Bæjarins besta - 13.03.2002, Blaðsíða 5
MIÐVIKUDAGUR 13. MARS 2002 5
smáar
Styrkir til at-
vinnumála kvenna
Félagsmálaráðuneytið hefur á þessu ári
heimild til að úthluta í styrki 20 milljónum
króna til atvinnumála kvenna.
Tilgangur styrkveitinga er einkum að auka
fjölbreytni í atvinnulífi, viðhalda byggð um
landið og efla atvinnutækifæri á landsbyggð-
inni, auðvelda aðgang kvenna að fjármagni
og draga úr atvinnuleysi meðal kvenna.
Áhersla er lögð á að greinargóð lýsing á
verkefni fylgi umsókn, sundurliðuð kostnað-
aráætlun svo og að fram komi hvort leitað
hafi verið til annarra um fjárstyrk.
Helstu reglur um styrkveitingar eru:
· Forgang njóta nýsköpunarverkefni sem
þykja líkleg til að fjölga atvinnutækifærum
kvenna. Svæði þar sem hlutfall atvinnulausra
kvenna er hátt og fábreytni í atvinnulífi eru
þar með talin.
· Allar konur hvaðanæva af landinu geta
sótt um styrk.
· Styrkir eru ekki veittir til verkefna þar
sem styrkveiting gæti skekkt samkeppn-
isstöðu gagnvart aðila í hliðstæðum at-
vinnurekstri.
· Stofnstyrki er heimilt að veita að hámarki
25% af stofnkostnaði til véla og tækjakaupa
og einnig vegna húsnæðis til hópa.
· Ekki eru veittir rekstrarstyrkir.
· Ekki eru veittir styrkir til listiðnaðar en
tekið er tillit til nytjalistar.
· Ekki eru veittir styrkir til tímabundinna
verkefna sem ekki eru atvinnuskapandi.
· Ekki eru veittir styrkir til verkefna sem
njóta greiðslna úr almannatryggingakerfinu.
· Framlag af hálfu ríkisins fer aldrei yfir
50% af heildarkostnaði við verkefnið.
· Hámarksstyrkur á verkefni er 2,5 milljónir
króna.
· Til að verkefnið sé styrkhæft í annað eða
þriðja sinn þarf fyrir að liggja greinargerð
vegna fyrri styrkveitinga.
· Vegna mikils fjölda umsókna má búast
við að styrkveitingar nái hvorki ofangreindum
hámarkshlutföllum eða -upphæð.
Umsóknareyðublöð fást á Vinnumála-
stofnun, Hafnarhúsi við Tryggvagötu, Reykja-
vík, sími 515 4800 og á heimasíðu stofnun-
arinnar www.vinnumalastofnun.is. Umsókn-
areyðublöð er einnig hægt að nálgast hjá
Impru, Iðntæknistofnun og hjá atvinnu- og
iðnráðgjöfum á landsbyggðinni. Umsóknar-
frestur er til 5. apríl 2002.
Umsóknir eru metnar af sérstökum ráðgjaf-
arhópi sem starfar á vegum Vinnumálastofn-
unar. Við mat á einstökum hugmyndum
vega nýnæmi og raunhæfni mestu.
bb.is Dagblað á netinu!
Óska eftir snjóbretti fyrir
lítinn pening. Uppl. í síma
456 4428 og 691 4365.
Til sölu er Hókus Pókus
stóll. Verð kr. 5.000. Uppl.
í síma 456 3608.
Til sölu er Skoda Favorite
árg. 1995 með lokuðum
kassa, ekinn 60 þús. km.
Uppl. í síma 892 4844.
Gullfiskaskál eða lítið
fiskabúr óskast (mætti vera
með nokkrum fiskum).
Uppl. í síma 456 4542.
Íbúð eða hús óskast (5
herb.) óskast til leigu í
mánuð, frá maí til júní.
Upplýsingar í síma 862
0501 og 555 4771.
Tveir barnabílstólar (0-
16 kg) til sölu. Upplýsingar
í síma 456 3888.
Svört Ray-ban sólgleraugu
töpuðust í neðri bænum á
Ísafirði í síðustu viku.
Finnandi hafi samband í
síma 690 7172.
Til sölu er hvítur Ibanez
rafmagnsgítar. Upplýs-
ingar í síma 698 5355.
Óska eftir að kaupa ódýrt
snjóbretti, bindingar og
skó. Bretti ca. 150 cm. og
skór nr. 41-42. Uppl. í síma
867 4890 (Haukur).
Er með til sölu nokkur pör
af notuðum skíðakloss-
um. Stærðir: 81/2, 7-8, 3-6
og tvenn pör nr. 32. Einnig
skíði, 120 cm, með binding-
um. Á sama stað óskast
keypt 150 cm skíði með
beindingum. Uppl. í síma
456 7512 og 849 8697.
Til sölu er Volkswagen
Golf, 4x4, station, árg.
1997, ekinn 96 þús. km.
Fylgihlutir: Sumardekk á
álfelgum, dráttarkrókur.
Skipti möguleg á ódýrari
bíl. Uppl. í síma 892 1688.
Óska eftir að leigja í sumar
á Ísafirði, júní-sept., 3ja
herb íbúð auk stofu, eldh.,
baði og húsgögnum. Uppl.
í síma 893 5414.
Til sölu Toyota Corolla á'72,
nýskoðaður. Selst ódýrt.
Uppl. í síma 456 4028.
