Bæjarins besta


Bæjarins besta - 10.07.2002, Síða 5

Bæjarins besta - 10.07.2002, Síða 5
MIÐVIKUDAGUR 10. JÚLÍ 2002 5 smáar Tvær kanínur, karl og kerling, fást gefins. Uppl. gefur Bjarni í síma 456 4380. Til sölu eru California línuskaut- ar með plastdekkjum. Nýir og lítið notaðir. Verð kr. 2.500.- Uppl. í síma 456 4428. Til sölu er píanó. Uppl. í síma 456 4413 eftir kl. 18. KFÍ óskar eftir tilboði í gangfær- ann Mazda 323 árg. 1982 á vetrardekkjum. Upplýsingar í síma 892 4896. Til sölu er Sega Mega tölva með 18 leikjum á kr. 2.500. Uppl. í síma 456 4428. Einbýlishús í Bolungarvík er til sölu eða leigu. Skipti á íbúð á Ísafirði kemur til greina. Upp- lýsingar í símum 456 7221 og 866 0223. Ásta R! Þú gleymdir Speedo bakpokanum þínum í Snyrtihús- inu. Hafðu samband. Til sölu er Fella 166, sláttuþyrla, dragtengd rekstrarvél og keðju- sög (rafmagns). Uppl. í símum 456 7783 og 456 7740. Til leigu eða sölu eru tvær nýleg- ar 2ja og 3ja herb. íbúðir á eyr- inni. Uppl. í síma 894 6666. Til sölu er húsnæði Baðstofunn- ar að Silfurgötu 9. Upplýsingar í síma 456 4229. Til sölu er nýleg Brio barnakerra. Uppl. í síma 861 4654. Til sölu er Subaru Impresa, rauð að lit, ekinn 100 þús. km., árg. 1996. Vetrardekk fylgja. Ásett verð er kr. 500 þúsund. Uppl. í síma 898 7698. Fjögurra manna fjölskyldu vant- ar 4ra herb. íbúð til leigu á Ísa- firði frá 30. ágúst. Uppl. í síma 477 1927 og 698 2227. Til sölu eru tvö ný silunganet og AEG eldavél. Á sama stað fæst borðstofuborð og sex stól- ar. Uppl. í síma 456 3976. Vegna flutnings er til sölu King Size, amerískt rúm, sófasett, ís- skápur, þvottavél og þurrkari. Uppl. í síma 456 3115. Ungt, reyklaust og reglusamt par óskar eftir að leigja íbúð á Ísafirði. Erum bíllaus. Hringið í síma 866 9870 eftir kl. 17. Töku að okkur hvers konar þrif á bílum. Upplýsingar í síma 896 0542. Til sölu er Zetor traktor, 4x4, ásamt góðum vagni. Ámokst- urstæki fylgja, árg. 1999. Uppl. í s. 456 7398 og 892 3652. Til leigu er lítil íbúð á eyrinni á Ísafirði. Laus frá og með 15. júlí. Uppl. í síma 896 0542. Framkvæmdir við frágang lóðar á hinni nýju þjónustu- miðstöð Súðavíkurhrepps hefjast innan tíðar, en eins og komið hefur fram hér í blaðinu var ágreiningur varðandi út- boð á verkinu. Ásel ehf. átti lægsta boð í verkið, sem hljóð- aði upp á kr. 15.359.310, en BJ-verktakar buðu tæplega 50.000 krónum hærra og vildu forsvarsmenn fyrirtækisins meina að galli hefði verið á útboðinu. Í kjölfar kvartana frá BJ- verktökum leitaði Súðavíkur- hreppur álits lögfræðings á málinu, en því hefur nú lyktað með þeim hætti að tilboði Ásels var tekið, enda telur Súðavíkurhreppur sig í fullum rétti til þess að velja og hafna tilboðum að vild. Munu því framkvæmdir við þjónustu- miðstöðina hefjast innan tíðar. Verkið felst í frágangi á lóð þjónustumiðstöðvar Súðavík- ur, hellulagningu, steypu- vinnu, raflögnum og gerð gróðursvæða. Einnig mun verktakinn sjá um að útbúa plan fyrir bensínstöð Skelj- ungs, sem flyst fljótlega í þjónustumiðstöðina. Þjónustumiðstöð Súðavíkurhrepps Ásel ehf. sér um frágang lóðar Hin árlega Sæluhelgi á Suð- ureyri hefst á morgun og sem fyrr mun vera ætlunin að gera Sæluhelgi þessa árs að þeirri glæsilegustu sem haldin hefur verið. Fyrsti dagskrárliðurinn verður kl. 13 á morgun á Ís- versplaninu á Suðureyri, en þar geta Sæluhelgargestir leigt sér rafmagnsbíla á sérstöku sæluverði sér til skemmtunar. Þá um kvöldið frumsýnir svo leikfélagið súgfirska Hall- varður súgandi Sæluhelgar- stykki ársins. „Draumur í dós“ nefnist leikrit þessa árs og er það Súgfirðingurinn Unnar Þór Reynisson sem fer með leikstjórn, en hann er jafn- framt formaður leikfélagsins. Á föstudaginn verður einn- ig margt um dýrðir og má þar nefna Skothólsgöngu 11 ára og yngri með tilheyrandi leikj- um og fjöri og fjölskylduferð í Staðardal þar sem ýmislegt verður gert til skemmtunar fram eftir kvöldi. Þá fer hin sívinsæla Mansakeppni fram á laugardaginn, en segja má að Sæluhelgarhátíðin sé að ákveðnu leyti sniðin í kringum hana. Sem fyrr snýst hún um að veiða sem flesta marhnúta úr Suðureyrarhöfn á sem skemmstum tíma. Skagfirski sveiflukóngurinn Geirmundur Valtýsson sér svo um fjörið á Sæluhelgardansleiknum, sem verður að