboðsfyrirtæki sitt Olíufélag
útvegsmanna á Ísafirði. Auk
samráðs um skiptingu við-
skipta telur samkeppnisráð að
félögin hafi haft samráð um
afslátt á olíusölu til Orkubús
Vestfjarða í kjölfar náttúru-
hamfaranna í Súðavík og á
Flateyri árið 1995. Í skýrslunni
segir meðal annars:
„Gögn málsins sýna að Olís
og Skeljungur hafa haft með
sér markaðsskiptingu á Ísa-
firði. Fram til ársins 1997 var
fyrirkomulagið með þeim
hætti að allri sölu á staðnum
var skipt til helminga en síðan
var stórum viðskiptavinum
skipt upp á milli félaganna en
sölu til smærri aðila var áfram
skipt til helminga.“
Tekist á um Gylli ÍS
„Á Ísafirði hefur Olíufélag
útvegsmanna (OÚ) verið sam-
eiginlegur umboðsaðili Skelj-
ungs og Olís. Í fundargerð
framkvæmdastjórnar Skelj-
ungs frá 11. janúar 1993 er
bókað að OÚ hafi annast olíu-
afgreiðslu til togarans Gyllis
frá Flateyri. Síðan er bókað að
ræða ætti við Olís „um sölu-
skiptingu á staðnum“.
Í fundargerð framkvæmda-
stjórnar Skeljungs frá 26. októ-
ber 1993 segir að ræða þyrfti
við fulltrúa Olís um framtíðar-
stefnu hvað varðar söluskipt-
ingu og samstarf félaganna á
Ísafirði. Í málinu er einnig að
finna minnisblað forstjóra
Skeljungs til formanns og
varaformanns stjórnar fyrir-
tækisins. Minnisblaðið er frá
desember 1995 og í því er gerð
grein fyrir hugsanlegum breyt-
ingum á eignarhaldi OÚ og
sérstaklega tekið fram að
„hingað til hafi allri sölu þar
á svartolíu og gasolíu verið
skipt að jöfnu milli Olís og
Skeljungs.“
Afsláttur vegna
náttúruhamfara
„Þann 5. janúar 1996 er bók-
að í fundargerð hjá Skeljungi
að Orkubú Vestfjarða hafði
óskað eftir afslætti vegna við-
skipta á árinu 1995 sem hefðu
verið margföld vegna náttúru-
hamfaranna í Súðavík og Flat-
eyri. Fram kemur að fram-
kvæmdastjóri markaðssviðs
stórviðskipta myndi gera til-
lögu til Olís um afslátt til
Orkubúsins „þar sem Olís
hefur helming viðskipta á Ísa-
firði“.
Þann 15. febrúar 1996 sendi
framkvæmdastjórinn hjá
Skeljungi bréf til fram-
kvæmdastjóra markaðssviðs
smásölu hjá Olís og gerði grein
fyrir beiðni Orkubúsins um af-
slátt vegna náttúruhamfaranna
í Súðavík og á Flateyri. Gerði
framkvæmdastjórinn tillögu
um tiltekinn afslátt sem „Olís
og Skeljungur hf. skipta með
sér að jöfnu í takt við skiptingu
viðskipta...“
Viðræður um nýja
markaðsskiptingu á
Ísafirði
„Í lok árs 1996 og á árinu
1997 áttu sér stað viðræður
milli Olís og Skeljungs um
nýja markaðsskiptingu. OÚ
kom einnig að þeirri umræðu.
Greint er frá þessu í tölvupósti
sem ritari forstjóra Olís sendi
fyrir hans hönd til m.a. fram-
kvæmdastjóra markaðssviða
smásölu og stórnotenda hjá
félaginu. Þar segir m.a. þetta:
Í samráði við Skeljung og
Olíufélag útvegsmanna á Ísa-
firði hefur verið ákveðið að
skipta upp viðskiptum félag-
anna á Ísafirði þannig að Olís
og Skeljungur geri beina
samninga um viðskiptakjör við
stærri notendur á svæðinu.
