Bæjarins besta


Bæjarins besta - 23.04.2003, Qupperneq 3

Bæjarins besta - 23.04.2003, Qupperneq 3
MIÐVIKUDAGUR 23. APRÍL 2003 3Lestu nýjustu fréttir daglega á www.bb.is Maðurinn, umhverfið og líðan hans Námskeið á sviði forvarna og heilsueflingar. Dagana 25. og 26. apríl munu Heilsubærinn Bolungarvík og Fræðslumiðstöð Vestfjarða standa fyrir námskeiði um líðan manns- ins í víðum skilningi og hvað hann getur gert til að bæta líðan sína. Á námskeiðinu munu fimm sérfræðingar fjalla um efnið út frá mis- munandi sjónarhornum. Námskeiðið verður haldið í Safnaðarheim- ilinu í Bolungarvík og stendur yfir á föstudaginn 25. apríl frá kl. 18:00-22:00 og á laugardaginn 26. apríl frá kl. 09:00-15:00. Námskeiðið er styrkt af Sparisjóði Bolungarvíkur. Þátttökugjald er kr. 1.000.- á mann og eru veitingar innifaldar. Nánari upplýsingar og skráning er hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða, www.frmst.is á netinu eða í síma 456 5025. Fyrirlestur! Föstudaginn 25. apríl heldur Magnús Ólason, endurhæfingar- læknir á Reykjalundi opinn fyrirlestur sem hann kallar Þrálátir verk- ir – faraldur nútímans. Fyrirlesturinn verður í Slysavarnahúsinu í Bolungarvík og hefst kl. 20:00. Fyrirlesturinn er öllum opinn. Aðgangur ókeypis. Kaupfélag Skagfirðinga Orðsending til sauðfjárbænda Kjötafurðastöð Kaupfélags Skagfirðinga boðar til kynningarfundar um slátrun og markaðsmál sauðfjárafurða að Hótel Ísafirði, föstudaginn 25. apríl nk. kl. 20:30. Sérstök kynning verður á breyttum áhersl- um hjá félaginu varðandi útflutning og mark- aðsmál erlendis. Vonumst eftir að sjá sem flesta bændur á fundinum. Kaupfélag Skagfirðinga, kjötafurðastöð. Vettvangsskoðun vegna fyrirhugaðs snjóflóðavarnar- garðs í Seljalandshverfi á Ísa- firði verður í dag, miðvikudag, á verkstað að viðstöddum full- trúum verkkaupanda og verk- taka. Þann 15. apríl sl. auglýsti Framkvæmdasýsla ríkisins, f.h. Ísafjarðarbæjar, eftir til- boðum í verkið og verða þau opnuð 6. maí nk. Í útboðslýs- ingunni segir að um sé að ræða 650 m langan leiðigarð og 9 keilur en gert er ráð fyrir að verkið taki tvö ár og eru áætl- uð verklok haustið 2004. Í útboðslýsingunni kemur jafnframt fram að verktaki getur hafið vinnu um mánaða- mótin maí/júní 2003 og meðal þess sem felst í verkinu er að fjarlægja gróðurþekju úr garð- stæðinu og flóðafarveginum en leiðigarðurinn skal að öllu leyti byggður úr efni á staðn- um sem fæst við gröft og mót- un flóðafarvegar garðsins. Þá skal verktaki sjá um frágang yfirborða leiðigarðs og flóða- farvegs, gerð göngustíga, gerð vinnuvegslóða sem verktaki telur nauðsynlega vegna fram- kvæmdanna, gerð drenskurð- ar og breyting á farvegi Selja- landsár á tveimur stöðum. Einnig er innifalið í verkinu að byggja nýjan aðkomuveg að skíðasvæðinu á Seljalands- dal í gegnum leiðigarðinn og ganga frá lögnum. Verktakar skoða aðstæður Snjóflóðavarnargarður fyrir ofan Seljalandshverfi Undirbúningshópur vegna byggingar framtíðarhúsnæðis fyrir Grunnskólann á Ísafirði skilaði af sér lokaskýrslu í lok síðasta mánaðar. Nú er unnið að málinu innan bæjar- kerfisins en engar ákvarðanir