þessu sinni með átján ára aldurstakmarki. Ítarlega dagskrá Sæluhelg- arinnar má nálgast Suðureyr- arvefnum (www.sudureyri. is), en hér hefur aðeins verið nefnt lítið brot af þeim fjölda dagskrárliða sem verða í boði á Sæluhelgi þessa árs. Sem fyrr eru það Mansavinir sem bera mesta ábyrgð á hátíðar- höldunum og dagskrá þeirra. Til þess að geta gert hátíðina sem veglegasta verða yfir helgina seld sérstök merki Sæluhelgarinnar á afar vægu verði. Auk þess að vera mikil barmprýði veita Sæluhelgar- merkin aðgang að öllum dagskrárliðum helgarinnar, utan dansleiks á laugardags- kvöldið og leiksýninga Hall- varðar Súganda. Stefnt að því að hátíðin verði sú glæsilegasta til þessa Sæluhelgin á Suðureyri hefst á morgun Bolungarvík Leitað álits sérfróðra aðila Bæjaryfirvöldum í Bol- ungarvík hefur borist bréf frá Ofanflóðanefnd þess efnis að leitað verði álits sérfróðra aðila á því mati sem matsnefnd eignar- námsbóta gerði í liðnum mánuði. Eins og kunnugt er ákvað bæjarstjórn Bol- ungarvíkur að bíða við- bragða Ofanflóðanefndar áður en ákveðið yrði hvernig brugðist yrði við. „Þegar álitið liggur fyrir mun Ofanflóðanefnd senda okkur umsögn sem lögð verður til umræðu í bæjarstjórn og framhaldið þá ákveðið“, segir Ólafur Kristjánsson, bæjarstjóri í Bolungarvík. Fjölmargir gestir heimsóttu harmonikkusafn Ásgeirs Sigurðssonar um helgina Framtíðarhúsnæði safnsins ekki fundið Harmonikkusafn Ásgeirs S. Sigurðssonar var opnað í Gamla sjúkrahúsinu á Ísafirði síðdegis á föstudag. Fjölmenni var við opnun- ina, enda var hún liður í dag- skrá fjölsótts landsmóts har- monikkuunnenda er fram fór um helgina. Safn Ásgeirs er nokkuð stórt, en við opnunina bættist við 62. nikkan. Hljóð- færið gaf Þorsteinn Þorsteins- son úr Reykjavík. Í tölu sem Ásgeir S. hélt við opnun safns- ins sagði hann að sér væri efst í huga þakklæti til þeirra fjöl- mörgu sem hefðu aðstoðað hann við að koma upp safninu. Nefndi hann þar helst konu sína, Messíönu Marzellíusar- dóttur og Pétur Bjarnason. Við opnunina léku þeir Vilberg Vilbergsson og Magn- ús Reynir Guðmundsson lag eftir Vilberg sem bar heitið „Vals fyrir Ásgeir“ sem var, eins og nafnið gefur til kynna, samið fyrir Ásgeir sjálfan. Þess má geta að harmonikku- safn Ásgeirs hefur fengið vil- yrði fyrir 300.000 króna styrk frá ríkissjóði og á hann eflaust eftir að renna nýjum stoðum undir rekstur safnsins. Á sama tíma og harmo- nikkusafnið var opnað, sýndi Sigurjón Samúelsson frá Hrafnabjörgum hljómplötu- safn sitt, sem er eitt það stær- sta á landinu. Sigurjóni þótti vel við hæfi að leggja áherslu á að leika harmonikkutónlist undir það hefur enn ekki fundist. Ásgeir segir að safnið fari nú aftur í geymslu á heim- ili hans þar til varanlegt hús- næði undir það hefur fundist. „Ég vona að bæjarfulltrúar og -yfirvöld geti aðstoðað mig við að finna því samastað í bænum,“ segir Ásgeir. frá ýmsum tímum og virtist músíkin leggjast vel í safn- gesti. Aðsókn á safnið var ákaf- lega góð alla helgina og segir Ásgeir að viðtökurnar hafi komið á óvart.„Safnið hlaut stórkostlegar viðtökur,“ segir Ásgeir. „Ég var mjög snortinn af því hve margir Ísfirðingar og nærsveitungar mínir komu til þess að líta safnið augum og það gladdi mig meira en flest annað á helginni hvað hinn almenni borgari sýndi þessu tiltæki mikinn áhuga.“ Ekki er víst hvenær hinn almenni borgari fær næst að líta harmonikkusafnið augum, þar sem varanlegt húsnæði Ásgeir S. og Messíana við opnun safnsins. Bolungarvík 4.400 tonn á land í júní Alls komu rúmlega 4.400 tonn af sjávarfangi á land í Bolungarvík í júní. Þar af var landað rétt tæpum 3.400 tonnum af loðnu til bræðslu og rúmum 270 tonnum af iðnaðarrækju. Þá komu á land um 77 tonn af stein- bít, 89 tonn af ýsu, 9 tonn af ufsa og 556 tonn af þorski. Að sögn kunnugra er veiðin þokkaleg þegar gefur, en bræla hefur háð bolvískum sjómönnum nokkuð. Eins og svo oft áður er Guðmundur Einarsson aflahæstur línubáta, en áhöfn hans veiddi alls tæp 58 tonn í júní, þar af tæp 25,5 tonn. Þá var Bernsk- an aflahæst handfærabáta. 25% afsláttur af öll-um fatnaði fráfimmtudeginum11. júlí til laugar-dagsins 13. júlí! 40-60% Útsalan hefst mánu- daginn 15. júlí!

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.