Bæjarins besta


Bæjarins besta - 23.04.2003, Side 8

Bæjarins besta - 23.04.2003, Side 8
8 MIÐVIKUDAGUR 23. APRÍL 2003 Lestu nýjustu fréttir daglega á www.bb.is – rætt við Ingibjörgu Maríu Guðmundsdóttur, forstöðumann Skóla- og fjölskylduskrifstofu Ísafjarðarbæjar Óhætt að biðja um aðstoð áður en allt er farið í hund og kött Töluverðar breytingar hafa orðið á rekstri félagsþjónustu og barnaverndarmála í Ísafjarðar- bæ á undanförnum árum. Nú síðast sameinuðust Ísafjarðarbær, Súðavíkurhreppur og Bolungar- víkurkaupstaður um eina sameiginlega barna- verndarnefnd fyrir svæðið. Breytingar hafa miðað að því að gera rekstur málaflokksins faglegri og draga úr þeim vanköntum sem fylgja smæð samfélagsins þegar taka þarf á erfiðum málum. Ingibjörg María Guðmundsdóttir er fyrsti forstöðumaður Skóla- og fjölskylduskrif- stofu Ísafjarðarbæjar en hún tók við starfinu þegar stofnunin var sett á laggirnar í júlímánuði árið 2000. Segir hún mikið hafa breyst í með- höndlun málaflokksins með tilkomu skrifstof- unnar. Þá hafi starfsemin eflst og fleiri fagaðilar séu til taks en áður. Ekki er laust við að ein- hverjir finni fyrir nokkrum hrolli þegar minnst er á barnaverndarnefndir enda hafa þær um mörg ár haft á sér einskonar grýluímynd af opinberum starfsmönnum sem hrífa organdi börn frá mæðrum sínum og koma þeim fyrir í umsjá ókunnungra. Fyrir nokkrum árum var tekið upp nýtt verklagskerfi við meðferð barna- verndarmála þar sem málin eru númeruð og barnaverndarnefnd kemur að þeim með óper- sónugreinanlegum hætti. Ingibjörg segir mikla ánægju með þetta fyrirkomulag, bæði hjá nefnd- armönnum og skjólstæðingum nefndarinnar. Eins hafi það vakið athygli út fyrir Ísafjarðarbæ og verið innleitt víða. Þrátt fyrir ýmsar úrbætur er óhjákvæmilegt að meðferð málaflokksins verði erfiðari í smærri samfélögum og hætta á að mál verði persónuleg. Ingibjörg féllst á að segja frá þeim breytinum sem orðið hafa á umhverfi og skipulagi málaflokksins á undanförnum árum og erfiðleikunum sem fylgja því að fjalla um svo viðkvæm málefni í nándarsamfélagi. Starfsmenn hafa stuðn- ing hver af öðrum „Þegar Skóla- og fjölskyl- duskrifstofa er stofnuð breyt- ist vinnsla barnaverndarmála. Fleira fólk sinnir málaflokk- num og starfsliðið verður fjöl- mennara vegna þess að skóla- mál, fjölskyldumál og barna- verndarmál eru unnin þarna öll saman. Áður var félags- málastjóri og einn sálfræðing- ur í hálfu starfi en þetta breytist í það að vera þrír starfsmenn inni á skrifstofunni og einn úti á heimilum. Strax við þetta breytist starfsumhverfið og verður vænlegra að því leyti að fólk hefur stuðning hvert af öðru – getur borið saman bækur sínar og fengið ráð- leggingar hvert frá öðru.“ – Segja má að félagsþjón- ustan hafi verið efld með þess- ari ráðstöfun... „Já, hún hefur verið efld, miðað við það sem ég sé af gögnum og hef heyrt frá fólki. Í rauninni er alveg nauðsyn- legt að hafa öfluga stofnun og þetta mikið af fólki. Yfirleitt eru málin þannig sem hingað koma að það er erfitt að sitja með þau einn og geta ekki fengið ráðleggingar og fleiri sjónarmið hvernig best er að vinna úr þeim. Sérstaklega kemur þetta í ljós í barna- verndarmálunum vegna þess að yfirleitt kemur enginn og biður um þjónustu barna- verndarnefndar, ólíkt því sem er í félagsþjónustunni. Barnaverndin fer út og inn á heimili fólks til að sinna málum, hvort sem viðkom- andi fjölskylda er tilbúin að þiggja þjónustu hennar eða ekki. Við höfum skyldu til að veita þessa þjónustu sam- kvæmt lögum en svo er auð- vitað spurning hvað hægt er að leysa í samvinnu fólks og hvað ekki. Hins vegar er það alltaf barnið eða börnin sem eru skjólstæðingar og reynt er gera það sem er þeim fyrir bestu. Það getur á stundum verið erfitt fyrir fullorðna að skilja þetta sjónarhorn og að- skilja eigin þarfir frá þörfum barnsins eða barnanna.