Ekki er endanlega ákveðið
hvernig skiptum verður háttað
þar sem m.a. er beðið eftir
niðurstöðu hugsanlegrar
sameiningar Hrannar og Sam-
herja. Þó hefur þegar verið
ákveðið að Olís þjónusti
Gunnvöru hf. með Júlíus
Geirmundsson ÍS og Framnes
ÍS...“
Hjá Olís fundust gögn frá
OÚ sem dagsett eru í október
og nóvember 1996. Þar komu
fram hugmyndir um skiptingu
stórra viðskiptavina á Ísafirði
milli Olís og Skeljungs. Í einu
gagninu er t.d. við það miðað
að Orkubú Vestfjarða og Ís-
húsfélag Vestfirðinga (á senni-
lega að vera Íshúsfélag Ísfirð-
inga. Innskot: BB) verði í við-
skiptum við Olís og í öðru
gagni er lagt til að þessir aðilar
verði hjá Skeljungi.
Tengjast þessi skjöl framan-
greindri markaðsskiptingu.
Þann 7. janúar 1997 sendi
Skeljungur tölvupóst til Olís
og óskaði eftir fundi til að ræða
viðskipti á Ísafirði. Þann 12.
febrúar 1997 sendi forstjóri
Olís tölvupóst til m.a. fram-
kvæmdastjóra markaðssviða
smásölu og stórnotenda hjá
félaginu og gerði grein fyrir
umræðum um Ísafjörð.
Fjallaði hann m.a. um bók-
haldslega útfærslu á nýju fyrir-
komulagi og tók fram að
„aðrir smærri notendur sem
skráðir verði viðskiptavinir
Olís skv. samkomulagi við
Skeljung verði áfram í við-
skiptareikningi“ hjá OÚ.
Rætt var einnig um bók-
haldsmál þessu tengd í skjali
frá Skeljungi sem tekið var
saman í október 1997. Þar var
sagt að ræða þyrfti við Olís
um „fyrirkomulag útskuldunar
hjá OÚ m.t.t. viðskiptavina
sem ekki eiga að vera í skipti-
sölu“.
Á þessum tíma var einnig
umræða um það hvort Skelj-
ungur myndi halda áfram
samstarfi sínu við OÚ. Skelj-
ungur ákvað að halda sam-
starfinu áfram og greindi for-
stjóri Olís frá þessu í tölvupósti
til samstarfsmanna sinna hjá
félaginu.
Þar kemur einnig fram að
Olís hafi rætt við OÚ og þar
hafi þetta komið fram: Vorum
sammála um að stórnotendur
gengju óskiptir til þess sem
hefur viðskiptin, en síðan gæti
OÚ verið með einhvern safn-
reikning fyrir tilfallandi
smærri kúnna, sem skipt yrði
til helminga milli Olís og Shell.
„Orkubúið í
okkar hlut“
Á árinu 1998 kom upp um-
ræða milli Skeljungs og Olís
um fyrirkomulag á samstarfinu
á Ísafirði. Skeljungur setti
fram þá hugmynd að fyrir-
tækið myndi annast alla dreif-
ingu fyrir OÚ og Olís. Olís
gat ekki sætt sig við það og
vildi óbreytt fyrirkomulag.
Annars gæti Olíudreifing
(ODR) tekið við því hlutverki
sem OÚ hefði sinnt fyrir Olís.
Þessi mál voru rædd á fundi
Skeljungs og Olís 23. júlí
1998. Framkvæmdastjóri
markaðssviðs stórviðskipta
grein fyrir sendi forstjóri
Skeljungs þann 21. september
1999 tölvupóst til forstjóra
Olís og var efni hans „slæmar
fréttir“. Í honum kvartaði hann
yfir tilboðum Olís til m.a. Þor-
bjarnar-Fiskaness í Grindavík
og nýs fyrirtækis á Vestfjörð-
um, Hraðfrystihússins-Gunn-
varar hf. Það fyrirtæki varð til
við samruna Gunnvarar hf. og
Hraðfrystihússins hf. Daginn
eftir svaraði forstjóri Olís
tölvupósti forstjóra Skeljungs.
Í svari hans mótmælti hann
því að hafa gert umrætt tilboð.
Varðandi hið nýja fyrirtæki
á Vestfjörðum sagði forstjóri
Olís þetta: Varðandi Vest-
fjarðafyrirtækið vil ég auk
þess taka fram að í þeirri heim-
sókn óskaði ég eingöngu eftir
að við fengjum að halda þeim
tveimur skipum, sem við höfum
þjónustað, svo sem við höfum
áður rætt að þínu frumkvæði.
[...] Legg til að við höldum
okkur við það, eins og áður
rætt, að tala saman áður en
við trúum einhverju [sic!], sem
á okkur er logið. Legg jafn-
framt til að þú hringir þegar
þú kemur heim.
