Bæjarins besta - 03.11.2004, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 2004 11
Smáauglýsingar
Óska eftir ræstingum eða annarri
aukavinnu virka daga og/eða um
helgar. Uppl. í síma 847 3049.
Til sölu er raðhúsið Hafraholt 10
á Ísafirði. Húsið er endaraðhús,
167fm að stærð með innb.
bílskúr. Uppl. í síma 456 4681.
Til sölu er Opel Vectra, sjálfsk.
árgerð 1998, ekinn 95 þúsund
km. Góður bíll og gott verð.
Uppl. í síma 456 4181.
Til sölu eða leigu 3ja herb íbúð í
Pólgötu 6. Söluverð um 4 m kr.
og leiguverð 32 þúsund á
mánuði.Uppl í síma 849 2341.
Sveinbjörg. 848 0876. Jóhann.
Óska eftir ódýru, góðu rúmi.
Stærð 140X200. Uppl. í síma
848-4313.
MMC Lancer ́ 94 til sölu. Uppl.
í síma 861 8980.
Vestfirðingar. Ef þið þurfið að
fara til Reykjavíkur höfum við
góða íbúð í 101 handa ykkur.
Uppl. í síma 554 6396 og 487
8944.
Amma óskast. Óska eftir góðri
ömmu á Ísafirði til að passa mig
einn og einn dag í viku. Uppl. í
síma 867 2694.
Sá sem tók skófluna við húsið hjá
Dísu Alberts að Sundstræti 33,
skili henni aftur á sama stað.
Óska eftir að kaupa notaðan
ferðanuddbekk fyrir lítið verð.
Uppl. í síma 847 3050.
Til sölu er barnarúm úr tré, 76 x
176 cm. Dýna fylgir.Verð kr.
6.000 - Uppl. í síma 840 4008.
Sveitarstjóri Súðavíkur um athugasemdir umboðsmanns
Ósáttur við að ekki var leitað
skýringa hreppsnefndar
Ómar Már Jónsson sveitar-
stjóri Súðvíkurhrepps segir
það sérkennilegt að umboðs-
maður Alþingis skuli ekki hafa
kallað eftir sjónarmiðum
Súðavíkurhrepps vegna um-
fjöllunar um úthlutun hrepps-
ins á byggðakvóta.
Í áliti umboðsmanns segir
að sú ákvörðun sjávarútvegs-
ráðuneytisins að fallast á til-
lögur hreppsnefndar Súða-
víkurhrepps um úthlutun
byggðakvóta til tveggja skipa
hafi ekki verið í samræmi við
þær reglur er settar höfðu verið
við úthlutunina.
Um byggðakvótann sóttu
þrjú skip og samþykkti hrepps-
nefndin að skipta þeim á milli
tveggja skipa. Það þriðja fékk
ekki úthlutun þar sem það var
ekki talið uppfylla þær reglur
sem settar voru vegna úthlut-
unarinnar.
Umboðsmaður Alþingis
segir í áliti sínu að ekkert
þessara þriggja skipa hafi
uppfyllt reglurnar og því hafi
ráðuneytinu borið að skipta
aflaheimildunum á milli þeirra
skipa sem gerð voru út frá
Súðavík þegar kvótanum var
úthlutað.
Ómar segir það einkennilegt
að embætti umboðsmanns
Alþingis hafi ekki leitað eftir
sjónarmiðum Súðavíkur-
hrepps í málinu. Hann segir
það hinsvegar grundvallar-
atriði að ekki hafi verið brotinn
réttur á því skipi sem enga
úthlutun hafi fengið. Ákvörð-
un um að úthluta því skipi
ekki kvóta hafi því verið rétt.
Um úthlutun til hinna skip-
anna tveggja sagði Ómar að
hreppsnefndin hafi vitað að
ekki var formlega búið að skrá
skipin í Súðavík af ýmsum
tæknilegum ástæðum.
„Þessir bátar höfðu hins
vegar um skeið verið gerðir út
frá Súðavík og eigandi þeirra
var hér búsettur. Hreppsnefnd
vissi að til stæði að skrá skipin
í Súðavík og þar eru þau skráð
í dag. Það hefur því staðið það
sem til stóð á þeim tíma og að
því leyti var úthlutun okkar
rétt. Hins vegar uppfylltum við
ekki nákvæmlega öll tæknileg
atriði og það munum við taka
til athugunar í framtíðinni.
