Bæjarins besta


Bæjarins besta - 23.07.2003, Síða 10

Bæjarins besta - 23.07.2003, Síða 10
1 0 MIÐVIKUDAGUR 23. JÚLÍ 2003 Lestu nýjustu fréttir daglega á www.bb.is Rögnvaldur og Margrét sigruðu í Víkinni Flosi mátar hefðbundin klæði heimamanna í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. sem tilheyra því. Hérna er prestur sem býr einn í stóru húsi og ég flutti inn á hann.“ – Er þetta bærilegasta vist? „Jájá, þetta er flott hús. Hér á svæðinu við sjómannaheim- ilið er líka stór sundlaug. – En hvernig hafa þessir dagar verið hjá þér? Er mikið að skoða og mikið við að vera? Eða er kannski leiðingjarnt að vera strandaglópur þarna úti? „Ja, ég er búinn að fara í eyðimerkursafarí og fleira hérna en það er bara ekkert hægt að vera úti við á daginn. Maður verður bara að halda sig innan dyra.“ – Eru einhverjir Íslendingar þarna úti sem þú hefur getað haft samband við? „Já, það eru hérna áhafnir frá flugfélaginu Atlanta. Þeir gista alltaf á hóteli hérna niðri í bæ og ég kíki stundum á þá. Við fáum okkur bjór saman.“ – Þannig hefurðu haft ein- hverjar fréttir að heiman og smávegis tengsl við landann. „Maður kemst náttúrlega alls staðar á internetið hérna og getur fylgst með öllu þannig. Það er á hverju horni hérna.“ Þarf að komast í gott skipsrúm fyrir sparisjóðinn – Hvernig tilfinning var það að vera kominn í steininn með 150 glæpamönnum í Mið- Austurlöndum? „Óvissan var náttúrlega verst. Maður vissi ekkert alltaf hvað var að gerast. Annars hef- ur þetta verið allt í lagi.“ – En nú hefurðu þurft að vera þarna úti síðan 23. apríl. Þetta hlýtur að vera mjög dýrt. Þú hefur væntanlega engar tekjur haft þennan tíma. Hvernig hefur þetta leikið fjár- haginn? Veitir kerfið mönnum einhvern stuðning við svona kringumstæður? „Ég tek bara lán. Sparisjóðs- stjórinn í Bolungarvík passar upp á kortin hjá mér og sér um að halda þeim opnum.“ – En þú átt jafnvel von á að komast heim í ágúst eða sept- ember? „Ja, maður veit ekki neitt. Ég er alveg hættur að ergja mig á einu eða neinu og alveg hættur að búast við nokkru. Ég bara tek þessu eins og það kemur. Þess vegna gæti verið hringt í mig á morgun og mér sagt að hundskast heim.“ – Verður þá næsta mál að komast á sjóinn til að borga kortareikningana? „Já, ég verð að komast í gott pláss svo að Ásgeir Sól- bergs í sparisjóðnum haldi áfram að vera vinur minn. – Að lokum – viltu koma einhverjum skilaboðum til fólksins heima? „Ég er nú alltaf í daglegu sambandi í gegnum internetið og símann. En annars vil ég bara skila bestu kveðju til allra þeirra sem vilja þekkja glæpa- manninn“, segir Flosi, sem virðist svo sannarlega ekki hafa misst móðinn eftir að hafa verið kyrrsettur í Dubai í á fjórða mánuð, þar af 40 daga í fangelsi, í bið eftir dómsnið- urstöðu. Hlýtur þetta að teljast mjög sérstök lífreynslu, svo ekki sé fastar að orði kveðið, sem hefði vafalítið leikið sál- arlíf margra grátt. Flosi virðist aftur á móti takast á við óvissu og ókunnugt umhverfi af stöku æðruleysi og er að eigin sögn löngu hættur að svekkja sig á gangi mála í dómskerfi Sam- einuðu arabísku furstadæm- anna. – kristinn@bb.is Norska sjómannaheimilið í Dubai Rögnvaldur Magnússon sigraði á Bjarnabúðarmótinu í golfi sem haldið var á Syðridalsvelli í Bolungarvík á sunnudag. Leiknar voru 18 holur í punktakeppni. Rögn- valdur hlaut 41 punkt, en Bjarni Pétur Jónsson varð annar með 40 punkta og Wirot Khiansanthia varð þriðji með 38 punkta. Í kvennaflokki sigraði Magrét Ólafsdótt- ir með 40 punktum, en Pimonlask Rodpitake varð önnur með 38 punkta. Þá