hafa verið teknar og skýrsla nefndarinnar hefur ekki verið kynnt opinberlega. Skarphéð- inn Jónsson, skólastjóri Grunnskólans á Ísafirði, segir starfshópinn hafa skilað af sér tillögum þar sem stuðst sé við vinningstillöguna úr arki- tektasamkeppninni frá síðasta sumri. Lítið hefur farið fyrir mál- inu í fundargerðum Ísafjarðar- bæjar en Skarphéðinn segir það ekki sofnað. Fyrr í þessari viku hafi þannig fulltrúar frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga verið á Ísafirði að kynna sér málin vegna hugsanlegrar að- komu sjóðsins að væntanleg- um framkvæmdum. Unnið að húsnæðismálum skólans innan bæjarkerfisins Grunnskóli Ísafjarðar Íslandsmeistaramótið í „border cross“ Skíðadrottningin Sigríður Þorláksdóttir frá Ísafirði sigraði í kvennaflokki á Ís- landsmeistaramóti Swatch og íslensku snjóbrettasam- takanna ISA í „border cross“ á snjóbrettum sem haldið var á Breiðadals- og Botnsheiði á laugardag. Katla Hannesdóttir frá Reykjavík hafnaði í öðru sæti en Ásta Esradóttir frá Súðavík kom þriðja í mark. Í meistaraflokki bar Jón Heiðar Andrésson frá Reykjavík sigur úr býtum en Daníel Magnússon frá Reykjavík varð annar og Bjarki Þorláksson frá Ísafirði þriðji. Í flokki 16 ára og yngri sigraði Aron Svanbjörnsson, bróðir hans Tryggvi, varð ann- ar og Kolmar Sigurðsson þriðji en þeir eru allir frá Ísa- firði. Alls tóku um 20 kepp- endur þátt í mótinu og komu þeir frá Reykjavík, Akureyri og Ísafirði. Mótið var með útsláttarfyr- irkomulagi og renndu kepp- endur sér samhliða í brautinni. Vegleg verðlaun voru í boði en Swatch umboðið á Íslandi gaf sigurvegurunum Swatch úr og verslunin Brim í Reykja- vík gaf brettaklæðnað. Rakel Sævarsdóttir hjá Swatch umboðinu segir að- standendur mótsins vera afar ánægða með hvernig til tóks þó aðstæður hafi verið nokkuð erfiðar á heið- inni. „Þetta var meiriáttar, það voru allir mjög ánægðir með þetta þannig að ég held að stemmningin verði enn betri að ári. Auðvitað hefði þetta verið auðveldara við- fangs ef skíðasvæðið, þar sem öll tæki eru fyrir hendi, hefði verið opið en mönn- um líkaði vel að vera bara úti í náttúrunni“, sagði Rak- el. Sigga Láka sigraði Keppendur á brettamótinu í brautinni. Hljómsveitin Írafár lék í þrígang fyrir Ísfirðinga og gesti þeirra á skíðaviku. Síðdegis á skírdag lék hljómsveitin á fjölsóttum barna- og unglingatónleik- um í félagsheimilinu í Hnífsdal sem voru styrktir af Hraðfrystihúsinu – Gunnvöru hf. Um kvöldið tróð sveitin svo upp óraf- magnað ásamt hljómsveit- inni Ber í Sjallanum á Ísa- firði. Hápunktinum var svo náð að kvöldi föstu- dagsins langa þegar upp- selt var á stórdansleik þeirra í félagsheimilinu í Hnífsdal. Írafár hlaut góð- ar undirtektir skíðaviku- gesta enda er hljómsveitin afar vinsæl um þessar mundir og ekki spillir fyr- ir að miklar vonir eru bundnar við þátttöku Bir- gittu í Evróvísjón söng- keppninni nú í maí. Írafár naut hylli Ísfirðinga og annara skíðavikugesta Birgitta Haukdal ásamt Sigurði Samúelssyni hinum ísfirska bassaleikara Írafárs. 16.PM5 18.4.2017, 10:573

x

Bæjarins besta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.