„Samkeppnisstofnun hefur
spurt forstjóra Olís um þessi
samskipti við Skeljung. Í svari
hans segir m.a. þetta: Varð-
andi Hraðfrystihúsið Gunnvör
sem minnst væri á í nefndum
bréfaskriftum milli KB og EB
sagði EB að það tengdist um-
boði og birgðastöð sem Olís
og Skeljungur rækju sameigin-
lega á Ísafirði. Þar hafi
fyrirkomulagið áður verið svo
að öllum viðskiptunum var
skipt jafnt milli félaganna. Fé-
lögin hafi hins vegar orðið
sammála um að þetta gengi
ekki og ákveðið nýtt fyrir-
komulag. Nú væri því fyrir-
komulagið þannig að Olís og
Skeljungur hefðu í aðal-
atriðum sína viðskiptamenn,
að því undanskildu að við-
skiptum við nokkra smærri
báta væri skipt milli félag-
anna.
Þessi gögn sýna skýrlega
fram á viðræður milli Olís og
Skeljungs um skiptingu á við-
skiptum við Hraðfrystihúsið-
Gunnvöru og staðfesta mark-
aðsskiptinguna á Ísafirði.
Þegar þetta og önnur
framangreind gögn eru virt
telur Samkeppnisstofnun ljóst
að frá gildistöku samkeppnis-
laga og fram á árið 1997 hafi
Olís og Skeljungur skipt til
helminga allri sölu fyrir-
tækjanna á Ísafirði. Frá 1997–
2001 hafi fyrirkomulagið verið
með þeim hætti að stórum
viðskiptavinum hafi verið
skipt upp á milli félaganna
samkvæmt samkomulagi
þeirra á milli en sölu til smærri
aðila áfram verið skipt til
helminga. Fara þessar aðgerðir
Olís og Skeljungs ótvírætt
gegn 10. gr. samkeppnislaga.“
hjá Skeljungi tók saman
minnispunkta eftir þann fund
og sendi þá framkvæmdastjóra
markaðssviðs stórnotenda hjá
Olís.
Í lýsingu á niðurstöðu fund-
arins kemur þetta m.a. fram:
Niðurstaða fundar. JH/Olís
telur ekkert því til fyrirstöðu
að ODR taki við dreifingu og
afgreiðslum fyrir hönd Olís
við Djúp, svo framarlega sem
ekki næst saman með aðilum
um óbreytt fyrirkomulag.
Skeljungur myndi þá alfarið
sjá um eigin þarfir fyrirtækis-
ins með Dreifi. Þetta hefði í
för með sér eftirfarandi: Dreif-
ing á vegum OÚ myndi falla
niður eins og fyrirliggjandi
tillögur gera ráð fyrir - Stórum
samningsbundnum kúnnum er
skipt eins og gildandi samn-
ingar segja til um. Smærri
aðilum er skipt að jöfnu. Gert
er ráð fyrir að ekki verði
ágreiningur um smærri kúnna
sem skipt er að jöfnu. Ekki
verður séð við ákvörðunum
stærri samningsbundinna
kúnna (útboð, breytt eignar-
aðild etc.)
Þetta gagn staðfestir þá
markaðsskiptingu sem Olís og
Skeljungur náðu samkomulagi
um og sýnir að félögin hafi
ákveðið að sú skipting myndi
halda áfram þrátt fyrir hugsan-
lega breytingu á samstarfi við
OÚ.
Tölvupóstur framkvæmda-
stjóra markaðssviðs stórvið-
skipta hjá Skeljungi til for-
stjóra félagsins frá október
1998 staðfestir þetta einnig. Í
honum var framkvæmdastjór-
inn að rökstyðja endurnýjun
Skeljungs á olíutönkum fyrir
Orkubú Vestfjarða. Í tölvu-
póstinum segir m.a. að í
„uppskiptum viðskipta milli
okkar og Olís hjá OÚ á sínum
tíma kom Orkubúið í okkar
hlut en var skipt að jöfnu
áður.“ Hér má einnig vísa til
tölvupósts framkvæmdastjóra
markaðssviðs stórnotenda hjá
Olís til forstjóra félagsins þar
sem lýst er fundi með
Skeljungi.“
Slæmar fréttir
„Eins og gerð hefur verið
Olíuflutningaskipið Kyndill kemur með olíu til Ísafjarðar.
44.PM5 12.4.2017, 10:462