Bæjarins besta


Bæjarins besta - 23.07.2003, Side 7

Bæjarins besta - 23.07.2003, Side 7
MIÐVIKUDAGUR 23. JÚLÍ 2003 7Lestu nýjustu fréttir daglega á www.bb.is Áhafnir rækjuskipa Hraðfrystihússins – Gunnvarar (HG) hafa veitt mjög vel að undan- förnu. Á mánudag kom Framnes að landi með 52 tonn af rækju, en hafði viku áður kom- ið með 45 tonn. „Þetta þykir mjög góð veiði“, segir Sverrir Pétursson, útgerðarstjóri HG. „Andey kom líka að landi í morgun með 42 tonn sem þykir mjög gott. Á laugardag land- aði Stefnir 22 tonnum eftir einungis þriggja daga veiði. Þetta er fínasta rækja og það er nóg að gera hjá vinnslunni í Súðavík.“ – halfdan@bb.is Góð rækjuveiði hjá skipum HG Gott hal tekið um borð í Framnesið. Ljósmynd: Hilmar Lyngmó. Bókari Póls hf. óskar eftir að ráða bókara til fram- tíðarstarfa. Um er að ræða fullt starf í janúar og á sumrin, en hlutastarf aðra mánuði árs- ins. Vinnutími í hlutastarfi verður frá kl. 13- 17 virka daga. Umsóknir er tilgreina starfsreynslu, mennt- un og meðmæli sendist á halldor@pols.is eða til Póls hf. Sindragötu 10, 400 Ísafjörður merkt „Bókari“. Umsóknarfrestur er til 30. júlí nk. Áslaug Jóh. Jensdóttir staðarhaldari í Faktorshúsinu í Hæstakaupstað Opnaði sýningu um skipasmiðinn í Neðsta Áslaug Jensdóttir staðar- haldari í Faktorshúsinu í Hæstakaupstað á Ísafirði opn- aði síðdegis á föstudag sýn- inguna Skipasmiðurinn í Neð- sta í tilefni Siglingadaga á Ísa- firði. Þar getur að líta myndir af skipum sem afi hennar Marsellíus Bernharðsson smíðaði í skipasmíðastöð sinni í Suðurtanga. „Úlfar Ágústs- son sem vinnur að Siglinga- dögunum bað mig um að gera þetta og ég ákvað að svara því kalli. Þetta er eiginlega eina sviðið sem ég þekki almenni- lega til á sem tengist sjónum því maður er alinn upp við þessa bátasmíði. Mikið af mununum á sýningunni koma frá söfnunum hér á Ísafirði en ég er líka með sýningarskáp þar sem ég setti inn nokkra persónulega muni svo fólk gæti kynnst annari hlið á manninum“, segir Áslaug. Stefnt er að því að hafa sýn- inguna uppi fram yfir 16. ágúst en það var afmælisdagur Mar- sellíusar sem lést árið 1977. „Það kom fram við opnunina að miklir kærleikar voru milli afa míns og Úlfars sem var ritstjóri Vesturlands þegar hann dó. Þá gaf hann út sér- stakt blað þar sem hann fór mjög ítarlega yfir hans feril.“ Áslaug segir sýninguna hafa fengið góðar viðtökur. „Það er margir veikir fyrir gömlum bátum. Bæði á föstudags og laugardagskvöld kom hingað mikið af fólki til að skoða. Hérna var líka mikið af fólki í kvöldmat og góð stemmning. Það er mikð af sýningum í gangi í bænum og maður þarf að fara að skoða hjá hinum. Það er virkilega skemmtilegt þegar skapast svona flæði“, sagði Áslaug. kristinn@bb.is Hið árlega félagsmót hesta- mannafélagsins Storms á Vest- fjörðum verður haldið að Söndum í Dýrafirði dagana 25. og 26. júlí. Mótið hefst með forkeppni gæðinga í A og B flokkum, ungmenna-, unglinga- og barnaflokkum. Einnig verður opin forkeppni í gæðingatölti. Keppni hefst kl. 17 á föstudegi og verður haldin kvöldvaka að henni lokinni. Á laugardag hefst dagskrá með hópreið hestamanna áður en keppt verður í úrslitum. Þá verður boðið upp á útreiðartúr sem endar með sameiginlegu grilli á Söndum. Hægt er að skrá sig til keppni hjá deildar- formönnum og eru gestakepp- endur velkomnir. halfdan@bb.is Hestamannamót Storms á helginni Úlfar Ágústsson og Guðjón Finndal Finnbogason við opnunina. Mynd: Þorsteinn J. Tómasson. 29.PM5 18.4.2017, 11:277

x

Bæjarins besta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.