Bæjarins besta - 10.07.2002, Page 4
4 MIÐVIKUDAGUR 10. JÚLÍ 2002
Fjölmargir gestir á landsmóti harmonikkuunnenda gistu á túninu fyrir framan gamla sjúkrahúsið á Ísafirði og myndaðist þar skemmtileg „bæjar-stemmning“ alla mótsdagana.
Vel heppnuðu landsmóti harmonikkuunnenda lokið
Rúmlega 1000 manns á
dansleik í íþróttahúsinu
Landsmóti harmonikku-
unnenda lauk með stór-
dansleik í íþróttahúsinu á
Torfnesi á laugardagskvöld.
Varla fór fram hjá nokkrum
Ísfirðingi hvar mótið var
haldið, en alla síðustu viku
bergmáluðu harmonikkutón-
ar í fjöllunum við Skutuls-
fjörð. Ásgeir S. Sigurðsson,
formaður Harmonikkufélags
Vestfjarða, segir mótið hafa
verið vel heppnað í alla
staði. „Það eru allir ánægðir
með hvernig til tókst, bæði
mótshaldarar og gestir. Veð-
ursældin spillti ekki fyrir og
gerði gott mót enn betra“,
segir Ásgeir. Aðspurður um
fjölda gesta segir Ásgeir
erfitt að nefna ákveðna tölu.
„Það er frekar erfitt að átta
sig á því vegna þess að
margir fengu gistingu í
heimahúsum og lágu því illa
við talningu, en við teljum
að um 1.000 manns hafi
verið á lokadansleik í
íþróttahúsinu á Torfnesi, þar
af um 800 aðkomumenn“,
segir Ásgeir. „Margir
mótsgesta höfðu aldrei áður
á Vestfirði komið og höfðu
orð á því hversu fallegt
umhverfið væri. Margir
töluðu líka um að vegir á
Vestfjörðum væru miklu
betri en þeir hefðu þorað að
vona. Þá voru þeir erlendu
gestir sem sóttu mótið mjög
ánægðir með móttökur Ís-
lendinga“, segir Ásgeir S.
Sigurðsson, formaður
Harmonikkufélags Vest-
fjarða og einn skipuleggj-
enda landsmótsins. Með-
fylgjandi myndir tóku
ljósmyndarar blaðsins á
meðan á mótinu stóð. Fleiri
myndir frá mótinu munu
birtast á svipmyndum á bb.is
í vikunni.
Rúmlega eitt þúsund manns voru samankomin á dansleik í
íþróttahúsinu á Torfnesi á laugardagskvöld.
Nikkurnar þandar af snilld í íþróttahúsinu á Torfnesi.
Fjölmenni var við setningarathöfn harmonikkumótsins sem fram fór á Silfurtorgi.
Nikkurnar þandar á tjaldstæðinu við gamla sjúkrahúsið... ... sem og á dansleik á veitingastaðnum Á Eyrinni.