fékk Þröstur Jónsson nándarverð- laun á 5. braut og Pimonlask Rodpitake á 3. braut, auk þess sem hún átti lengsta pútt á 9. flöt. – halfdan@bb.is Magnús og Margrét klúbbmeistarar hjá GÍ Magnús Gautur Gíslason og Margrét Ólafsdóttir eru klúbbmeistarar Golfklúbbs Ísafjarðar 2003, en keppt var um titilinn á meistaramóti klúbbsins á Tungudals- velli í síðustu viku. Magnús sigraði í 1. flokki karla eftir að hafa farið 72 holur á 311 höggum. Kristján Krist- jánsson varð annar á 323 höggum, en Haukur Eiríksson þriðji á 327 höggum. Baldur Ingi Jónasson, sem lengst af var efstur á mótinu, datt niður í 4.-5. sæti. Í kvenna- flokki sigraði Margrét Ólafsdóttir á 217 höggum, en konur og unglingar fóru helmingi færri holur en karl- arnir. Önnur varð Ása Grímsdóttir á 229 höggum og Guðrún Á. Stefáns- dóttir varð þriðja á 232 höggum. Í 2. flokki karla sigraði Samúel Einars- son (368) en Loftur G. Jóhannsson (381) og Finnur Magnússon (384) komu næstir. Í þriðja flokki var Jóhann Gunnar Jóhannsson (333) efstur og Rúnar Viggósson (360) varð annar. Gunnar Þór Helgason (374) varð svo í þriðja sæti. Einungis tveir keppendur voru í unglingaflokki og sigraði Högni Gunnar Pétursson (189) en Ásgeir Guðmundur Gísla- son (193) varð annar. –halfdan@bb.is Magnús Gíslason. Gera Kastljósþátt um ferðaþjónustu Verið er að vinna að gerð Kastljósþáttar um ferða- þjónustu á Vestfjörðum. Síð- ustu daga hafa Karl Eskil Pálsson, umsjónamaður Kastljóss, og Jóhannes Jóns- son hjá vestfirska fyrirtæk- inu DIGI-film verið við tök- ur á áhugaverðum stöðum á svæðinu. „Þetta er engan veginn tæmandi úttekt á efninu, en þar sem ferðamannatíma- bilið er núna í hámarki vild- um við benda á nokkra staði sem vert er að skoða. Við höfum farið nokkuð vítt og breytt um Vestfirði. Við fór- um við í siglingu um Ísa- fjarðardjúp og í Vigur auk þess sem við tókum myndir á Látrabjargi í afburða góðu veðri“, segir Karl Eskil. „Þá skjótum við inn myndum héðan og þaðan, en við komum við á Bíldu- dal, á Hrafnseyri, í Skrúði í Dýrafirði og víðar, til dæmis í harðfiskvinnslu. Nú er Jó- hannes að vinna úr efninu, en þátturinn verður fullunn- inn hér fyrir vestan og fluttur tilbúinn suður. Hér eru til öll tæki og tól til að ráðast í svona verkefni“, segir Karl Eskil. Þátturinn verður 25 mín- útna langur og verður sýnd- ur sunnudaginn 27. júlí. halfdan@bb.is Jóhannes Jónsson hjá DIGI-film klippir efni þáttarins. Skrúður í Dýrafirði Aðsókn eykst með hverju ári Aðsókn að Skrúði í Dýra- firði, sem aðrir skrúðgarðar hér á landi bera nafn sitt af, eykst með með hverju árinu að sögn Eddu Arnholtz um- sjónarmanns garðsins. „Um þrjú þúsund manns skrifuðu sig í gestabókina hérna í fyrra. Þetta sumar lofar góðu og ég reikna með að í haust verði komnar ein- hvers staðar á bilinu þrjú- til fjögur þúsund færslur í bók- ina“, segir Edda. Eins og kunnugt er hafði garðurinn látið á sjá en árið 1992 tóku áhugaaðilar sig til og hófu garðinn til fyrri glæsileika á næstu fjórum árum. Séra Sigtryggur Guðlaugsson hóf ræktun garðsins árið 1905 og styttist því í aldarafmæli Skrúðs þó hann hafi ekki verið formlega stofnaður fyrr en árið 1909. Auk fjölbreyttra trjáa, runna og fjölæringa eru ræktaðar mat- og kryddjurtir í Skrúði. Edda segir garðinn hafa mikið verið notaðan í gegnum tíðina í tengslum við kennslu skólanna á Núpi. M.a. mun Sigtryggur hafa haldið skrá yfir plöntur sem nemendur þar gróður- settu. – kristinn@bb.is Karl Eskil Pálsson og Jóhannes Jónsson 29.PM5 18.4.2017, 11:2710

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.