Bæjarins besta


Bæjarins besta - 13.03.2002, Side 2

Bæjarins besta - 13.03.2002, Side 2
2 MIÐVIKUDAGUR 13. MARS 2002 LEIÐARI Frá Hrossataðsvöllum að Torfnesi Umboðs- aðilar BB Eftirtaldir einstaklingar sjá um sölu og dreifingu á BB á þétt- býlisstöðum utan Ísafjarðar: Bolungarvík: Nikólína Þor- valdsdóttir, Hjallastræti 38, sími 456 7441. Súðavík: Sindri V. Gunnarsson, Holtagötu 11, sími 456 4982. Suðureyri: Deborah Anne Ólafsson, Aðal- götu 20, sími 891 7738. Flat- eyri: Gunnhildur Brynjólfsdótt- ir, Brimnesvegi 12a, sími 456 7752. Þingeyri: Selma Rut Sófusdóttir, Hlíðargötu 40, sími 456 8269. Frá útgefendum: Útgefandi: H-prent ehf. Sólgötu 9, 400 Ísafjörður, sími 456 4560, fax 456 4564 • Netfang prentsmiðju: hprent@bb.is • Ritstjóri: Sigurjón J. Sigurðsson, sími 892 5362, netfang: bb@bb.is• Ritstjóri netútgáfu: Sigurjón J. Sigurðsson • Fréttastjóri: Guðfinna M. Hreiðarsdóttir, sími 456 4448, netfang: gudfinna@bb.is. Blaðamenn: Haukur Magnússon, sími 695 8158, netfang: haukur@bb.is, Kristinn Jónsson, sími 895 3068, netfang: blm@bb.is• Ljósmyndari: Halldór Sveinbjörnsson, sími 894 6125, netfang: halldor@bb.is • Fréttavefur: www.bb.is • Lausasöluverð er kr. 200 eintakið m. vsk. • Áskriftarverð er kr. 170 eintakið • Veittur er afsláttur til elli- og örorkulífeyrisþega. Einnig sé greitt með greiðslukorti Frá Hrossataðsvöllum að Torfnesi Það er langur vegur í árum talið frá því menn hófu að sparka ,,fótknetti“ sér til gamans á Hrossataðsvöllum og ungar stúlkur stofnuðu Fótboltafélagið Hvöt vegna þess að þeim var meinaður aðgangur að Fótboltafélagi Ísfirðinga, sem karlar einir áttu aðgang að, til dagsins í dag. Ef frá eru taldir sparkleikir krakka á Riistúni (og fáförnum götum á þeim árum þegar bílaeign Ísfirðinga var fárra fingra í talningu) hefur samastaður knattspyrnumanna á Ísafirði verið á tveimur stöðum í hart nær heila öld. Eftir margra áratuga vissu um ófullnægjandi aðstöðu til íþrótta æfinga á mal-arvellinum á Grund litu margir björtum augum fram á veginn þegar íþróttasvæðið á Torfnesi var tekið í notkun. Ekki síst vegna þess að samhliða þeim áfanga voru uppi talsverðar væntingar (og fyrirheit bæjaryfirvalda, að margra mati) um áframhaldandi framkvæmdir þar til íþróttasvæðið væri að fullu byggt með að-stöðu fyrir frjálar íþróttir og knattspyrnu. Þótt BB hafi margsinnis vakið athygli á þeirri vafasömu stöðu sem íþróttir eru komnar í, þegar æfingar, keppni og árangur ,,fyrirmyndanna“, sem ungdómurinn dregur dám af snýst um peninga frá a til ö,dylst engum að fátt er betra veganesti ungu fólki en hollar íþróttir þar sem hið gullna kjörorð ,,að vera með“ er í háveg- um. Í nútíma bæjarfélögum er litið á aðstöðu til íþróttaiðkunar jafn sjálfsagða og skóla. Gagnstætt því sem upphaflega var talið virðist nú sem ekki sé rými fyrir frjáls- ar íþróttir á Torfnesinu. Væntanlega er það í ljósi þessa nýja viðhorfs sem gamlar hugmyndir um Tungudalinn, sem alhliða útivistar og íþróttasvæði hafa skotið upp kollinum á ný. Áreiðanlega yrði fullbúið íþróttasvæði í Tungudal glæsilegt mannvirki. Hætt er þó við að biðin eftir að gamli