“ Hafa ekkert vald utan funda – Er þá meiri geta til að framfylgja barnaverndarlög- um í kjölfar bættrar vinnuað- stöðu hjá stofnuninni? „Já, ég held að það sé alveg á hreinu. Nú orðið er miklu auðveldara hjá okkur að vinna að málum og auðveldara að eiga við hvers konar mál í raun og veru. Ef maður skoðar þau úrræði sem við erum að beita í barnaverndarmálum, þá getum við boðið upp á nánast öll viðurkennd úrræði. Með- ferðarheimili er nánast það eina sem við rekum ekki sjálf en við höfum verið með stuðn- ingsfjölskyldur og sækjum síðan um vistun á meðferðar- heimilum ríkisins sem eru um allt land. Í barnaverndinni er- um við orðin viðurkennd sem góð stofnun. Við erum góð í að sníða úrræði þannig að það skili árangri. Einfaldlega sagt erum við betur í stakk búin til að takast á við svona mál í dag en við vorum. Núna erum við að fara inn í sameiginlega barnaverndar- nefnd með Bolungarvík og Súðavík, sem ég held að geri það að verkum að íbúar þeirra sveitarfélaga græði á því sem við höfum verið að byggja upp hér. Allir sem koma til kasta nefndarinnar hafa að- gang að sömu úrræðum. Nefndin er skipuð þremur full- trúm frá Ísafjarðarbæ og ein- um frá hvoru hinna sveitarfé- laganna. Málin eru lögð fram undir númerum þannig að nefndarmenn vita aldrei hverj- ir skjólstæðingar þeirra eru. Þetta tryggir málefnalegri um- fjöllun og minnkar að mörgu leyti álagið á nefndarmönnum því þeir þekkja ekki skjól- stæðinga sína þegar þeir fara í Samkaup eða Bónus að ver- sla.“ – Þetta hefur væntanlega stundum verið erfitt. Líklega er fátítt að fólk kunni engin deilli á skjólstæðingum sín- um. „Allavega er nálægðin mik- il. Við bjuggum til þessar regl- ur árið 2001 vegna þess að okkur fannst umræður vilja snúast um persónur en ekki málefni. Verklagið í dag er þannig að starfsmenn greina nefndarmönnum frá mála- vöxtum. Telji þeir nægar upp- lýsingar liggja fyrir, þá taka þeir ákvörðun út frá þeim eða óska eftir frekari upplýsingum eftir atvikum. Síðan eru það starfsmennirnir sem fara út og vinna í málunum. Í ein- staka tilvikum hafa skjólstæð- ingar sem ekki hafa verið ánægðir með afgreiðslur haft samband við nefndarfólk, hringt heim til nefndarmanna eða eitthvað slíkt. Nefndin er fjölskipað vald, sem þýðir að þegar fundur er settur, þá hefst vald nefndarinnar en þegar fundi er slitið þá lýkur því. Þannig hefur einstakur nefndarmaður ekkert ákvörð- unarvald í málum nema hann sitji inni á fundi með öllum hinum. Þess vegna er svo brýnt að hafa skýra afmörkun um hvað starfsmaður barna- verndar má gera, hvenær hann má gera það og hvað má líða langur tími þar til hann fær samþykki nefndarinnar ef hann grípur til neyðarúrræða. Við vinnum eftir afmörkun um það hvað starfsmönnum nefndarinnar er heimilt að gera. Allt sem nær út fyrir það fer inn í nefndina til ákvörð- unar.“ Innri málefni fjölskyldna erfið – Er þá fyrir hendi skýr af- mörkun um það hverjir sjái um framkvæmd mála og hverjir ekki? „Barnaverndarnefnd tekur ákvarðanir um aðgerðir í mál- um, felur starfsmönnum sín- um framkvæmdina og hefur eftirlit með að henni sé sinnt. En nefndin fer ekki og fram- kvæmir. Ef upp kemur neyð- aratvik inni á heimili um miðja nótt, þá fer nefndin ekki á vettvang. Það gera starfs- mennirnir. Barnaverndarnef- 16.PM5 18.4.2017, 10:578

x

Bæjarins besta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.