Bæjarins besta


Bæjarins besta - 23.04.2003, Page 16

Bæjarins besta - 23.04.2003, Page 16
ÓHÁÐ Á VESTFJÖRÐUMFRÉTTABLAÐ Stofnað 14. nóvember 1984• Sími 456 4560 •Fax 456 4564 • Netfang: bb@bb.is • Verð kr. 250 m/vsk Atvik sem varð á Ísafirði um miðjan febrúar hefur átt sér nokkur eftirmál. Í dagbók lögreglunnar á Ísafirði segir, að föstudaginn 14. febrúar „var kærð til lögreglu árás fjögurra 13 ára drengja á einn 7 ára dreng. Þó meiðsli hafi ekki verið alvarleg er árásin engu að síður alvarleg. Mál þetta var falið Skóla- og fjöl- skylduskrifstofu Ísafjarðar- bæjar og foreldrum drengj- anna til meðferðar.“ Frétt sem tekin var orðrétt eftir ofan- greindri bókun, sem birt var opinberlega á lögregluvefn- um, birtist síðan hér í blaðinu líkt og algengt er hjá fjölmiðl- um. Foreldrar þriggja af drengj- unum fjórum hafa krafist leið- réttingar á þessari bókun, sem þeir telja ranga. Telja þeir að ungi drengurinn hafi orðið fyr- ir aðkasti eins 13 ára drengs en hinir þrír hafi ekki átt hlut að máli. Lögregluyfirvöld á Ísafirði hafa ekki fallist á breytingar á bókuninni. Allmikil bréfaskipti hafa gengið milli aðila um þetta mál. Foreldrar eins af eldri drengjunum hafa kært með- ferð lögreglunnar á Ísafirði á þessu máli til embættis ríkis- lögreglustjóra. „Við óskum eftir því að embætti ríkislög- reglustjóra hlutist til um rann- sókn á málinu og leiðrétting verði gerð á fyrrgreindri frétta- tilkynningu“, segir í niðurlagi kærubréfsins. Bókun lögreglu kærð til ríkislögreglustjóra Meðferð árásarmáls á Ísafirði veldur deilum Líklega Íslandsmet í steinbítsveiði hjá Páli Pálssyni ÍS 102 Sjóskíðin tekin fram á milli Lögreglan stöðvaði 13 ára stúlku á dráttarvél Aligæsir gerðu að- súg að lögreglubíl Lögreglan á Ísafirði hefur að undanförnu haft afskipti af lausagöngu aligæsa sem munu ósjaldan hafa verið íbúum í Múlalandi til ama. Þessar tilteknu gæsir eru þekkt vandamál, að sögn lögreglunnar. Þær eru há- vaðasamar og ágengar og börn óttast þær og jafnvel fullorðnir líka. Sem dæmi um ósvífni og frekju gæsanna má nefna, að þær veittust að lögreglubíl og gogguðu í hann þegar lög- reglan kom til að hafa hendur í fiðri þeirra. Í vikunni var lögreglunni tilkynnt um akstur 13 ára stúlku á dráttarvél á þjóð- vegi í umdæminu. Hún mun aðeins hafa ekið skamman veg milli afleggjara en lög- reglan lítur þetta engu að síður alvarlegum augum. Fróðir menn telja að ísfisk- togarinn Páll Pálsson ÍS 102 hafi sett Íslandsmet í stein- bítsafla að undanförnu. Á þessari steinbítsvertíð er skip- ið komið með hátt í 700 tonn á réttum mánuði frá því að togararallinu lauk, en áður var Páll kominn með um 50 tonn. Ekki er hægt að veiða stein- bítinn nema þegar myrkur er og þannig hafa aðeins um sex tímar á sólarhring nýst til veið- anna. Hinn tímann hafa skipverjar látið reka „og haft það náðugt en ekki skemmtilegt“, segir Heimir Tryggvason, sem var með skipið síðustu tvo túra í afleysingum fyrir Pál Hall- dórsson skipstjóra. Undan- tekningar hafa þó verið frá því að það hafi ekki verið skemmtilegt yfir daginn. Þannig brugðu skipverjar sér á sjóskíði inni á Arnarfirði fyr- ir nokkru. Ekki voru þeir sjóskíða- menn reyndar dregnir af tog- aranum sjálfum heldur öflug- um Zodiac. „Það hafa örugg- lega aldrei sést önnur eins til- þrif á sjóskíðum á Arnarfirði“, segir Heimir Tryggvason. „Það var bara synd að fugl- inn skyldi ekki hafa verið bú- inn að verpa í björgin, þá hefð- um við getað farið í egg“, segir Heimir. Hann segir steinbíts- veiðina að undanförnu hafa verið þá mestu sem hann hafi tekið þátt í. „Einu sinni feng- um við fimmtán tonn eftir að hafa verið með trollið í botni í 50 mínútur.“ Landað úr Páli Pálssyni ÍS 102 í Ísafjarðarhöfn. 16.PM5 18.4.2017, 10:5716

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.