Bæjarins besta - 10.07.2002, Síða 12
ÓHÁÐ Á VESTFJÖRÐUMFRÉTTABLAÐ
Stofnað 14. nóvember 1984• Sími 456 4560 •Fax 456 4564 • Netfang: bb@bb.is • Verð kr. 200 m/vsk
bb.is
– öflugur frétta- og
upplýsingamiðill!
Ingólfur Ragnarsson.
Ljósmynd: varden.no.
Noregur
Vildu 14 ára
Ísfirðing í
landsliðið
Ísfirðingurinn Ingólfur
Ragnarsson, sonur Ragn-
ars Haraldssonar og Sig-
ríðar Þórðardóttur, hefur
verið kallaður til æfinga
með U-16 ára unglinga-
landsliði Íslands í knatt-
spyrnu.
Ingólfur, sem varð 14 ára
í apríl, hefur leikið sem
framherji hjá norska liðinu
Siljan að undanförnu.
Fréttir herma að Ingólfur
hafi staðið sig svo vel ytra
að menn hafi viljað fá hann
í norska unglingalandslið-
ið, en þá hafi komið í ljós
að Ingólfur er borinn og
barnfæddur Ísfirðingur og
vart gjaldgengur í landslið
norskra.
Þjónustuhópur aldraðra hjá Ísafjarðarbæ
Vill fá greidd laun í sam-
ræmi við aðrar nefndir
Félagsmálanefnd Ísafjarð-
arbæjar hefur ítrekað til bæjar-
yfirvalda þá afstöðu sína að
störf í þjónustuhópi aldraðra
ættu að vera launuð til sam-
ræmis við það sem gerist í
öðrum fastanefndum sem
starfa á vegum bæjarins.
Í lögum um málefni aldr-
aðra segir að sveitarfélögum
sé skylt að starfrækja og fjár-
magna þjónustuhóp aldraðra,
en starfsemi þeirra miðast við
heilsugæsluumdæmi og ber
því Súðavíkurhreppur kostn-
að af þjónustuhópnum ásamt
Ísafjarðarbæ. Hópurinn er
skipaður öldrunarlækni,
hjúkrunarfræðingi, fulltrúa
Félags eldri borgara og tveim-
ur fulltrúum sveitarfélagsins.
„Í þeim sveitarfélögum sem
ég þekki til eru greidd fundar-
setulaun fyrir störf þjónustu-
hópa aldraðra“, segir Laufey
Jónsdóttir, formaður félags-
málanefndar Ísafjarðarbæjar.
„Hlutverk þjónustuhópsins
er mjög yfirgripsmikið og
hann fundar að meðaltali einu
sinni í mánuði. Það er því
skoðun mín að bæjarfélagið
eigi að greiða laun til nefndar-
manna til samræmis við það
sem gerist í öðrum sveitarfé-
lögum.“
Í erindisbréfi félagsmála-
nefndar kemur fram að for-
maður nefndarinnar eigi jafn-
framt að gegna formennsku
þjónustuhóps aldraðra. Hins-
vegar ákvað nefndin á síðasta
fundi sínum að Hörður
Högnason, sem jafnframt situr
í félagsmálanefnd, tæki við
formennskunni í stað Lauf-
eyjar. „Þetta er liður í því að
dreifa verkefnum milli nefnd-
armanna í félagsmálanefnd-
inni. Auk þess gjörþekkir
Hörður þennan málaflokk og
hefur mjög mikla reynslu í
þessum efnum, sem án efa
verður starfi þjónustuhópsins
til mikils gagns,“ segir Laufey
Jónsdóttir.
Sex sænsk loðnuskip komu til hafnar á Ísafirði
Ísafjarðarhöfn var þétt setin um helgina er sex sænsk loðnuskip komu til hafnar. Þetta voru skipin Ganthi, Ginneton,
Polar, Tor-Ön, Torland og Bristol. Skipin verða send á loðnuveiðar í grænlenskri lögsögu eins fljótt og auðið er, en ís
hamlaði siglingum á veiðislóð um helgina. Að auki lá rækjuskipið Ýmir við bryggju á Ísafirði og togarinn Páll Pálsson
inn á sunnudag.