Málverk 120x150 af bát-
um í nausti eftir Veturliða
Gunnarsson.Uppl. í síma
456 3068.
Til sölu er 4ra herb. íbúð
að Túngötu 18 á Ísafirði.
Íbúðin er laus. Uppl. í síma
456 4014 e.kl. 20 á kvöldin.
Óska eftir að kaupa göngu-
skíði fyrir 8 ára krakka
ásamt skóm og stöfum.
Skóstærð ca. 35. Uppl. í
síma 456 7295 e.kl. 17 eða
í síma 691 2111.
Til leigu lítið einbýlishús á
eyrinni með 2 svefnherb.
Leiga 35þús. á mán. Uppl.
í síma 863 3851.
Hundabúr óskast. Uppl. í
síma 456 3388.
Til sölu Toyota Corolla
Touring árg. '99. Kóngabíll.
Uppl. í síma 456 7595.
Hreindýrakjöt til sölu.
Uppl. í síma 456 5484 og
692 3580.
Til sölu er rörahilla og lítill
glerskápur. Uppl. í síma
456 4681.
Óska eftir klósetti, ód. eða
gefins. Uppl. í s. 869 4849.
Óska eftir einbýlishúsi á
einni hæð. Helst inni í firði.
Uppl. í síma 456 4088.
Meðleigjandi óskast að
íbúð í Reykjavík. Uppl. í
síma 867 2368 e.kl. 17.
Óska eftir hamstrabúri
ódýrt eða gefins. Uppl. í
síma 456 5250.
Til sölu hillusamstæða.
Uppl. í síma 456 3014.
Til sölu Benefon NMT
hand-farsími. Verð 15.000.
Uppl. í síma 456 4664.
Á miðvikudag í síðustu
viku barst Verðbréfaþingi Ís-
lands tilkynning þess efnis að
Afl fjárfestingafélag hefði
keypt hlutabréf í Hraðfrysti-
húsinu-Gunnvöru að nafn-
verði kr. 915.760.
Voru bréfin keypt á genginu
6,13 þannig að félagið greiddi
fyrir þau rúmlega 5,6 milljónir
króna. Eignarhlutur Afls fjár-
festingafélags eftir kaupin
nemur kr. 120.207.598,- að
nafnverði en var áður kr.
115.861.838. Aðaleigandi
Afls og stjórnarformaður er
Þorsteinn Vilhelmsson en
hann á jafnframt sæti í stjórn
Hraðfrystihússins-Gunnvara.
Í vikunni þar á undan keypti
Afl fjárfestingafélag hlutabréf
í fyrirtækinu að nafnvirði kr.
73.520.003. Voru bréfin þá
keypt á genginu 4,90 en það
hefur hækkað nokkuð síðan
og var komið í 6,13 í síðustu
viku.
Eykur enn hlut sinn í Hrað-
frystihúsinu-Gunnvöru hf.
Afl fjárfestingarfélag
Guðni Geir Jóhannesson,
bæjarfulltrúi, skipar efsta sæt-
ið á lista Framsóknarflokksins
fyrir sveitarstjórnarkosningar-
nar í vor. Þetta var ákveðið á
fundi stjórnar Framsóknarfé-
lags Ísafjarðarbæjar sem hald-
inn var á fimmtudagskvöld.
Eftirtaldir átján einstakling-
ar skipa listann fyrir kosning-
arnar í vor:
1. Guðni Geir Jóhannesson,
Ísafirði. 2. Svanlaug Guðna-
dóttir, Ísafirði. 3. Björgmund-
ur Guðmundsson, Flateyri. 4.
Jón Reynir Sigurvinsson, Ísa-
firði. 5. Guðríður Sigurðar-
dóttir, Ísafirði. 6. María Vals-
dóttir, Þingeyri. 7. Sigríður
Magnúsdóttir, Flateyri. 8. Þor-
valdur Þórðarson, Suðureyri.
9. Elías Oddsson, Ísafirði. 10.
Hildigunnur Guðmundsdóttir,
Bíldudal. 11. Jón Reynir Sig-
urðsson, Þingeyri. 12. Ás-
valdur Guðmundsson, Þing-
eyri. 13. Gréta Gunnarsdóttir,
Ísafirði. 14. Bergsveinn Gísla-
son, Dýrafirði. 15. Hrafn Guð-
mundsson, Ísafirði. 16. Stein-
þór Ólafsson, Dýrafirði. 17.
Þröstur Óskarsson, Ísafirði.
18. Sigurður Sveinsson.
Segir Svanlaug Guðna-
dóttir, sem er í öðru sæti list-
ans, að mikil samstaða hafi
verið um skipan listans og til-
laga uppstillingarnefndar ver-
ið samþykkt samhljóða. Sjálf
segist hún ekki vera alveg
ókunn þessum málum því hún
hafi átt sæti á framboðslistum
flokksins í kosningum síðustu
árin, en hins vegar hafi hún
aldrei verið í baráttusæti eða
mjög ofarlega á lista. Nú væri
hún hins vegar að ljúka námi í
vor og hefði þar af leiðandi
meiri tíma aflögu til að sinna
framboðsmálum og bæjarpóli-
tík. Telur Svanlaug að flokk-
urinn eigi góða möguleika að
fá tvo fulltrúa kjörna í kosning-
unum í vor.
Framboðslisti Framsóknarflokksins
Guðni Geir skipar efsta sætið