Bæjarins besta - 13.03.2002, Blaðsíða 1
Færeyskur
þunglyndis-
sjúklingur,
lausgirtur
Ameríkani
og tantra-jógi
– Sjá viðtal í miðopnu við Eirík Örn Norðdahl, sem
undanfarin ár hefur að mestu dvalist erlendis og kynnst
mörgum áhugaverðum og vafasömum einstaklingum
Miðvikudagur 13. mars 2002 • 11. tbl. • 19. árg.
ÓHÁÐ Á VESTFJÖRÐUMFRÉTTABLAÐ
Stofnað 14. nóvember 1984 • Sími 456 4560 • Fax 456 4564 • Netfang: bb@bb.is • Verð kr. 200 m/vsk
Rækjubáturinn Bára ÍS-66
dreginn til Ísafjarðar
Sökk í Súðavíkurhöfn
Rækjubáturinn Bára ÍS-
66 sökk við bryggju í Súða-
vík sl. föstudagsmorgun eftir
að sjór hafði runnið inn um
tvívirkan lensibúnað bátsins.
Neyðarkall barst frá bátnum
í gegnum Tilkynningaskyld-
una og voru lögregla og
björgunarsveit kölluð út en
talið er að sjálfvirkur neyðar-
sendir hafi farið í gang þegar
báturinn sökk. Hafði báturinn
verið á rækjuveiðum í Ísafjarð-
ardjúpi daginn áður og gengu
sjómennirnir frá bátnum við
bryggjuna á Súðavík um
klukkan níu um kvöldið.
Hann náðist á flot fljótlega
eftir hádegi á föstudeginum
og hafði þá hópur, slökkviliðs-
manna, kranamanna og kafara
unnið að því að ná bátnum
upp frá því snemma um morg-
uninn. Báturinn var síðan
dreginn til hafnar á Ísafirði
þar sem tjón verður metið en
að sögn Sverris Péturssonar,
útgerðarstjóra Hraðfrystihúss-
ins-Gunnvarar hf. sem gerir
Báru út, er ljóst að um veruleg-
ar skemmdir er að ræða,
sérstaklega á rafkerfi. Á hann
því ekki von á því að báturinn
rói meira á þessari vertíð og
segir það sérlega leitt í ljósi
þess að hann hefur reynst út-
gerðarfélaginu vel það sem af
er vetrar.
Bára ÍS-66 dregin inn á Ísafjarðarhöfn.