draumurinn rætist verði of dýru verði keypt, fjárhagslega og ekki síður fé-lagslega, hvort heldur er fyrir unnendur knattspyrnu eða frjálsra íþrótta. Teikni-vinna og margþættur undirbúningur að slíku mannvirki spannar mörg ár, að ekki sé minnst á mögulegan framkvæmda hraða hjá bæjarfélagi með takmarkaða getu. Úrræðin til að bæta úr aðstöðuleysi frjálsíþróttafólks einskorðast varla við Tungudalinn. Fullbyggt með tveimur knattspyrnuvöllum, áhorfendastúku, vallar húsi, glæsilegu íþróttahúsi og sundlaug myndi íþróttasvæðið á Torfnesi óefað setja svip á bæinn. Tungudalsdraumurinn er skemmtilegur. Kannski rætist hann eftir að draumur Hannibals um 15 þúsund manna byggð á Ísafirði, með úthverfi í Arnardal og lyftu upp á Gleiðarhjalla sem útsýnispall, er kominn fram. s.h. VoiceEra í Bolungarvík og Póls hf á Ísafirði Samstarf um þróun radd- tæknilausna í fiskiðnaði VoiceEra í Bolungarvík og Póls hf. á Ísafirði hafa gert með sér samning um samstarf varðandi þróun á raddtækni- lausnum í fiskiðnaðinum. Fyrirhugað er að nota bæði ISR og Raddþekkir frá Voice- Era til að raddstýra vélum ásamt því að kanna frekar notagildi íslenskrar raddþekk- ingar á sviði fiskiðnaðar. Samningurinn var undirritað- ur í Bolungarvík þegar Voice- Era var með opið hús í tilefni af eins árs starfsafmæli sínu. Þetta er fyrsti samstarfssamn- ingur VoiceEra við fyrirtæki á Vestfjörðum og hafa forsvars- menn fyrirtækisins fagnað því sérstaklega. Ómar Örn Jónsson, fram- kvæmdastjóri VoiceEra, segir að með samstarfinu sé verið að tengja saman þá tækni sem VoiceEra og Póls hafa verið að þróa hvort um sig þannig að hægt verði að nýta radd- skipanir í fiskvinnslu. Í fyrstu verður skoðað hvernig nýta megi þessa tækni um borð í skipum þar sem sjómenn þurfa að slá talsvert af upplýs- ingum inn á lyklaborð en gætu mögulega sinnt því með rödd- inni. Að sögn Ómars Arnar er sambærileg tækni ekki með öllu óþekkt erlendis en fyrir- tækið hefur skapað sér sér- stöðu með því að þróa íslensk- an hugbúnað sem greinir ís- lensk hljóð og er nokkurs kon- ar íslensk hljóðorðabók. Því mun þróunarverkefnið fyrst og fremst beinast að því að hanna búnað fyrir íslenska að- ila. Þar sem grunnkerfi radd- þekkisins frá VoiceEra er unn- ið í samstarfi við belgískt fyr- irtæki sem náð hefur langt í þróun á raddtæknilausnum, ætti hins vegar að vera auðvelt að heimfæra tæknina fyrir er- lenda markaði ef verkefnið gengur vel. Segir Ómar Örn að nokkur aðdragandi hafi verið að und- irritun samningsins þar sem menn hafi tekið sér góðan tíma til að ræða málin. Nú væri hins vegar sjálf vinnan að fara af stað og væri verið að skipa vinnuhóp sem kæmi til með að vinna að þessu tilrauna- verkefni. Örn Ingólfsson, fram- kvæmdastjóri hjá Póls, segir að fyrirtækið hafi lengi þurft á tækni sem þessari að halda enda auki það afköst ef menn geta notað hendurnar í annað en að mata tæknibúnað á upp- lýsingum. Hann segir að fyrirtækið hafi fyrir nokkrum árum verið í samstarfi við Há- skóla Íslands um sambærileg- ar lausnir en tæknin hafi þá verið komin of skammt á veg. Hún hafi hins vegar þróast mikið síðan og allar