S j á v a r ú t v e g s r á ð u -
neytið hefur úthlutað
Hraðfrystihúsinu – Gunn-
vöru hf., 90 tonnum vegna
tilrauna til áframeldis
þorsks í kvíum.
Alls var 385 tonnum út-
hlutað og fékk Útgerðar-
félag Akureyrar hf. jafn-
stóran hlut og HG.
Hraðfrystihúsið –
Gunnvör hf. hefur stundað
tilraunir með áframeldi
þorsks í tveimur kvíum í
Álftafirði og réði í vor sér-
stakan starfsmann til að
hafa umsjón með verkinu.
Það er Þórarinn Ólafsson,
sjávarútvegsfræðingur frá
Háskólanum á Akureyri.
HG fær 90
tonna kvóta
til áfram-
eldis þorsks
Hnífsdalur
Íþróttakennari á fertugsaldri dæmdur í Héraðsdómi Vestfjarða
Héraðsdómur Vestfjarða
hefur dæmt karlmann á fer-
tugsaldri í 5 mánaða fangelsi
fyrir kynferðisbrot gegn
tveimur 13 ára stúlkum og
brot gegn barnaverndarlögum.
Þá var hann dæmdur til að
greiða hvorri stúlkunni um sig
250 þúsund krónur í miska-
bætur. Maðurinn var íþrótta-
þjálfari og íþróttakennari
stúlknanna.
Maðurinn var sakfelldur
fyrir að hafa í nokkur skipti á
heimili sínu strokið stúlkun-
um innan og utan klæða undir
því yfirskyni að um væri að
ræða íþrótta- og slökunar-
nudd. Þetta gerðist síðla árs
annars um sjálfsvígstilraun
sína og tengdi hana sakargift-
um stúlknanna á hendur hon-
um.
Í niðurstöðu dómsins segir,
að fyrir liggi vottorð um að
maðurinn hafi átt við geðhvörf
og þunglyndi að stríða, en
dómurinn telji engan vafa
leika á sakhæfi hans. Með
háttsemi sinni hafi hann
framið alvarlegt trúnaðarbrot
gagnvart stúlkunum með því
að misnota sterkt trúnaðar-
traust þeirra og hrifningu, sem
hann hafði öðlast í krafti stöðu
sinnar sem kennari þeirra og
þjálfari en þær lýstu því m.a.
að maðurinn hafi verið besti
vinur þeirra.
Þá segir í dómnum að hátt-
semi mannsins með því að
senda stúlkunum SMS-skila-
boð og tölvupóst hafi verið
gróf og særandi í garð þeirra
og til þess fallin að vekja með
þeim samviskubit að ósekju.
Maðurinn, sem ekki hafi sýnt
merki þess að hann iðrist hátt-
semi sinnar, hafi síðast angrað
aðra stúlkuna með SMS-skila-
boðum símleiðis í febrúar sl.
Segir dómurinn að þetta horfi
allt til refsiþyngingar og ekki
þyki sérstakar málsbætur fel-
ast í því að hann missti starfa
sinn eftir að rannsókn lög-
reglu hófst.
Fimm mánaða fangelsi fyrir
kynferðisbrot gegn stúlkum
2000 og í byrjun ársins 2001
þegar stúlkurnar voru 13 ára.
Þá var hann sakfelldur fyrir
að hafa í apríl árið 2001 tælt
aðra stúlkuna, þá 14 ára, til
annarra kynferðismaka en
samræðis með því að nýta sér
yfirburðastöðu sína vegna
aldurs- og þroskamunar.
Loks var hann fundinn sek-
ur fyrir brot gegn barnavernd-
arlögum með því að sýna
stúlkunum ruddalegt athæfi
og særa þær en hann sendi
annarri stúlkunni SMS-skila-
boð, þess efnis meðal annars
að hann væri að hugleiða
sjálfsvíg, og hinni tölvupóst
þar sem hann fjallaði meðal