Úthlutun veiðiheimilda verður
aldrei hávaðalaus. Það má
hinsvegar ekki koma í veg fyrir
þann möguleika að koma
byggðarlögum til aðstoðar
vegna skerðinga í veiðiheim-
ildum. Við vonum svo
sannarlega að byggðakvóta
verði áfram úthlutað. Megin
málið er að við þessa úthlutun
var ekki brotið á rétti neins er
um kvótann sóttu“, segir Ómar
Már Jónsson. – hj@bb.is
Súðavík.
Hjálmar Árnason um mótmæli framsóknarfélaga
„Hlustum á fólk“
ekki ræða þetta mál“.
Eins og áður segir hafa mörg
félög framsóknarmanna á
Vestfjörðum og á Snæfellsnesi
samþykkt ályktanir þar sem
mótmælt er þeirri ákvörðun
þingflokks Framsóknarflokks-
ins að útiloka Kristin frá setu í
þingnefndum á vegum þing-
flokksins.
Flestar eru ályktanirnar
mjög harðorðar þegar haft er í
huga að þarna eru flokksfélög
að álykta um störf síns eigin
þingflokks. Meðal þess sem
félögin hafa nefnt er að með
samþykkt þingflokksins hafi
verið vegið að lýðræði í
flokknum, skert hafi verið
vægi flokksmanna og kjós-
enda og að ákvörðunin sé
mannréttindabrot gagnvart
Kristni og kjósendum flokks-
ins. Þá er einnig nefnt að sam-
þykkt þingflokksins sé atlaga
að landsbyggðinni.
Þá er í nokkrum tilvikum
þingflokkurinn krafinn tafar-
lausra skýringa á þessari
ákvörðun og jafnframt skorað
á hann að endurskoða ákvörð-
un sína. Jafnfram er í flestum
þessara samþykkta lýst yfir
fullum stuðningi við málflutn-
ing Kristins H. Gunnarssonar
og sagt að hans málflutningur
hafi verið í góðu samræmi við
almennan vilja flokksmanna í
öllum meginmálum.
Aðspurður í viðtali við vef-
inn þann 29.september sagði
Hjálmar Árnason formaður
þingflokks Framsóknarflokks-
ins að svo sársaukafull ákvörð-
un og að útiloka þingmann frá
setu í nefndum á vegum
þingflokksins væri ekki tekin
nema að vandlega athuguðu
máli. Þegar Hjálmar var spurð-
ur að því hvort þessi ákvörðun
hafi verið tekin í samráði og
með stuðningi flokksmanna í
kjördæmi Kristins vildi hann
ekki svara því að öðru leyti en
því að mál þetta hafi verið vel
undirbúið.
Í viðtali við Magnús Ólafs-
son formann Kjördæmissam-
bands Framsóknarmanna í
Norðvesturkjördæmi kom
fram þennan sama dag að
ekkert samráð hefði verið haft
við hann vegna þessarar
ákvörðunar þingflokksins en
að hann hefði verið látinn vita
skömmu fyrir fund þingflokks-
ins hvað til stæði.
Ekki náðist í Magnús Stef-
ánsson varaformann þing-
flokks Framsóknarflokksins
og þingmann Norðvesturkjör-
dæmis. – hj@bb.is
Hjálmar Árnason formaður
þingflokks Framsóknarflokks-
ins vill aðspurður lítið tjá sig
um samþykktir flokksfélaga í
Norðvesturkjördæmi sem eitt
af öðru hafa undanfarna daga
mótmælt því að Kristinn H.
Gunnarsson þingmaður haldi
ekki sætum sínum í fasta-
nefndum þingsins.
Aðspurður hvort að þær
samþykktir sem borist hafa að
undanförnu frá flokksfélögum
bendi ekki til þess að málið
hafi ekki verið eins vel undir-
búið og látið var í skína á
sínum tíma segir Hjálmar að
það verði hver og einn að meta
fyrir sig. „Hið endanlega
ákvörðunarvald var í höndum
þingflokksins og það var hann
sem tók sína ákvörðun“.
Aðspurður hvort þessar
samþykktir flokksfélaga væru
ekki mikið vantraust á þing-
flokkinn sagði Hjálmar: „Ég
geymi það hjá mér hvernig ég
lít á það mál og vil ekki tjá
mig meira um það“.
Aðspurður með hvaða hætti
þingflokkurinn myndi bregð-
ast við áskorunum flokksfé-
laga um að endurskoða um-
rædda ákvörðun þingflokksins
sagði Hjálmar: „Við hlustum
á fólk en að öðru leyti vil ég
Gerist
áskrifendur
í síma
456 4560
44.PM5 12.4.2017, 10:4611