forsendur séu fyrir því að hægt sé að þróa þann búnað sem þarf. Að sögn Arnar þarf um- ræddur búnaður að vera fyrir- ferðarlítill, léttur og umfram allt sterkur þannig að hann henti þeim markaði sem fyrir- tækið sérhæfi sig fyrir. Hann þurfi t.d. að þola hávaða og öll þau aukahljóð sem fylgja vélum í skipum og fiskvinnsl- um. Segir Örn að unnið verði að verkefninu á þessu ári og vonast til þess að á þriðja árs- fjórðungi verði það komið í það horf að hægt verði að meta árangurinn og ákveða fram- haldið. Örn Ingólfsson, framkvæmdastjóri Póls, og Hallur Hallsson, forstjóri VoiceEra, undirrita samstarfssamninginn. Forvarnarátak Menntaskólans á Ísafirði „Heilbrigður mennta- skóli fyrir vestan“ Nemendur og starfsfólk Menntaskólans á Ísafirði und- irbúa nú átak í forvarnarmál- um sem tengjast mun lífshátt- um ungs fólks í bæjarfélaginu og víðar undir heitinu „Heil- brigður menntaskóli fyrir vestan“. Að sögn Hermanns Níels- sonar, forvarnarfulltrúa Menntaskólans á Ísafirði, mun verkefnið einkum byggjast á verkefnavinnu starfshópa og viðburðum yfir skólaárið 2002-2003 sem margir utan- aðkomandi aðilar munu koma að með ýmiss konar ráðgjöf og aðstoð. næsta haust þegar nýtt skólaár hefst. Segir Hermann ljóst að fari verkefnið af stað með fullum þunga, muni það hafa marg- vísleg áhrif á umræðu og fræð- slu um þessi málefni meðal bæjarbúa.Verkefnið byggist hins vegar að nokkru leyti á því að styrkir fáist til fram- kvæmda þess og því hefur verið leitað eftir stuðningi hjá ýmsum aðilum, m.a. Forvarn- arsjóði og Ísafjarðarbæ sem hefur samþykkt að veita 100 þúsund króna styrk til verk- efnisins. Verkefnið var formlega sett af stað með kynningu og um- ræðu á sal skólans 28. febrúar sl. og var þá skipað í umræðu- hópa og vinna hafin. Er ætlun- in að undirbúa starfið fram á vor en átakið hefst fyrir alvöru Menntaskólinn á Ísafirði. Hæstiréttur Kröfu kenn- ara hafnað Hæstiréttur hafnaði í síð- ustu viku kröfu kennara við Grunnskólann á Ísafirði sem krafði sveitarfélagið um um fæðispeninga vegna þátttöku sinnar í ferð 10. bekkjar Grunnskólans á Ísafirði til Danmerkur vorið 1999. Hæstiréttur staðfesti dóm héraðsdóms á þeirri forsendu að skólastjóri grunnskólans hafi ekki falið áfrýjanda að fara í umrædda ferð. Þá segir í dómnum að ekki verði litið öðruvísi á en að nemendurnir hafi sjálfir, í skjóli lögráða- manna sinna, átt að bera alla fjárhagslega ábyrgð af ferða- kostnaði en sveitarfélagið greiddi tveimur kennurum laun á meðan á ferðinni stóð. Hjólbarðaverkstæði Ísa- fjarðar hefur flutt sig um set og er nú til húsa að Sindragötu 14 á Ísafirði. Að sögn Jónasar Björnssonar, eiganda verk- stæðisins, var hann með starfsemina í eigin húsnæði að Njarðarsundi 2 í átján ár, en hefur nú selt Póls hf. hús- eignina. Segir Jónas nýju aðstöðuna álíka stóra og þá gömlu og telur hið besta mál að flytja öðru hvoru til að losna við það drasl sem safnast saman yfir árin. Ísafjörður Hjólbarða- verstæði Ísa- fjarðar flytur Nýtt aðsetur Hjólbarðaverk- stæðis Ísafjarðar er að Sindra- götu 14.

x

Bæjarins besta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.